Nýja dagblaðið - 20.08.1938, Side 1

Nýja dagblaðið - 20.08.1938, Side 1
6. ár. Reykjavík, Iaugardaginn 20. ágúst 1938. 190. blað Kennaraskíptí mílli Islands og Danmerkur Yfírmaður íþróttakennslunnar í Suður-Jót- landí kemur híngað í næsta mánuði ANN ÁLL 232. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 7,42. Sólarlag kl. 8,23. — Hádegisflæður í Reykjavik kl. 12,15. Næturlæknir er i nótt Axel Blöndal, Mánagötu 1, sími 3951. — Næturvörður er í Ingólfs- apóteki og Laugavegsapóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegis- útvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19,10 Veð- urfregnir. 19,20 Hljómplötur: Tatara- lög. 19,40 Augl. 19,50 Fréttir. 20,15 Upplestur: Úr ritum Guttorms skálds Guttormssonar (Sigfús Halldórs frá Höfnum). 20,45 Hljómplötur: a) Píanó- konsert í Es-dúr, eftir Liszt. b) (21,20) Prægir söngvarar. 21,40 Danslög. 24.00 Dagsskárlok. Póstferðir á morgun. Frá Reykjavík: Ljósifoss, Þrasta- lundur, Þingvellir .Laugarvatn, bUpóst- ur norður, Laxfoss til Borgamess. Til Reykjavíkur: Ljósifoss, Þrasta- lundur, Laugarvatn, Þingvellir, bílpóst- ur að norðan. Garðsauki, Vík, Fagra- nes frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar- nesi, Dronning Alexandrine frá Akur- eyri. Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega kl. 1—3. Til Djúpuvíkur komu í fyrrakvöld og í fyrrinótt 7 skip með um 8.000 mál síldar til bræðslu. Síldin veiddist mestmegnis út af Skagafirði. Veiðiveður var ekki gott á þeim slóðum. — Til Djúpuvíkur- verksmiðjunnar hafa nú alls borizt 113—114.000 mál af síld. FÚ. Bæjakeppnin mill Vestmannaeyja og Reykjavíkur heldur áfram á íþróttavellinum kl. 3 í dag. Kept verður í 400 m. og 3000 m. hlaupi, spjótkasti, þrístökki, kúluvarpi og stangarstökki. Reykvíkingar hafa nú meiri stigafjölda, en Vestmanna- evingar eiga sínar beztu íþróttir eftir. Aðgangur kostar 50 aura fyrir full- orðna og 25 aura fyrir börn. Skipafréttir. Gullfoss er í Kaupmannahöfn. Goða- foss er á leið til Hull frá Hamborg. Brúarfoss fór vestur og norður í gær- kvöldi. Dettifoss er fyrir vestan eða norðan. Lagarfoss er á leið til Aust- fjarða frá Leith. Selfoss er á Dalvík. — Esja fór frá Reykjavík í -ærkvöldi áleiðis til Vestmannaeyja og Glasgow. Súðin var á Hornafirði kl. 5 í gær. Um nýtingu heyja í Rangárvallasýslu segir fréttaritarl útvarpsins í bréfi dagsettu í fyrradag: Um mánaðamótin síðustu var hér þurkur, og náðu þá flestir inn því heyi, sem úti var. En vegna þess hve seint var byrjað að slá, var þá enn meira og minna af túnum óslegið. Frá 3. til 13. þ. m, var oftast óþurkur, og skiptust þá á skúrir og skin flesta dag- ana um alla sýsluna, nema í Fljóts- hlíð innanverðri. Þar var þurviðrasam- ara og heyþurkur nægilegur. — Síð- ustu daga hefir verið þurkur, og eru tún nú alhirt víðast hvar um alla sýsluna. Töðufengur er meiri en í meðallagi, og þó að nokkur hluti töð- unnar hafi spillst í votviðrunum 3.—13. þ. m. hefir tekizt að þurka hana vel. — FÚ. Slökkviliðið var í gær kvatt að Laugaveg 5. Hafði kviknað í bifreiðinni R. 746, sem stóð þar á götunni, en búið var að slökkva eldinn, er slökkviliðið kom á staðinn. Skemmdir urðu litlar. Farþegar með e.s. „Esja“, sem fór frá Reykja- vík í gærkvöldi áleiðis til Glasgow voru: Guðrún Guðmundsdóttir, Niku- lás Friðriksson, Berg Hansen, Árni Haraldsson, Sveinbjörn Árnason, Sig- tryggur Ólafsson, Miss Griffith, Mrs. Carlson, Alfred Ferro, Mr. Powell og auk þess 58 útlendingar, sem komu með skipinu síðustu ferð frá útlöndum. Þá voru nokkrir farþegar til Vest- mannaeyja. Betrí horiur í Sudetten- deilunní Tékkneska stjórn- in stígur þýðingar- mikíð spor til sam- komulags LONDON: Tékkneska stjórnin hefir tekið ákvörðun, sem menn gera sér vonir um, að muni hafa góð áhrif á lausn deilumála Tékka og Súdetta. Hodza