Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 08.07.1962, Side 13
Iei3angurir.il komsi að, sem þangað fór 1941. Upphaf menningar á Krít er óljós. Það er sérkennileg staðreynd, að borgirnar, hallirnar og garðarnir höfðu aðallega risið á austurhluta eyj- arinnar. Þetta virðist einkum hafa stafað af því, að fyrstu menningar- straumarnir hafa borizt úr austur- átt. Upphaf margra þeirra var í Litlu Asíu en annarra í Egyptalandi. Strönd Litlu-Asíu opnaði heim Miðjarðarhafs fyrir Súmerum og öðrum þeim, sem byggðu sléttur Mesópótamíu. Einhver elzta siðmenning. sem þekkt er, er mynduð af Súmerum. þessari óskiljanlegu þjóð, sem stofn- aði fyrstu borgríki. sem heimurinn þekkir, með fastmótuðu þjóðfélagi og borgarsniði, varin virkisveggjum, herjum og öðru því, sem nauðsynlegl var til verndar þjóðfélaginu í heimi öfundsjúkra nágranna. Ýmis afbrigði af lifsháttum Súmera fluttust stöð ugt vestur á bóginn og slæddust rneira að segja til Mið-Evrópu jafnvel un* 3000 árum fyrir Krists burð. Lrot af þessari menningu Mesópóta- míu náðu ströndum Litlu-Asíu og bár- ust þaðan yfir til Krítar, ef til vill með framtakssömum ævintýramönn- um. Að minnsta kosti virðast fyrstu menningarhættir Krítar birtast full- mótaðir, en ekki hafa þvóazt stig af stigi frá steinöld hinni nýju, eins og eðlilegast væri, ef þeir væru ekki að- komnir. Fyrstu húsunum á Krít svip ar mjög til bygginga Litlu-Asíu, er, ganga ekki í gegnum frumstæð þró^ unarstig. Fyrstu leir'ker bronzaldar á Krít eru þegar vel gerð og þola samjöfnuð við önnur. Og næstu 500 ár voru tími mikilla framfara á öll- um sviðum. Frá 3000 til 2500 f. Kr. voru gerð- ar fyrstu tilraunir til tryggingár al- mermrar velmegunar. Næsta hálfa ár- þúsundið, frá 2500 -2000 f. Kr. þróast * byggingaiist, skipulagning borga, mál- aralist, leirkerasmiði, skartgripagerð og höggmyndaiist. Á þessum sama tlma varð leturgerð Krítverja til. Hún , er ekki skyld neinni annarri, hvorki í t Asíu né Egyptalandi, en á öðrum stöð- ' um hefur ekki verið fundin upp sjálf- ; - stæð leturgerð. Það er því eitt af merkustu atriðunum í sögu Krítar, að þar var fundin upp hentug og yfir- veguð aðferð til skriftar, annaðhvort á leirtöflur eða með penna og bleki á papýrus eða aðra slétta fleti. Þetta var algerlega krítversk uppfinning og á ekkert skylt við fleygrúnir Mesó- pótamíu né myndletur Egyptalands. | En hvernig gat öll þessi leikni og hugkvæmni þróazt á svo lítilli eyju sem Krít? Eg tel svarið vera, að Krít náut j stuðnings af tvennu — loftslagið var | allt að því fullkomið, og eyjan var næstum einangruð. Svo mikil vöm var að hafinu, að ekki þurfti að' verja landamærin eða hafa áhyggjur af ár- ásum sjóræningja. Loftslagið er þann ig, að aldrei er mjög kalt á veturna, en nægilega heitt á sumrin til þess að ávextir nái að þroskast vel og uppskerubrestir af völdum veðurs ó- þekktii. Lítið er um rigningar, en þó nægilega mikið, og gnægð vatns er að fá úr ám og fjallalækjum (and- stæða Kýpur, þar sem sífelldur vatns- skortur er). Staðurinn er sem valinn til þessarar menningartilraunar. Krít átti ekki við að stríða vatnsveituerfið- ieika Mesópótamíu. Sandstormar Egyptalands eða steikjandi sólarhiti hrjáðu ekki íbúana. Á Krít voru enn fremur skógar og eyjan var sjálfri sér nóg með allt nauðsynlegt byggingar- efni. Aftur á móti skorti bæði Egypta- land og Mesópótamíu margt; Egypta- land iiafði nógan stein, en minna var um við; I Mesópótamíu var varla nokkuð af steini hæfum i byggingar og litlir skógar, Segja má því, að Krit hafi byrjað sitt skeið með pálm Annar hagur eyjarinnar var ein- angrunin. Eins og að framan greinir, var norðurströndin hættuleg — og er það jafnvel enn skipum nútímans — og erfitt um yik á suðurströndinni sökum hafnleysu. Þá vtt' sjórán á þessum tímum ekki ýkja ognvekjandi. Siglingar voru varla til annars en nauðsynlegustu flutninga og hugsan- legir sjóræningjar að öllum líkindum fáir og vanmáttugir. Krítverjar óttuðust því enga, þar sem þeir voru óhultir fyrir villimönn- um meginlandsins og þá varla nokk- ur, sem þeim gat staðjg stuggur af. Um 2000 f. Kr. voru bæir og borg- ir fullmótaðar. 1 fyrstu virðast hafa risið upp sjálfstæð fylki, hvert með sínum prinsi eða baróni, að líkindum stiiðið eftir borgríkjum Súmera og smákóngum þeirra. Stórar borgir ris-u upp, svo sem Knossos (skammt frá Kandia), Fæstos (tippi í eynni), Mallía (við ströndina ekki langt frá Kandía) og aðrar smærri borgir og auðguðust vel á framleiðslu lands og ann í höndunum. Súlur og stoðir hallarinngangsins I Knossos (endurreist). Súlurnar eru úr gips- kalki og málaðar dökkrauðar. T I M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ 445

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.