Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Qupperneq 5

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Qupperneq 5
^ * t, l ‘ ' £ Sigríður Einars frá 'Munaðarnesi. .Einar Karlsson X spurði ég. Og Sigríður varð fyrir svörum: — Jú, hann var stundum þreyttur, eftir að heilsan bilaði. Annars var það afskaplega misjafnt, hvernig honum líkaði verkið eftir því, hvar hann var staddur. Kvæðin eru mörg og löng og vitanlega ekki alls staðar jafn skemmtileg, og hann hafði stundum orð á því, að einn kaflinn væri öðrum leiðinlegri viðureignar, en hann yrði að taka hann með. En þegar hann var að þýða skemmtilega kafla, sem áttu vel við hann og voru mikill skáldskapur og gáfu honum færi á að beita orðgnótt sinni og ritleikni, þá var hann í essinu sínu. Annars var það ekki siður hans að kvarta og kveina. Hann átti svo mikla kímni- gáfu og gamansemi, að hún smitaði alla í kringum hann, og hann hafði ævinlega lag á að gera gott úr öllu. Og þessi sívakandi glettni og gaman- semi fylgdi honum alveg til síðustu stundar. Það eru ekki allir, sem eru svo hamingjusamir. — En hann hefur verið svo mikill „stemningsmaður", að verkefnin hafa fallið honum ákaflega misjafnlega i geð? — Já, það leikur víst enginn vafi á því. — Hvaða bók hafði Karl mest gam- an af að þýða? — Þær voru orðnar býsna margar, sem um hendur hans fóru. Hann hafði áreiðanlega ýndi af þýðingunni á Kalevala, en hún var vandasöm og erfið og mikið þolinmæðisverk, þó að hún gæfi honum oft tækifæri tH að njóta sín. En ég héld, að engin bók, sem hann þýddi, hafi verið hon- ttm eins kær og Góði dátinn Svejk, segir Sigríður. — Þeir áttu vel sam- an, o,g þar gat hann óspart beitt kímninni. Hann íslenzkaði líka og um- samdi leikritið, sem samið var upp úr sögunni um góða dátann og sýnt hér í Þjóðleikhúsinu, og þá man ég, að hann var ánægður við skrifborðið og sérstaklega fljótur. Fram úr skrifborði Karls heitins dregur Sigríður þykkan bunka af gulnuðum, handskrifuðum blöðum. Það er skrifað handrit Karls ísfelds að Kalevala. Hún réttir mér tvö blöð og segir um leið: — Ég vélritaði allt saman eftir þessu handriti, því að hann handskrif- aði alla þýðinguna, og mér fannst sér- T I M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ 437

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.