Morgunblaðið - 17.05.2004, Blaðsíða 47
en að dæla veitunnar bili eða slái út
og við það frjósi í lögn í sumarhús-
inu. Þegar þrýstingur kemur á ný
streymir sjóðandi heitt vatnið inn í
húsið. Því er hér mælt með að nota
lokað kerfi með frostlegi, þ.e. heita
vatnið er tekið inn á millihitara sem
hitar frostlög á ofnakerfinu. Þrátt
fyrir að hitaveitan fari af húsinu þá
frýs ekki í ofnakerfinu og þegar
þrýstingur kemur á kerfið á ný þá
fer allt í eðlilegt horf.
Rétt er að taka fram að alltaf skal
loka fyrir heitt og kalt neysluvatn
inn í sumarhúsið og helst að tæma
lagnirnar á veturnar þegar farið er
frá húsinu eftir dvöl.
Aðrir orkugjafar eru eingöngu
notaðir þegar dvalið er í húsinu.
Gas er einkum notað til upphitun-
ar með lausum gasofnum á hjólum.
Þeir eru ýmist eina upphitunin eða
notaðir með öðrum orkugjöfum til að
hraða upphituninni eða hita betur
ákveðin rými. Gas er frekar dýr
orkugjafi eða um tvöfalt dýrari en
rafmagn.
Stofnkostnaður við gas er aftur á
móti mjög lágur, og auðvelt er að
nálgast gasáfyllingar.
Kol voru mikið notuð í gamla daga
en notkun þeirra hefur dregist veru-
lega saman. Kolaeldavélar eða ofnar
gefa mikinn hita frá sér og margar
tegundir kolaeldavéla eru með hit-
ara fyrir vatnsofna þannig að hægt
er að kynda upp fleiri herbergi en
það sem eldavélin er í. Aftur á móti
er mikil og óþrifaleg vinna við að
halda eldinum við og ekki hægt að
fara lengi frá bústaðnum í einu án
þess að eldurinn kulni. Á síðari árum
hefur orðið erfiðara að fá kol í hæfi-
legum einingum en þau fást þó enn á
nokkrum stöðum.
Steinolíuofnar eru vinsælir í sum-
arhúsum og er notkun á þeim svipuð
og á gasofnunum, þ.e. einkum sem
hitun í smærri hús og einnig sem
auka hitun með öðrum orkugjöfum.
Bruninn í nýju steinolíuofnunum er
það hreinn að lykt angrar ekki þótt
hann sé notaður heilu sólarhring-
anna til að halda hita í húsum.
Viður er einkum notaður til að
brenna í arninum eða sérstökum við-
arofnum. Oftast er um að ræða við-
bót við aðra orkugjafa og ekki síst til
að skapa rétta andrúmsloftið í sum-
arhúsinu.
Rafmagn frá ljósavél. Þessi kostur
á ekki við í sumarhúsalöndum. Aftur
á móti er þetta kostur þar sem eitt
eða í öllu falli fá sumarhús eru á
staðnum. Hávaða frá ljósavélinni
verður að deyfa til að fólk geti notið
dvalarinnar á staðnum. Norðmenn
hafa þróað frágang við slíkar ljósa-
vélar í hálfgerðum jarðhýsum þar
sem útblásturinn er leiddur í gegn-
um jarðveginn til að deyfa hávaðan
frá útblæstrinum.
Kostnaður
Erfitt er að gefa upp kostnað við
hitun sumarhúsa því margt hefur
áhrif á hitaþörf sumarhússins.
Til að geta gefið samanburð á hit-
unarkostnaði sumarhússins þá gaf
ég mér um 50 fm sumarhús sem
haldið er um 7°C heitu þegar ekki er
verið í húsinu, og að heildarorku-
þörfin ársins sé um 5.500 kWh.
Ekki er gott að halda hærri hita á
veturna í sumarhúsum þegar ekki er
dvalið í þeim. Ef haldið er fullum hita
allan veturinn ofþornar húsið þar
sem enginn raki verður til í húsinu
þegar enginn dvelur í því og við það
fellur raki hússins niður.
Höfundur er verkfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 C 47
2ja herb.
