Nýja dagblaðið - 21.08.1938, Side 4
REYKJAVÍK, 21. ÁGÚST 1938.
6. ÁRGANGUR — 191. BLAÐ
GAMLA BIÓ
ÞAÐ BYRJAÐI
UM BORÐ!
!;!; Skemmtílegur og fjör- !;:
!:<! ugur gamanleikur, sem í
heíst um borð í stóru
» skemmtiíerðaskipi. >:
!;!; Aðalhlutverk Ieika:
» hin fagra sænska leikkona |:
1 GULL-MAJ-NORIN og |
| HENRIK BENTSON. i
:i; S ý n d kl. 9
!:j: Á alþýðusýningu kl. 7 «
ji: og barnasýningu kl. 5
| Balldog Drummond |
| skersl í leikinn |
jj;; Hin spennandi leynilög-
» reglusaga í síðasto sinn. jij
Sígurður Ólason &
Egíll Sígurgeírsson
Málflutníngsskrifstofa
Austurstræti 3. — Sími 1712.
Hitun Reykjavíkur
(Frh. af 1. síðu.)
þangað til hann kemur loksins
heim aftur, engu nær eftir
margra mánaða útivist.
IV.
Pétur Halldórsson fékk sænsk-
an verkfræðing, Tom Nordenson,
til að endurskoða áætlun Helga
Sigurðssonar og Valgeirs um
hitaveituna. P. H. sagði að Nor-
denson hefði verið trúnaðar-
maður bæði Reykjavíkurbæjar
og sænskra banka, en vildi ekki
upplýsa hver hefði borgað hon-
um fyrir ómakið. Það má segja,
að litlu máli skipti í hvers þjón-
ustu Nordenson verkfræðingur
vann verkið, en skýrsla hans ber
þó greinilega með sér að hann
beitir ekki þeirri gagnrýni á
áætlun bæjarverkfræðinganna,
sem sérfræðingar banka eru
vanir að viðhafa, þegar um er
að ræða undirstöðu að stórum
lánveitingum. Má því ætla að
hinn sænski verkfræðingur hafi
unnið sitt starf í þjónustu
Reykjavíkurbæjar og verið greitt
fyrir ómak sitt af honum. En þá
fara líka að verða skiljanleg sum
atriði í umsögn T. Nordensons
verkfræðings.
í skýrslu T. Nordensons eru
ýmsar veilur. Hér skulu þó aðal-
lega tvær gerðar að umtalsefni.
í fyrsta lagi reiknar hann með
því, að nota heita vatnið í mið-
stöðvarofnum bæjarbúa niður í
45 stig. í venjulegum miðstöðv-
um er vatnið notað aðeins niður
í 60 stig, en útkoman af þessu
verður sú, að stækka þarf stór-
kostlega alla miðstöðvárofna 1
bænum. Bæjarbúar geta nú rétt
ímyndað sér hvílíkur kostnaður
og vandræði myndu af því hljót-
ast, ef stækka þyrfti miðstöðvar-
ofna í húsum yfirleitt um má-
ske 20—30%. í sumum húsum
verður því meira að segja varla
við komið. Önnur veilan 1 skýrslu
DAGBLAÐm
Innilegt pakklæti til allra sem auðsýnt
haia okkur samúð og hluttekníngu við
andlát og jarðarlör föður okkar Bjarna
Þorsteinssonar fyrverandi sóknarprests
á Siglufirði.
Börn og tengdabörn.
Maðurinn minn
Jón A. Guðmundsson
vitavörður á Reykjanesi, er andaðist á Landsspítalanum
11. þ. m., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 22. þ. m. kl. 1 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Kristín Guðmundsdóttir.
Skiptafundur
í þrotabúi Cæsars Mar, eiganda verzlunarinnar Barónsbúð.
verður haldinn í bæjarþingstofunni mánudaginn 22. þ. mán.
kl. 10 f. hádegi, til þess að taka ákvörðun um meðferð eigna
búsins. —
Lögmaðurinn í Reykjavík, 19. ágúst 1938.
Björn Þórðarson.
Nordensons eru útreikningar
hans á kolasparnaði þeim, sem
myndi verða að hitaveitu. Fyrst
ber að geta þess að verð það,
sem hann leggur til grundvallar,
eru 40 kr. sænskar eða ca. ísl.
kr. 45,75. Verð kolanna kominna
á Reykjavíkurhöfn mun nú vera
ca. 33 krónur tonnið. Þjóðhag-
fræðilega skoðað má því ekki
reikna kolin miklu hærra verði.
Þá ætlast T. N.. til að kola-
sparnaður af hitaveitu verði:
Af minni veitunni (168 1.)
33.600 tonn
Af stærri veitunni (325 1.)
61.140 tonn.
í fyrra fallinu reiknar hann
brúttótekjurnar kr. 1.534.711,20,
en í síðara fallinu kr.2.796.102,00.
