Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Side 18

Tíminn Sunnudagsblað - 18.01.1970, Side 18
 Bjarnl fr& Vogi lýsti því yfir, að Sjálfslföðisflokkurinn styddi ekki stjórnina, nema einn maður. Fram sóknarmetin mögluðu talsvert yfir þessum úrslitum: „Aðalstefnurnar tvær eru orðnar svo ljósar“, sagði Tíminn, „að ekki verður um villzt. Á öðrum hvorum grundvellinum, hægri og vinstri, átti stjórnin að myndast. . . . Það eru höfuðmis- íök Jóns Magnússonar, að hann gerði enga aivarlega tilraun til þess að fara þessa leið. í stað þess leggur hann áherzlu á hitt, að halda saman hinum sundurleita Heimastjórnarflokki, að fá í lið með sér nokkra langsummenn og mynda meirihluta með þeim og Fraimsóknarflokknum. í þvi skyni hélt hann æ fram Magnúsi Guð- mundssyni sem ráðherraefni, enda var það fullvíst, að hinn langsum- lyndi hluti Heimastjórnarflokksins gat fellt sig hið bezta við hann“. En samtímis því að stjórnar- myndunin tókst, gerðist líka ann- að. Hópur þingmanna, sem flestir voru úr liði langsara, lýstu yfir bandalagi sín á milli utan við gömlu flokkana. Einn þeirra var Magnús Guðmundsson, og meðal annarra í hópnum voru Sveinn Björnsson, Jakob Möller, Björn Kristjánsson og Gísli Sveinsson. Og nú kvað Tíminn upp úr með það, sem hann hafði áður tæpt á: „Kunnugir vissu, að Magnús Guð- mundsson var alltaf fullkominn langsari, hafði skrifað væmið lof um Einar Arnórsson í Óðin í vor sem leið og mælt fast með E.A. í samninganefndina 1918.“ í Morg- unblaðinu kvað við annan tón. Það sagði um þetta bandalag, að það væri „góður grundvöllur undir nýja og hreina flokksskipan“. Það hafði tekið talsverðan tíma að koma landstjórninni á laggim- ar, og við sitthvað var fleira að sýsla en bræða hana saman. Trún- aðarmenn Sjálfstjórnar höfðu kært kosninguna í Reykjavík, því að sannazt hafði, að fjórtán menn, sem ekki höfðu náð kosningaaldri, höfðu greitt atkvæði. Á fsafirði hafði Jón Auðunn — eini Heima- stjórnarmaðurinn, sem gekk í hið nýja bandalag, sigrað Magnús Torfa son með örfárra atkvæða mun, og þaðan kom nú Guðmundur Guð- mundsson frá Gufudal með yfirlýs ingu fjöguira manna, sem sögðu, að áhugamnður einn um kosning- r- RICHARD BECK: Þrjár lausavísur Vormorgun Dögun húm, sem himin fól, hratt á flótta rekur. Ljúfu brosi, blessuð sól, blóm með kossi vekur. una hefði boðið sér mútur, nokkra tugi króna, ef þeir kysu Jón. Ein- hverjar misfellur höfðu átt sér stað víðar. Eftir þjark og þref voru þó sam- þykkt kjörbréf allra nema Jakofos Möllers. Það þýddi nýja og tvísýna kosningu í Reykjavík. Sú tilhliðr- un var þó gerð að stytta alla fresti, svo að hún gæti farið fram fyrir- varalítið. Jakob Möller bauð sig að sj'álfsögðu fram á ný, og marg- ir munu foafa búizt við því, að Jón Magnússon gerði það líka. Því var jafnvel fleygt, ef til vill með tals- verðum sanninduim, að Jakob hefði verið gerður afturreka til þess, að Jón gæti náð þingsætinu. En hafi svo verið, þá vildi hann ekki þekkj ast það. Hann hafnaði frekari þátt- töku í þessum leik. Aftur á móti bauð Sveinbjörn Egilsson, skrif- stofustjóri Fiskifélagsins, sig fram. Þó kom aldrei til neinnar kosn- ingar. Sveinbjörn tók framboðið aftur, og Jakob varð sjálfkjörinn í þetta skipti. Enn eitt ágreiningsefnið á þessu þingi var vátnalögin. Þar var sá kostur tekinn að skjóta öllu á frest —stjórnarfrumvarp til vatna laga og frumvörp um vatnsonku- sérleyfi og einkaleyfi fengu að liggja í salti til betri tíma. Enn grúfði þoka yfir hinu poli tíska akurlendi, og engir sáu enn fyrir, hverjir það myndi erja til beztrar uppskeru hin næstu ár. En menn héldu áfram að þreifa fyrir sér. Um sumarið sendi Gísli Sveins son tuttugu þingmönnum bréf og bauð þeim að ganga í nýjan flokk, Þjóðfrelsisflokkinn. „Átti þannig að endurfæða langsumflokkinn Fomvinir Gullnir fíflar gægjast upp úr moldu, glókoll þeirra morgunkæla bærir, æskuvinir ættarlands af foldu eru þeir og huga mínum kærir. Fjallasýn frá Viktoríu BJáfrjöll hátt við himin ber, hvítur faldur tiginn er, finnst mér eins og faðm sinn hér „fjalladrottning“ breiði mér. með uafnspjaldi yfir dyrum“, sagði Tíminn. En nafnspjialdið var aldrei sett upp. Eitt af því, sem samþykkt var á hinu skammvinna þingi 1920, var fjölgun Reykjavíkurþingmanna úr tveim í fjóra. Var því boðað til kosninga í ársbyrjun 1921, og skyldi kjósa þrjá þingmenn, því að nú hafði Sveinn Bjömsson verið skipaður sendiherra í Kaupmanna- höfn. („Einn legáti á ári“, var kj'ör- orðið, sögðu þeir, sem sparsamast- ir voru.) Undir árslokin kom upp orðrómur um stofnun svonefnds Borgaraflokks, sem „talið er, að sé að myndast milli Sjálfstjórnar og jafnaðarmanna“. Þórður Sveins- son, læknir á Kleppi, var fyrst tal- inn burðarás þessarar hreyfingar. Þegar til kom bauð hann sig fram í nafni svokallaðs kjósendafélags. Svo fór þó, að framboðin urðu fjögur. Sjálfstjórn riðlaðist, og ekki hafði Jón Magnússon geð í sér til að bjóða sig fram af hálfu Heimastjórnar — og leitaði enda aldrei framar eftir þingkosningu í Reykjavík — og kom Jón Þor- láksson landsverkfræðingur í hans stað, en Magnús Jónsson dósent bauð sig fram af hálfu langsara á lista „óháðra borgara“. Jón Bald- vinsson var efstur á lista jafnaðar- manna, og Þórður á Kleppi á lista sinnar hreyfingar. Og enn urðu úrslit óvænt í Reykjavík. Jafnaðarmenn reyndust drýgstir og fengu nær 1800 at kvæði, en Jón Þorláksson og Magn- ús Jónsson rúm fjórtán hundruð hvor. Hreyfing Þórðar Sveinsson- ar náði aftur á móti tæpum þús- und atkvæðum. 26 T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.