Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Qupperneq 5

Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Qupperneq 5
þurfurn á kröftum allra landsins barna að halda, megum ekki við því, að menn sérhæfi sig svo mjög, að þeim nýtist kannski eins og einn tiundi hluti þeirra hæfileika, sem með þeim búa. Um þetta ætti. að vera óþarft að deila. Fjöthæfni er allt annað en hringlandaháttur. Og nú erum við Páll setztir hér þvor andspænis öðrum, og mig langar til þess að kynna hann ofur- lítið fyrir lesendum mínum. Að vísu veit ég, að útvarpshlustend- ur þekkja vel rödd hans, og þeir, sem að staðaldri glápa á sjónvarp, rnunu flestir þekkja hann í sjón. En með þessu tvennu er ekki mik ið sagt, og því ber ég upp fyrstu spurningu mína: — Hvar ertu fæddur, Fáll? — í Fljótstungu í Hvítársíðu. Inni undir Arnarvatnsheiði. — Varstu veðurglöggur, þegar þú varst sveitastrákur? — Nei. Það lield ég ekki. En hins vegar var ég auðvitað í nánu sambandl við náttúruna. Við sótt- um til dæmis silungsveiðar langt inn á Arnarvatnsheiði, allt að sex klukkutíma lestagang. — Það hefur verið ekki svo lítið spennandi, svona á uppvaxt- arárunum? — Nærri má nú geta. Hið dá- samlegasta, og jafnframt hið ógn legasta, sem ég inan í sambandi við veðurfar, er eimnitt tengt Arn arvatnshefði. Það veit enginn nema sá, sem reynt hefur, hversu dásam- legt það er að koma í fyrsta áning arstað frainan við fjallgirðinguna í vorsól og lognl, löngu fyrir venju lega fótaferð. — Þið hafið auðvitað oft lagt eldsnemma af stað? — Já, já. Það kom fyrir, að við fórum klukkan þrjú að nóttu og komum aftur heim samdægurs, eða réttara sagt: Fórum þetta í einni lotu, án þess að leggja okk- ur nokkurn tírna. — Og svo heldur þú út í heim- inn og hefur námsbrautina, þegar þú ihefur aldur til? — Já. Og það er séra Einari Guðnasyni í Reykholti að þakka eða kenna, að ég fór í skóla. Þetta hófst með því, að ég fór í Reyk holtsskólann — ungur, miðað við það, sem þá gerðist. Ég var víst sexfán ára. — Og séra Einar hefur hvatt þig til áframhalds? — Já. Hann hvatti mig með ráð- um og dáð, og hvort sem honutn verður lögð út sú hvatning til hróss eða lasts. þá er hann stór- merkur nr>aður, fjölfróður og skemmtilegur. Ef einhver skyldi nruna eftir spurningakeppninni, Sýslurnar svara, sem útvarpið var með hér um árið, þá má vel minn- ast þess, að þar var séra Einar for- ingi Borgfirðinganna, og það var einmitt þeirra lið, sem lokasigur inn vann. — Þið Borgfirðingar hafið nú löngum staðið framarlega í menn- ingarlegu tilliti, samanber öll ykk- ar ntörgu skáld og rithöfunda? — Já Égheld, að fullyrða rnegi, ' r í M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ 13

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.