Nú ætlast T. N. til að reist sé
kola (eða rafmagns) hitunar-
miðstöð til að skerpa á vatninu
þegar kaldast er. Þetta kostar
vitanlega kol eða jafngildi
þeirra í raforku. Þess ber jafn-
framt að gæta, að árlega minnk-
ar nú kolanotkun í Reykjavík
vegna aukinnar rafmagnsnotk-
unar til suðu og hitunar. En
þegar m. a. þessa er gætt og eins
hins, að jafnvél stærri veitan
nær ekki til úthverfa bæjarins,
hvernig dettur þá nokkrum
manni í hug að hægt sé að spara
61.140 tonn af kolum þegar öll
kolaneyzla í Reykjavík að út-
hverfunum meðtöldum er alls
eigi yfir 35.000 tonn og þó líklega
nokkru minni, og fer minnkandi
eftir því sem notkun raforku
eykst?
Enda þótt íbúum Reykjavíkur
fjölgi stöðugt framvegis tel ég
mjög vafasamt að reikna þurfi
með aukinni kolanotkun í bæn-
um vegna þess hve raforka verð-
ur stöðugt tekin meira og meira
til notkunar. Göngum því út frá
35 þúsund tonna ársnotkun á
kolum í Reykjavík og reiknum
með cif. verði kola í Reykjavík
í dag (sem þó er venju fremur
hátt), þá verður þó ómögulegt
að koma virkilegum kolasparn-
aði fyrir Reykjavík hærra en upp
í kr. 1.155.00,00, enda þótt hita-
veita næði til allra úthverfa
Reykjavíkur, sem þó er alls ekki
gert ráð fyrir í hitaveituáætlun-
inni. — í fyrra fallinu er ekki
auðvelt að reikna nákvæmlega
út skekkjuna í kolasparnaðar-
útreikningi Nordensons. Hún er
líklega nær heilli en hálfri milj.
króna. En í síðara fallinu er
kolasparnaðurinn a. m. k. of hátt
reiknaður um ísl. kr. 1.640.000,00
— eina miljón sex hundruð og
fjörutíu þúsundir króna —. Geri
aðrir betur.
V.
En nú hefir, eins og áður er
sagt fengist reynsla um það af
Þvottalaugaveitunni hvað raun-
verulega fæst í brúttótekjur
fyrir lítra af 90° heitu vatni. Það
voru ca. 2800 krónur á ári. Nú
er Reykja-vatnið talið verða 80°
heitt er til Reykjavíkur kemur.
Nordenson vill láta vatnið fara
úr ofnunum með 45° hitá.
Þvottalaugavatnið gefur þannig
45° hitamismun vegna þéss að
það er 90°, en Reykja-vatnið
aðeins 35° hitamismun vegna
þess að það er ekki nema 80°.
Enn er fleira hagræði að 90°
heldur en 80° upphitunarvatni,
en það skal ekki rakið hér. Held-
ur skal reiknað út hve miklar
brúttótekjur myndu fást af
hverjum lítra úr hitaveitunni
frá Reykjum miðað við það
verð, sem áður var fundið við
reynsluna af Þvottalaugaveit-
unni. Það er ofur einföid þrí-
liða:
90° heitt vatn gerir 45° hita-
mismun og fyrir lítrann fæst ca.
kr. 2800,00.
80° heitt vatn gerir 35° hita-
mismun og fyrir hann fæst eftir
sama hlutfalli ca. kr. 2178,00,
sem til hægðarauka má reikna
ca. 2200 kr. í brúttótekjur pr.
lítra úr Reykjaveitu á ári.
Brúttótekjur hitaveitunnar frá
Reykjum verða því á ári sam-
kvæmt þessu:
a. Með 168 1. veitu kr. 369.600,00.
b. — 3251. — — 715.000,00.
„ ____________ '-r
Ég mun ekki fara út í það að
reikna út hvað þetta allt gerir
í prósentum. Þó vil ég segja það,
að sé samkvæmt þessu reiknað
út hvað verði útkoman eftir að
rekstrarkostnaður er frádreginn.
Eftir verður ca. 1% — einn
prósént — í vexti, afborganir
og arð. Áætlunin sýnir þarna
19,9%!
Við hitaveituáætlunina er
fjölda margt annað að athuga,
sem hér skal ekki rakið. Þó skal
eitt dæmi nefnt. Áætlunin gerir
ráð fyrir að öll hús í bænum
taki við heita vatninu strax á
fyrsta ári. Fyrir því er engin
sönnun. Ekki einu sinni líkindi.
í mörgum húsum í bænum eru
alls ekki miðstöðvar og það
myndi a. m. k. dragast nokkur
ár að öll hús á hitaveitusvæðinu
tækju vatnið.
