Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Page 8
Kalmanstunga, elnn kunnasti bær á landinu a8 fornu og nýju, ó'ðal Kristófers Ólafssonar. fyrir viðmælanda minn, sem alla daga þarf að vera með hugann full an af vandamálum veðurfræðinn ar. Og því spyr ég beint og vafn- ingalaust: — Trúir þú því, Páll, að menn geti dreymt fyrir veðri? — Neí. — Það geri ég aftur á móti, og þó er það raunar ekki trú, heldur vissa, byggð á langri reynslu. — Nefndu mér dæmi. — Já. Hvort óg skal. Eins og þú veizt, fæddist ég og ólst upp i sveit og átti heima á fæðingar- bæ míilum þar til ég var tuttugu og fjögurra ára. Rétt fyrir neðan túnið rennur falleg bergvatnsá, og hún var þannig alla þá stund, sem ég þekkti til þarna, að hún var bókstaflega krök af laxi og sil- ungi, ef henni var ekki þvj. meir misboðið með rányrkju. En sá kafli árinnar, sem tilheyrði mínum bæ, var heldur óhægur til veiða, hylj- ir fáir og ekki góðir. Þess vegna var alltaf lítill veiðiskapur heima. En auðvitað hafði ég gaman af veið um eins og allir sveitastrákar. Nú kom það oft fyrir, að mig dreymdi að ég væri að veiða í ánni, og ef mig dreymdi, að ég veiddi tll dæm- Is einn góðan lax og tvo eða þrjá litla laxa eða bara silungatitti, þá var það alveg vfst, að nú kom elnn góður þurrkdagur og svo tveir eða þrír flæsudagar, ekki ýkja merki- legir. Þetta gerðist margsinnis og brást aldrei nokkurn tíma. — Var þetta nú ekki bara af því að þú hafðir verið að hugsa um veiðiskap daginn áður? — Ekki held ég það. Þetta kom engu síður fyrir að vetrinum, þeg- ar engum manni datt veiðiskapur I hug, og þá táknaði eiat? eða tveir góðir laxar jafnmarga hlákudaga og svo eins hinir smærri — þeir voru jafn margir og góðviðrisdag- arnir í kringum hlákuna, eða smá- bloti, sem ekki gerði mikið gagn. — Hvernig viltu skýra þessa drauma þína? — Ég játa það fúslega, að ég er enginn vísindamaður, hvorki á sviði hug- né raunvísinda, en vit- um við nokkuð nema að einhvers staðar í ómælisgeimi tilverunnar séu þeir til, sem sjá lengra fram 1 tsímann en við? Að þeir blátt áfram vlti veðrið miklu lengra íram í tímann en þið á veðurstof- unni — og geti síðan gert okkur viðvart? — Ja, ég geri hvorki að játa því né neita, en ekki erurn við, veður- stofumenn, 1 sambandi við neina slíka veðurfræðinga, þótt sjálfsagt væri þáð bæði gagnlegt og skammtilegt, ef um það væri að ræða. - *.ís hugsaði mér nú ekki heldur, Páll, að fara að leika hér hlutverk kerlingarinnar, sem hann Þangbrandur sálugi ætlaði að fara að kristna, hérna um árið — sú gamla sneri því upp í það að boöa honum heiðni. Og þá skulum við snúa okkur að nærtækari hlutum. Við, sem alizt höfum upp i sveit og veitt hegðun dýra athygli, þekfcj um það sjálfsagt allir, að það er eins og skepnur viti á sig veður, oft með býsna löngum fyrirvara. Hestar skjóta höm í veðrið, „snúa rassinum í vindinn“, oft löngu áður en óveðrið skellur á. Mörgum klukkustundum áður, jafnvel heilu dægri áður en veðurbreytingin er komin á þann stað, þar sem þeir eru staddir. Sarna og svipaðs 'hátt- ernis verður vart hjá útigöngufé eða fé, sem látið er liggja við op- ið, eins og við köllum það fyrir austan, og hefur vanizt á að gæta sín sjálft. Kann veðurfræðin nokkr ar skýringar á þessu fyrirbæri? Gerir óveður boð á undan sér með einhverri loftslagsbreytingu, sem skepnurnar finna i húð sinni og skrokki, þótt við verðum hennar ekki vör, af því að við höfum fjar- lægzt móður náttúru? — Vissulega hef ég séð slíka hegðun hjá dýrum, en þó er nú þetta fremur spurning til þess að leggja fyrir dýrafræðinga eða sál- fræðinga. Það er erfitt að beita á U ItHINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.