forsætisráðherra heimsótti Runeiman lávarð í gær og tilkynnti honum, að tékkneska stjórnin mundi fallast á að skipa Súdetta í ýms embætti, sem nú eru skipuð tékknesk- um mönnum, en það hefir verið Súd- ettum mikið óánægjuefni, að þeir hafa ekki haft jafnan rétt á við Tékka í þessum efnum. Yfirstjórn héraðsmála Súdettalandsins verður þegar falin Súdettum í Falknov og Asch, þar sem Henleinhreyfingin á upptök sín, en bráðlega verður Súdettum falin yfir- stjórn héraðsmála í þremur öðrum héruðum Súdettalandsins. Einnig verður Súdettum falið að gegna póstmeistarastörfum í Súdetta- héruðunum, en Súdettar hafa kvartað mjög yfir þeim óþægindum, sem það hafi bakað þeim, að tékkneskir póst- meistarar og póstmenn í héruðum þeirra hafa ekki skilið nema tékknesku. Einnig munu Súdettar fá störf við tékknesku járnbrautirnar og á fleiri sviðum. Leiðtogar Súdetta líta á þess- ar tilslakanir af hálfu Tékka sem upp- haf frekari tilslakana, en leiðtogar Tékka segja hinsvegar, 'að þeir hafi með þessu lagt fram mjög mikinn skerf til lausnar deilumálunum í heild. FÚ. Franco undirbýr stórfellda sókn Þýzk blöð ögra Bretum OSLÓ: Havas-fréttastofa skýrir frá því í gær, að Franco muni hafa með hönd- um fyrirætlanir um að auka stórkost- lega her sinn og hefja sókn á öllum vígstöðvum. Þá fylgir fregninni að hann muni sjálfur stjórna sókninni á norðanverðum Spáni. Þýzk blöð gera orðsendingu Franco til brezku stjórnarinnar mjög að um- ræðuefni og segja fullum fetum, að afstaða Englands til tillagna Francos muni ráða úrslitum í Spánarmálunum. Telja þýzk blöð yfir höfuð mjög mikils- vert að samkomulag takizt um til- lögurnar, því ella muni Spánarmálin verða ennþá örðugri viðfangs, en þau hafa verið hingað til. FÚ. Líndbergh hjá Stalín EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN: Lindbergh og frú hans hafa verið í heimsókn hjá Stalin í Moskva. Fór Lindbergh þangað til þess að ræða um rússnesk-ameríska samvinnu í flugmálum í Norðurhöfum. FÚ. Tíðindamaður Nýja dag- blaðsins hefir átt tal við Hallgrím Jónasson kenn- ara og spurzt fyrir um, hvort ekki yrði haldið áfram kennaraskiptum milli ís- lands og Danmerkur eins og að undanförnu. — Það mál verður ekki látið niður íalla, segir Hallgrímur. Laust eftir næstu mánaðamót kemur hingað skiptikennari frá Danmörku. Hann heitir Braae Hansen og er kennari við einn fremsta kennaraskóla Dana, í Haderslev. — Og tilgangurinn með ferð- inni? — Hann er sá, að kynnast uppeldismálum okkar, skólum okkar og starfi þeirra á sem víðustu sviði. En samtímis mun hann nota dvöl sína til þess að kynnast þjóðinni sjálfri, störf- um hennar og lífi og landinu, sem hún byggir. Ég er þess fullviss, að skólar okkar geta haft allmikið gagn af komu Braae Hansen. Hann er einn af forgöngumönnum íþróttamálanna í sínu landi. Hann kennir fimleika og tungumál við Haderslevskólann. Á unga aldri fór hann til Bret- lands, þar sem hann hefir dval- ist samtals 10 ár, mest í London og Edinburgh. Hefir hann starf- að þar sem kennari og ráðunaut- ur í íþróttum við ýmsar virðuleg- ar stofnanir og getið sér ágætan orðstír. Og nú rétt nýlega hefir danska kennslumálaráðuneytið skipað hann yfirmann íþróttamála um allt Suður-Jótland. Þá hefir Braae Hansen verið forgöngumaður um nýstárlega námssstarfsemi innan kennara- skólanna dönsku, starfsemi, sem er mikillar athygli verð fyrir okkur. Danir nefna þetta nám „Lejrskolen". í útvarpserindi, er ég flutti s. 1. vetur um það mál, nefndi ég það víðavangsskóla, eins og í grein, er Nýja dagblaðið birti frá mér ,um sama efni. — Er gert ráð fyrir, að Braae Hansen flytji erindi hér? — Ég býst við að hann haldi fyrirlestur t. d. um „Lejrskolen“ og sennilega um fleiri þætti danskra skólamála. Einnig mun hann flytja erindi um suður- jótsku málin, þ. e. þjóðernir- baráttuna við landamærin, en