Nýja dagblaðið - 23.07.1938, Page 1
*****
(I
O
I ►
I i
< l
l >
l l
< »
iwj/%
ID/^&IBIL/^OIHÐ
6. ár Reykjavík, laugardaginn 23. júlí 1938. 167. blað.
ANNÁLL
203. dagur ársins.
Sólarupkoma kl. 3,09. Sólarlag kl.
9,58. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
1,30.
Veðurútlit í Reykjavík:
Norðankaldi og bjartviðri. Gengur
í suðurátt með kvöldinu.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútv.
15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20
Hljómpl.: Þjóðlög. 19,40 Augl. 19,50
Préttir. 20,15 Upplestur: „Skógurinn
og æskulýðurinn", I, eftir Ohr. Gjer-
löff (Guðm. Hannesson prófessor).
20,45 Hljómplötur: a) Píanókonsert
í Es-dúr, eftir Mozart. b) (21.20) Ung-
versk lög. 21,40 Danslög. 24,00 Ðag-
skrárlok.
Póstferðir á morgun:
Frá Rvík: Ljósafoss. Þrastalundur.
Þingvellir. Laugarvatn. Laxfoss til
Borgarness. Bílpóstur til Akureyrar.
Pagranes til Akraness.
Til Rvíkur: Ljósifoss. Þrastalundur.
Þingvellir. Laugarvatn. Akureyri. Vík
og Garðsauki. Fagranes frá Akranesi.
Laxfoss frá Borgarnesi. Dronning Al-
exandrine frá Færeyjum og Kaup-
Skipafréttir.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn. Goða-
foss fór frá Hull í gær áleiðis til Vest-
mannaeyja. Brúarfoss var á Djúpu-
vik í gær. Dettifoss er á leið til Grims-
by frá Vestmannaeyjum. Lagarfoss var
á Siglufirði í gær. Selfoss er á leið til
Aberdeen. — Esja fór kl. 8 í gærkvöldi
um Vestmannaeyjar til Glasgow. Súðin
fór kl. 9 í gærkvöldi í strandferð aust-
ur um land.
Haraldur Björnsson leikari
var meðal farþega með Súðinni héð-
an í gærkveldi til Austurlands. Ætlar
hann að ferðast um Austfirði og lesa
upp úr íslenzkum leikritum. — Pyrsta
framsagnarkvöldið verður á Seyðis-
firði, væntanlega um aðra helgi.
Fjögur skip
komu í fyrrinótt til Siglufjarðar með
780 mál í bræðslu. Sama og engin
söltunarsild hefir komið þangað síð-
an um nónbil í fyrradag. í gær var
þoka og rigning víðast hvar á veiði-
svæðinu. í.fyrradag og fyrrinótt voru
saltaðar í Siglufirði samtals 2435 tunn-
ur síldar, þar af 94 tunnur sykursalt-
aðar, en hitt var grófsaltað. Pitumagn
Skagafjarðarsíldar var mælt á rann-
sóknarstofu ríkisverksmiðjanna á mið-
vikudag og reyndist 16,9 af hundraði.
Allmikil síld sást í Vopnafirði í fyrra-
dag. — PÚ.
Skemmtiferðaskipin
General von Steuben og Milwaukee
voru hér í gær. Er það i annað sinn,
sem Milwaukee kemur hingað á þessu
sumri. Næsta skemmtiferðaskip kem-
ur á mánudaginn og er það Colombia.
Betri horfur
í Evrópu
Yfirmaður iranska
flughersins fer til
Þýskalands
LONDON:
Þýzki sendiherrann, sem er á för-
um til Berlínar, hefir átt viðræður í
gær við forsætisráðherrann Er litið á
þessar viðræður sem framhald þeirra
viðræðna, sem fram fóru milli Halifax
lávarðar og Wiedemanns, kapteins. Yf-
irleitt gera menn sér vonir um, að
horfurnar í álfunni séu batnandi,
vegna þeirra viðræðna stjórnmála-
mannanna, sem nú fara fram. Þá hefir
það vakið nokkurar vonir um bætta
sambúð, Þjóðverja og Frakka, að yfir-
maður frakkneska flughersins fer
bráðlega í heimsókn til Þýzkalands.
— PÚ.
Meðierð undírréttar
í lyisalamálinu
ómerkt
Allir af hiuum föstu
dómurum viku sæti
Hæstiréttur kvað í gær upp dóm í
máli valdstjórnarinnar gegn 19 lyf-
sölum og lyfsveinum fyrir brot á áfeng-
islögunum og fleiri lögum þeim við-
komandi.
Allir af hinum föstu dómurum viku
sæti í þessu máli, en í þeirra stað tóku
sæti Bjarni Benidiktsson prófessor,
ísleifur Árnason prófessor og Björn
Þórðarson lögmaður.
Undirrétardómur í þessu máli var
kveðinn upp af settum rannsóknar-
dómara, Ingólfi Jónssyni lögfræðingi,
og dæmdi hann lyfsalana í háar fjár-
sektir fyrir brot á umræddum lögum.
