Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1972, Qupperneq 7
Jólastjarnan
„Mamma, segðu okkur söguna um
jólabarnið i Betlehem”, sagði Disa
litla og settist i fangið á mömmu sinni,
eins og hún var vön, þegar hún bað
hana að segja sér sögu.
„Já.en Djsa min, jólin eru ekki kom-
in”, sagði mamma og strauk hárið á
telpunni sinni, sem var nýorðin sex
ára gömul.
„Það er Þorláksmessa i dag og þá
koma jólin á morgun”, sagði Lárus,
bróðir Disu, tiu ára drengur „Þú getur
beðið með söguna þangað til, Disa
min”.
„Æi nei”, sagði Disa. „Mamma, þú
ert búin að baka allar góðu kökurnar,
svo að þú getur vel sagt okkur sögu”.
Og mamma lét undan Disu litlu eins
og venjulega, þvi að hún bað svo vel,
giókollurinn litli.
„Seztu þá hérna lika Lárus minn,
meðan ég segi sögunal’sagði mamma,
og Lárus lét ekki segja sér það tvisvar.
Hann hafði lika yndi af sögum eins og
systir hans”.
„Einu sinni endur fyrir löngu var
sjómaöur á leið heim til sin gangandi
967
Sunnudagsblað Timans