þau mál öll vekja nú mikla at- hylgi stjórnmálamanna á Norð- urlöndum. Á því kann að velta framtíð Norðurlandanna, hvernig fer um sambúð hinna tveggja þjóða við suður-jótsku landamærin. Og Braae Hansen er sömuleið- is kunnur maður innan þjóð- ernisbaráttu Suður-Jóta. — Hvernig verður dvöl hans háttað hér? — í september er ætlunin að hann ferðist nokkuð um, eftir því sem veðurátta og fleiri á- stæður leyfa. Hér sunnanlands dvelur hann þar til í október að skólar hefjast almennt. Þá er förinni heitið til Akureyrar og jafnvel austur að Lauga- skóla. Að dvöl lokinni þar heim- sækir hann Siglufjörð, ísafjörð og Reykjanesskólann, og er hingað kemur er ráðgerð dvöl á Laugarvatni, Reykholti og í Reykjaskóla í Hrútafirði og ef til vill víðar. í öllum þessum stöðum mun kennarinn flytja erindi með skuggamyndum fyrir nemendur, auk þeirra, sem fyr getur. Ef til vill tekur hann þátt í kennslu o. s, frv. — Hver stendur straum af kostnaðinum við þessar ferðir? — Þetta er annar skiptikenn- arinn, er hingað kemur frá Dan- mörku. Þeir hafa báðir fengið (Framh. á 4. siðu.) Saltsíldin orðin 30 þus. tn. meiri en i Syrra Engin síldveiði undan- farna daga Undanfarna tvo daga hefir verið látlaus stormur nyrðra og skipin því ekki stundað veiðar. í gærkveldi var því spáð, að veður myndi fara batn- andi, en skipin fóru ekki út í gær, svo ekki kemur neinn afli á land í dag. Um miðjan dag 18. þ. m. var salt- síldaraflinn á öllu landinu orðinn 188 þús. tn. eða 30 þús. tn. meiri en á sama tíma í fyrra. Af þessu er matjes- síldin 45 þús, tn., en þegar hafa ver- ið seldar fyrirfram 120 þús. tn., svo enn vantar % af því matjessíldar- magni, sem búið er að selja. Á sama tíma voru ríkisverksmiðj- urnar á Siglufirði búnar að bræða 314.596 mál á móti 344.055 málum í fyrra. Raufarhafnarverksmiðjan var (Framh. á 4. síðu.) Meðferð sláturf járíns hefír batnað á und- anfornum árum, en er ábótavant ennþá Viðfal við Halldór Pálsson ráðunaut í sauðfjárrœkt Halldór Pálsson frá Guð- laugsstöðum í Húnavatns- sýslu hefir nú nýlega tekið við sauðfjárræktarráðu- nautsstarfinu hjá Búnaðar- félagi íslands. Hann hefir að undanförnu stundað nám við háskólann í Edinborg og lauk þaðan prófi í landbúnaðarfræðum árið 1936. Aðalnámsgrein hans var sauð- fjárrækt. Síðan hefir hann um tveggja ára skeið stundað fram- haldsnám, bæði í Skotlandi og Cambridge og að nokkru leyti hér heima á íslandi. Til þessa hefir hann notið nokkurs styrks héðan að heiman, jafnframt því sem háskólinn í Edinborg styrkti hann allríflega í viðurkenning- arskyni fyrir dugnað og hæfi- leika. í sumar, áður en hann kom heim, ferðaðist hann um Norð- urlönd og heimsótti tilrauna- stöðvar og búnaðarskóla. Einnig mætti hann sem einn af full- trúum af hálfu íslands á bún- aðarþingi í Uppsölum. Á síðastliðnu vori varði Hall- dór við háskólann í Edinborg doktorsritgerð, sem fjallaði um samanburð á gæðum kjöts af fé af ýmsum kynjum, einkum skozku fé og kynblendingum. Á ensku nefndist þessi ritgerð „Meat Qualities in the sheep with special reference to Scott- ish breeds and crosses." í viðtali við tíðindamann Nýja dagblaðsins hefir Halldór látið svo um mælt: — í ritgerð minni hefi ég bor- ið saman vaxtarlag, bráðþroska og holdafar fjár af ýmsum kynj- um, rætt um eðli kjötsins og fleira. Jafnframt hefi ég lagt grundvöll að því, hvernig hægt sé með mælingum á skrokkun- um að meta kjötið og gæði þess. Þetta getur haft hagnýtt gildi fyrir þá, sem þurfa að meta kjöt og jafnvel lifandi fé. — Hefir þú gert samanburð á gæðum íslenzka kjötsins og kjöts af skozku fé? — Já. í fyrra sumar dvaldi ég um hríð á Akureyri og gerði þá athuganir á íslenzku dilka- kjöti til samanburðar á jafn- þungum skrokkum og jafngöml- um, skozkum dilkum. (Framh. á 4. síðu.)

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.