Úrskurður framangreindra manna
féll á þá leið, að meðferð rannsóknar-
dómarans á málinu hafi verið svo göll-
uð að þessvegna beri að ómerkja dóm-
inn. Byggðu þeir þennan úrskurð eink-
um á því, að málum allra hinna á-
kærðu hafi verið steypt saman í eitt,
en ekki tekið hvert út af fyrir sig.
Vegna þessarar meðferðar á málinu
leiddu þeir hjá sér að kveða upp dóm
um málið sjálft og verður það því
vafalaust tekið fyrir á nýjum grund-
velli.
Samningur hainar-
stjórnar víð Skánska
Cementsgjuteríet
A. B. - 20°|o aííoll?
Hafnarstjórn hefir gert samning við
þetta sænska firma um að ljúka bygg-
ingu Ægísgarðs. Á firmað að stjórna
verkinu og leggja til í það útlent efni
fyrir 204 þús. sænskar krónur, sem
það lánar hafnarsjóði gegn 4%% vöxt-
um og greiðslu á næstu 10 árum.
Um þennan samning var talsvert
rætt á seinasta bæjarstjórnarfundi.
Jakob Möller og Jón Axel töldu þetta
hagstæð kjör, vegna þess að annað
tilboð frá dönsku firma hafði verið
miklu hærra.
Sigurður Jónasson spurðist fyrir um,
við hvaða verði hið sænska firma seldi
efnið og sagðist hafa heyrt sagt a.
m. k. sumt af efninu væri reiknað
hafnarsjóði allmiklu hærra en hægt
væri að kaupa það fyrir annarsstaðar
frá. Sagði þá Jón Axel að t. d. myndi
kosta um 12 kr. sementstunnan. N. dbl.
hefir nú frétt að verð á sementi kom-
ið í hús hér muni varla fara fram
úr 10 kr. tunnan og ef verð það, sem
Jón Axel gat um er rétt, er álagning
firmans um 20%. Sé sama álagning
á öðru efni, sem vel má búast við
eftir þessu, verða raunveruleg afföll
á láninu um 20%.
í þessu sambandi benti S. J. á það,
hversu hættulegt væri að fara út á
(Framh. á 4. síðu.)
Guttormur J. Gottormsson.
— Sinnir þú eingöngu ritstörf-
um?
— Nei, drottinn minn dýri. Ég
er bóndi. Öll mín kvæði hefi ég
ort við vinnu mína. Sama gildir
Viðtal við Guttorm J. Guttormsson
Tíðindamaður Nýja dag-
blaðsins hitti vesturíslenzka
skáldið Guttorm J. Gutt-
ormsson að máli í fyrra-
dag, þar sem hann býr á
Hótel ísland. Hann var
hress í bragði og ómyrkur
í máli.
— Ég vil helzt að við þúumst,
mælti hann, annaö á ekki við,
þegar ég er kominn heim til ætt-
landsins, þessa óraleið, sem mér
fannst þó eiginlega stutt.
— Hvernig lízt þér á það, sem
þú hefir þegar séð?
— Prýðilega. Ég hefi séð hér
meira af mannvirkjum heldur
en mig grunaði að væru til. Ég
dáist mikið að höfninni. Fólkið
finnst mér bera sannan aðals-
svip og ég hefi ekkert séð, sem
mér þykir ógeðfellt. Þessi sami
bragur var yfir skipshöfninni á
Esju; það fann ég undir eins og
ég steig um borð í Glasgow.
— Hefirðu nokkuð farið út úr
bænum?
— Nei, ekki ennþá. Á þriðju-
daginn kemur legg ég af stað
norður til Blönduóss og Akur-
eyrar og held þaðan austur til
ættstöðva minna í Norður-Múla-
sýslu. Jón faðir minn, sonur Gutt
orms Vigfússonar alþingsmanns,
bjó að Arnheiðarstöðum. Ég á
mesta sæg ættmenna þar eystra
og sömuleiðis hér í Reykjavík.
Konan mín er ættuð af Skóg-
arströnd og heitir Jensína, dóttir
Daníels Sigurðsson frá Hólm-
látri. Daníel er enn á lífi, 95 ára
gamall.
— Hve mörg börn eigið þið?
— Ja, satt að segja er ég vanur
að láta konuna mína svara þess-
Reykjavík er
skípulagslaus
Fullkomín óstjórn
ríkjandi í byggíng-
armálum bæjaríns
Það kom greinilega í ljós á bæjar-
stjórnarfundi í fyrradag, að bygging-
arnefndin starfar ekki eftir neinum
föstum reglum.
Um hæð húsa eru meira að segja
engar fastar reglur. Byggingarnefndin
leyfir sitt á hvað og vegna þess að
ekkert bæjarskipulag getur talizt vera
fyrir hendi, kemur það t. d. fyrir, að
leyft er að byggja nýtízku steinhús við
götu, sem stendur til að breyta bráð-
lega, með því skilyrði, að húseigandi
sé skyldur aö bótalausu til þess að
rífa húsið með sex mánaða fyrirvara!
