Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Side 9

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Side 9
LEITAD LÆKNIS SÍÐARI ÞÁTTUR FRÁSAGNAR í Tungu var okkur tekið tveim hönd um hjá Páli bónda Þorsteinssyni. Eg hresstist við að fá góða næringu. Með an numið var staðar, barst talið að því, hvernig á ferðum mínum stæði. Mór var sagt, að héraðslæknirinn mundi aldrei fara suður. „Hann' er ekki mikill ferðagarpur •— og fært aðeins léttleikamönnum að fara þennan veg“. Eg sagðist samt ætla á leiðarenda. Það er ekki langt frá Tungu út í Búðakauptún. Páll fékk mér mann til fylgdar og við gengum — engir hest- ar heima við bæ og komin nótt. Gísli beið í Tungu. Eg heyrði, að Páll sagði við hann, þegar ég var að fara út. „Þetta er meiri andskotans dugnað- urinn í þessum manni, að hafa komizt þetta og ætla að halda áfram“. Georg . lækni Georgssyni varð að orði, þegar ég bar upp erindið við hann: „Ja, guð hjálpi mér. Hvernig hald- ið þér, að þetta sé nú fært — að fara suður í Lón, suður í Skaftafellssýslu?" „Það veit ég ekki, en á þá maðurinn að deyja, án þess að tilraun sé gerð til að hjálpa honum?“ spurði ég. „Ef þér treystið yður til að komast fljótt suður, getið þér bjargað honum alveg eins og ég. Þér fáið hjá mér áhöld og ég sýni yður, hvernig á að nota þau“. Áhöldin voru dregin fram, nám- skeiðið hófst. Þegar ég hafði sann- fært okkur báða, lækninn og sjálfan mig, um það, að ég kynni með þau að fara, var kvatt og gengið til dyra. Eg ætlaði að hefja heimförina um nóttina, vissi, að ekki stóð á fylgdar- manninum að kafa mjöllina í Tungu- dai. — Sigurður Jónsson, búfræðingur á Reyðará, og Anna, kona hans, voru stödd hjá frú Þóru Schou, systur Önnu, er búsett var á Fáskrúðsfirði. Höfðu þau farið í sláttarlokin þessa fundaferð. Eg náði snöggvast tali áf þeim; frétti þá, að skip lægi þarna við bryggju ferðbúið á leið til Djúpavogs. Eg beið ekki boðanna, fór um borð og bað um far. Það gekk greiðlega. — Sigurður á Reyðará ráðgerði að snúa heimleiðis næstu daga — um Stöðvarfjörð og Hvalnesskriður. Hann lofaði að taka hestana, sem ég skildi eftir á Gilsá. Var Gísli Eiríksson beð- inn að sjá til þess, aö þeir kæmust út aö Eydölum, áður en Sigurður færi suður hjá. — Landfestar leystar, siglt út fjörðinn. Eg talaði við ýmsa farþega, Færey- inga, sem voru á leið heim til sín — höfðu verið í veri um sumarið á Vatt- arnesi eða einhvers staðar á Austfjörð um. Eg fékk bæli í lestinni, bað Færey- inganna að vekja mig, þegar komið yrði á Djúpavog. Þeir lofuðu því upp á æru og trú. En ég sofnaði bara aldr ei; var búinn að vera svo óeðlilega lengi svefnlaus. Á iaugardagsmorgun- inn hafði verið farið eldsnemma á fætur, þar sem stórhirðing var fram- undan. Nú var komin aðfaranótt þriðjudags — ég hafði ekki sofið einn einasta klukkutíma, aðeins blundað í Berufirði, sem áður er sagt, og horf ið minni undir fjöllunum innan Al- mannaskarðs, þegar ég var að hefja ferðina. Skipið kom til Djúpavogs fyrir há- degi. Bjart í lofti. Föl á sléttlendi, fann- kyngi í fjallgörðum. Þegar ég steig á land, kom ég auga á hnakkhest; þekkti hestinn, hann var frá Búlandsnesi. Eg spurði nokkra næstadda menn, hvort sá, sem ætti ráð á hestinum, væri þarna í hópnum. Því var neitað. Enginn vissi, hvar maðurinn var niðurkominn, sennilega í húsum — ef til vill hinum megin við voginn. Þorvaldur Pálsson Sögumaður: Jón Eiríksson í Volaseli Skrásetjari: Sigurjón Jónsson frá Þorgeirsstööum „Jæja, þegar hann spyr um hestinn, segið þið að ég hafi tekið hann.“ Svo fór ég bara á klárnum, reið greitt allar götur inn að Búlandsnesi, sagði við frú Ragnhildi Thorlaeius: „Eg stal þessum hesti úti á Djúpa- vogi. Þú átt hann víst. Hvað má ég fara langt á honum?“ „Svo langt, sem þú vilt“, sagði hún. Á Þakeyrinni, sem er vestan við Hamarsfjörð, rakst ég á Rauð frá Svínhólum. Hann hafði ekki farið neitt óðslega að skila sér heim — leit helzt út fyrir, að hann væri að hinkra eftir mér. Eg skipti um reiðskjóta, skildi hest inn frá Búlandsnesi eftir, hélt áfram í reiðtygjunum. Austarlega í Melrakkanesskjólunum — hverjum mæti ég þar? — nema Ó1 afi Thorlacius, lækni .... Hann var að koma landleið úr Reykjavík. Fór á sunnudagskvöldið yf ir Hornafjarðarfljót og frétti af ferð- um mínum. Kom við í lyfjabúðinni á Höfn. Aðfaranótt mánudags gerði ákaft úrfelli suður í Lóni, hélzt linnulaust Georg Georgsson T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 441

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.