Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Qupperneq 3

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Qupperneq 3
Hórbekkur úr sænskri kirkju, þar sem sökudólgurinn skyldi hírast frá þvi hringt var til tí8a, þar til hann hafSi fengiS aflausn. hvar hann gæti lndt eða hvar mak- legt væri, aS hann stæði um messuna. 2. Að sjálfsögðu þurftu hin gömlu þjóðfélög að vera við því búin að fullnægja þeim dómum, sem dæmdir voru. Þess vegna var í grannlöndum okkar enginn sá bær, er nokkuð kvað að, að ekki væri í útjaðri hans háreist ur gálgi og steglur, þar sem hræ þjófa héngu jafnvel misserum saman í snör unni. Voru gálgarnir hafðir á hæðum, þar sem mest bar á þeim, svo að ókunnugir menn. er þangað komu, sæju undir eins, að þarna ríktu lög og réttur. Þegar stórbrotamenn voru hálshöggnir, voru líka stundum reist- ir háir höggstokkar, ekki sízt, ef um landráðamenn eða pólitíska sakborn- inga var að ræða, svo sem þá Struen- 'see og von Brandt í Danmörku. Með þeim hætti varð aftakan eftirminni- legri viðvörun. Var meiriháttar saka- mönnum ekið eftir götunum með bert höfuð og hendur bundnar á bak aft- ur, þegar farið var með þá til aftöku- staðar, og múgur og margmenni flykktist jafnan að til þess að horfa á athöfnina. Við höfuðtorg og ráðhús voru sér- stakir staurar, er þeir voru bundnir við, er hýddir voru og brennimerktir. Voru oft á þessum staurum líkneskj- ur með refsivönd á lofti. Þar sem minna var við haft, var notuð nokkurs konar skúffa eða hýðingarbekkur, sem sökudólgar voru lagðir í á grúfu við hýðingu. Gapastokkar voru auð- vitað alls staðar sjálfsagðir, og í hverri kirkju á Norðurlöndum voru sérstakir bekkir, hórbekkir og þjófa- bekkir, er syndarar sátu, þegar þeir biðu aflausnar og fyrirgefningar kirkj unnar. Hér á landi hefur þetta allt verið viðhafnarminna. Það var látið nægja að leggja tré yfir klettaskorur eða gjár, þegar þjófar voru hengdir, og líklega hafa aldrei verið reistir hér höggstokkar, sem verulega kvað að. Ætla verður þó, að einhver umbúnað- ur af því tagi hafi verið á Þingvöll- um. þegar aftökur voru þar tíðastar. Hýðingarbekkur — slcyldi refsitæknin nokkurn tirna hafa komizt á þsð stig á íslandi, að slíkt áhald hafi verið not- að þar? og sjálfsagt hefur verið þar staur, sem sakborningar hafa verið bundnir við, þegar þeir voru hýddir. Ef til vill hafa þeir líka verið til hér og þar á sýslumannssetrum og þingstöðum. Annars fóru slikar athafnir fram í seinni tíð í hesthúskofum og heytóft- um, að minnsta kosti á nítjándu öld, og voru þá ekki aðrir viðstaddir en valdsmenn og vitni. Þó voru nokkrir menn hýddir opinberlega á Austur- velli snemma á síðustu öld. Brotlegu fólki var hér vísað til sætis á krók- bekk við guðsþjónustur. Þangað vís- aði séra Jón lærði í Möðrufelli dóttur sinni, þegar hún var í fyrsta skipti í kirkju eftir að hafa átt barn með vir.numanni. , borgum á Norðurlöndum voru til sérstakir steinar í járnhlekkjum, sem notaðir voru til þess að hengja um hálsinn á lauslátum konum, er gerðar voru brottrækar. Voru þær látnar ganga út úr bænum eða borginni með þessa steina um hálsinn. Þessir steinar vo.ru ekki með öllu ólíkir myllusteinum að lögun, og kannske er þaðan runnið það orðtæki, að. eitt- hvað sé mönnum eins og myllustcinn um háls. Óhætt er að fullyrða, að slíkir steinar hafa aldrei verið hengdir ura háls kvenna hériendis, enda ekkert þéttþýli, þar sem lauslátar konur hefðu teljandi svigrúm. Það lagaboð, er helzt jaðrar við slíkt, er tilskipu.. frá átjándu öld, þar sem svo var mælt fyrir, að leit skyldi gerð í íslenzkum kaupstöðum að lokinni vinnu á kviild- in að kvenfólki, cr þar kynni að hafa falið sig, og færa það yfirvöldum, e£ það fyndist. En eitt var það refsitæki, sem var Framhald á 451. síðu. T I M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ 435

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.