Sigurður Jónasson sýndi fram á, að
þetta ástand væri gersamlega óhaf-
andi og bar fram svohljóðandi till-
lögu:
Baejarstjórnin ályktar að fela
bæjarráffi að láta nú þeg'ar end-
um leikritin. Ritstörfin hafa orð- j urskoffa byggingarsamþ. Reykja-
i
ið að vera algerð aukastörf; !
hefir heimtað
til líkamlegrar
dagsins önn
krafta mína
vinnu.
— Hvaða búrekstur hefir þú
vestra?
— Ég á búgarð í Rivertonbyggð
við íslendingafljót. — Honum
fylgja 320 ekrur lands, mest
beitarland, engjar og túnlendi.
Ég hefi um 30 nautgripi, nokk-
ur svín og dálítinn sauðfjárstofn
og fáeina hesta. Markaðir fyrir
sauðfjárafurðir hafa aldrei
brugðizt og sauðfjárrækt reynzt
arðvæn. Sauðfé gengur sjálfala.
Bændur í Riverton-byggð hafa
komið sér upp rjómabúi og öll
(Framh. á 4. síðu.)
víkurbæjar.Einnig geri bæjarráff
ráðstafanir til þess, aff sem
fyrst verffi lagffar fyrir bæjar-
stjórnina tillögur aff nýju skipu-
lagi fyrir Reykjavíkurbæ.
Guðmundur Eiríksson viðurkenndi
að ýmislegt í gagnrýni Sigurðar væri
rétt, en sagði að það væri meiningin
að fara að endurskoða byggingarsam-
þykktina (viðurkenndi þó að um það
hefði nýlega ekki verið samþykkt nein
ný tillaga). Hinsvegar áleit hann nægi-
legt að byggingarnefndin hefði í þjón-
ustu sinni trúnaðarmann um skipu-
lagsmálefni bæjarins.
Sigurður benti á, að þetta væri
hvorttveggja allskostar ónóg. Það bæri
brýna þörf til að endurskoða bygg-
ingarreglugerðina, sem væri frá 1903,
nú þegar og það væri hrein óhæfa að
(Framhaid á 4. siðu.)
ari spurningu, en ef ég tel sam-
an, þá reynast þau að vera sex.
Tvö þeirra eru enn í föðurgarði.
— Þú þekkir að sjálfsögðu
marga hér í bænum?
— Já, þá er verið hafa vestan
hafs, t. a. m. Ragnar Kvaran og
Sigfús Halldórs, sem var um
skeið ritstjóri Heimskringlu og
þótti okkar djarfasti og bezti
penni í þann mund.
— Hvað hefir þú gefið út
margar bækur?
— Fjórar, þar af þrjár ljóða-
bækur og eitt safn leikrita. Nú
um hríð hefi ég unnið að land-
námssögu íslenzku frumbýling-
anna í Nýja íslandi, þar sem ég
lýsi lífskjörum þeirra, baráttu
og hversdagslífi í hinu nýja
landi. Ég hefi einnig haft lengi í
smíðum allmikið leikrit, sem enn
er ekki fullsamið,
Yf irlýsing
Út af ummælum, sem undanfariff hafa birzt í tveimur dag-
blöffum bæjarins, Alþýffublaffinu og Vísi, þess efnis, aff útvarps-
stjóri, Jónas Þorbergsson, hafi „misnotað aðstöðu sína gagnvart
starfsfólkinu“, óskum vér undirritaffir starfsmenn Ríkisútvarps-
ins aff lýsa yfir því, aff vér teljum þetta í hæsta lagi ómaklega
mælt og aff útvarpsstjóri hefir ávalt komið fram gagnvart okkur,
einum sem öllum, eins og réttlátur og kurteis húsbóndi.
Sig. Þórðarson
Sigr. Bjarnad.
Þóra Hafstein
Gunnar R. Pálsson
Guðrún Reykholt
Reykjavík, 22. júlí 1938.
G. Briem Árni Hallgrímsson
Þórleif Norland Valgerður Tryggvadóttir
Sigrún Gísladóttir Jón Alexandersson
Eggert Benónýsson Gunnar Hjaltason
Sigurður Hallgrímsson. Árni Sigurðsson
Hermann Guðmundsson Kjartan Lárusson
Ragnheiður Hafstein Dagf. Sveinbjörnsson Óskar Óskarsson
Sveinbjörn Egilsson Sigríður Jónsdóttir Magnús Jóhannsson
Ólöf Ketilbjarnardóttir Haraldur Guðmundsson
Vilhj. Þ. Gíslason Þórunn Sveinbj. Jón Magnússon
Páll ísólfsson Þórarinn Guðmundsson Katrín Dalhoff
Ragnheiður E. Möller (samkv. umbeiðni Þ. N.)
B. E. Böðvarsson Eggert Gilfer Þórhallur Árnason.