Hér að framan hefir nú verið
sýnt fram á það hvílíkt fádæma
Hlutverk ungra
F ramsóknarmanna
(Framhald af 3. síðu.)
eigið samstarf sem fyrirmynd.
í þeirri von að þetta viðhorf
megi jafnan vera ríkjandi í fé-
lagsskap okkar og að við gleym-
um aldrei þeirri hvatningu í
kvæði Guðmundar Inga, að
hvort þið búið við sjó
eða í sveitum,
þar á samvinnan
hlutverk sitt enn,
segi ég fyrsta þingi Sambands
ungra Framsóknarmanna slitið.
plagg hitaveituáætlunin er.
Furðar svo nokkurn á því, að
erlendir bankar vilji ekki lána
út á svona „projekt“? Eða halda
menn að bankarnir hafi alls ekki
kynnt sér hve mikið af kolum
er brennt í Reykjavík. Eftir þvi
var meira að segja nákvæmlega
grennslast af bönkum þeim, sem
veittu Sogslánið. Rannsókn var
þá látin fara fram á kolanotkun
í Reykjavík og Hafnarfirði og
var hún þá, eftir því sem næst
varð komist, 30 þús. tonn á ári.
Það er þessvegna sannarlega
tími til kominn að láta rann-
saka hvort ekki sé hægt að
upphita Reykjavík með raforku.
Sú rannsókn er tiltölulega auð-
veld, fljótgerð og kostnaðarlítil.
Meirihiuti bæjarstjórnar felidi
tillögu þess efnis frá mér á síð-
asta bæjarstjórnarfundi með
því að samþykkja óþinglega og
fruntalega dagskrá frá „pró-
fessor" Bjarna Benediktssyni.
En það eru til aðrir aðilar en
Reykjavíkurbær, sem geta tekið
það nauðsynjamál upp.
Ég mun 1 næstu grein ræða
um möguleika á upphitun
Reykjavíkur með raforku frá
stækkaðri Sogsstöð.
Sigurður Jónasson.
N Ý J A B 1 Ú
ÍSARA LÆRIRp
| MANNASIÐE |
Sænsk skemmtimynd, ið-
andi af fjöri og léttri
musik. h
::: Aðalhlutverkið leikur hin |
vinsæla
TUTTA ROLF.jj
Aðrir leikarar eru: |
HÁKAN WESTERGREN 1
NOTTI CHANE og fleiri. p
Sýnd kl. 7 og 9. 1
Barnasýning kl. 5:
Lítli lávarðurmn |
| leikinn af «
:í Freddie Bartholmen. «
Kappakstur bifreíða
(Framhald af 2. síðu.)
sínum, hafði Jenkins hækkað
metið um 24 km. Jenkins hvarf
nú frá kappakstrinum og tók
sér fyrir hendur að aka í drátt-
arvél umhverfis Ameríku. Það
kann að vera að honum hafi
fundist að hann þyrfti að hvíla
sig við hæggengari farartæki.
Malcolm og Eyston voru nú
einir um hituna og fáum vikum
síðar hafði Malcolm máð nafn
Jenkins út af metaskránni með
því að auka metið um 195 km.
Nú kom röðin að Eyston að
sigra Campbell. Hann ók 24
stundir í september og meðal-
hraði var 236, 148 km. á klukku-
stund, og 12. júlí 1936 bætti
hann enn metið upp i 240 km.
Eyston varð nú hin margum-
rædda hetja. Jenkins þótti þetta
súrt í broti. Hann hætti þegar
við ferðalagið á dráttarvélinni
og kom til kappakstursbrautar-
inar á saltauðninni. Honum
tókst enn að setja nýtt met í
24 stunda akstri með því að ná
247 km. meðalhraða á klukku-
stund. Eyston ákvað nú að láta
24 stunda aksturinn afskipta-
lausan og snúa sér aðeins að
hraðametinu.
Og þetta tryllingslega kapp-
hlaup heldur áfram. Þrátt fyrir
allar varúðarráðstafanir liggur
dauðinn ætið í leyni við slíkan
akstur og bíður tækifæris.
Þó að Eyston hafi sett flug-
vélamótor, sem orkar 5000 hest-
öflum, í bifreið sína, þá er alls
ekki ósennilegt að einhver
keppinautur hans — hvað sem
hann kann að heita, — komi
fram á sjónarsviðið með 6000
hestafla vél og hertaki efsta
sætið á metaskránni.
Sennilega fær hinn nýi met-
hafi heillaóskaskeyti í svipuð-
um anda og skeyti það, er Ey-
ston fékk frá fyrirrennara sín-
um, en það hljóðaði svo: „Óska
til hamingju. Vel gert! Metin
eru til þess að bæta þau“. Það
kæmi engum á óvart þótt Ey-
ston yrði að hlaupa að síman-
um til þess að senda slíkt skeyti
áður en þetta ár er liðið. Það
verður nýr stórviðburður í sög-
unni.