Búðagerði 2ja herbergja íbúð á 1. hæð
með svölum sem snúa í vestur. Komið er
inn í hol með ljósum flísum og góðum fata-
skáp. Baðherbergið er með dúk á gólfi,
hvítri innréttingu og baðkari. Í eldhúsi er
eldri innrétting með dúkaflísum á gólfi.
Svefnherbergið er dúklagt. Rúmgóð og
björt stofa með teppi á gólfi. Verð 9,2 millj.
3ja herb.
Bogahlíð Mjög falleg 3ja herbergja íbúð
á 1. hæð, jarðhæð, í fallegu húsi við Boga-
hlíð í Reykjavík. Rúmgóða stofa, tvö góð
svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
Sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla í
risi. Nýtt gler er í allri íbúðinni. Stigahús er
dúklagt og málað í ljósum lit. Frábær stað-
setning. Verð 12,9 millj.
Engihjalli 3ja herbergja 89,2 fm íbúð á
10. hæð með stórglæsilegu útsýni í vestur
og norður. Esjan, Faxaflói og Reykjanes
blasa við í öllu sínu veldi. Eign á góðum
stað. Verð 12,2 millj.
Torfufell Falleg 3ja herbergja íbúð á 3.
hæð í góðu fjölbýli. Íbúðin er öll nýmáluð.
Falleg hvít eldhúsinnrétting. Parket á stofu
og svefnherbergi. Sameign er mjög falleg.
Stutt í alla þjónustu. Góð fyrstu kaup.
Verð 9,7 millj.
4ra herb.
Álfholt - Hafnarf. Falleg 99 fm 4ra
herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Út-
sýni er til suðurs og norðurs. Íbúðin er öll
nýendurgerð, þ.e. innrétttingar, málning og
gólfefni. GETUR LOSNAÐ FLJÓTT. Áhv.
9,1 millj. Verð 13,6 millj.
4ra til 7 herb.
Austurberg 4ra herbergja í búð á 4.
hæð, 94,3 fm, ásamt 18 fm bílskúr. Baðher-
bergi með innréttingu og baðkari, dúkur á
gólfi. Gengið úr stofu út á yfirbyggðar svalir.
Rúmgott hjónabergergi. Sérgeymsla í kjall-
ara fylgir íbúðinni. Verð 12,7 millj
Blásalir Glæsileg 4ra herbergja íbúð á
10. hæð. Stórkostlegt útsýni er úr íbúðinni.
Parket er á allri íbúðinni nema dúkur á bað-
gólfi og þvottaherbergi. Allar innréttingar og
innihurðir eru úr mahóní. Gott skápapláss
er í öllum herbergjum. Verð 20,7 millj.
Básbryggja Stórglæsileg 4ra-5 her-
bergja 146 fm „penthouse“-íbúð á tveimur
hæðum. Íbúðin er frábærlega honnuð með
skemmtilegt skipulag og allt fullklárað á
vandaðan hátt. Parket og flísar á gólfum.
Rúmgóð herbergi og góðir skápar. Vestur-
svalir. Fallegur garður. Eign fyrir vandláta.
Verð 21,3 millj.
Rað- og parhús
Kjarrheiði - Hveragerði Mjög
fallegt raðhús á einni hæð með innbyggðum
bílskúr. Íbúðin er 4ra herbergja 104 fm en
bílskúr er 33 fm. Húsið afhendist fullbúið að
utan en tilbúið til innréttinga að innan. Verð
12,8 millj. Fullbúið hús með parketi og
flísum 17.800,000. - Sjón er sögu ríkari!
www.eignir.is
Lómasalir
Stórglæsileg og fullkláruð 120,8 fm
endaíbúð á 3. hæð í nýju 5. hæða
lyftuhúsi á frábærum stað í Salahverfi
í Kópavogi. Íbúðinni fylgir stæði í bíla-
geymslu (innangengt í sameign). Lok-
aður stigagangur með lyftu en opinn
svalagangur að íbúðinni. Vandaðar
mahóní innréttingar, hurðir og skápar.
Parket og flísar. Garður glæsilegur,
mikið útsýni. Verð 19,9 millj.
Þorláksgeisli
Glæsilegt og vel skipulagt raðhús
(endahús) í suðurhlíðum Grafarholts
með golfvöllinn í næsta nágrenni.
Húsið er úr forsteyptum einingum og
eru því veggir fulleinangraðir og raf-
lagnir komnar að hluta. Húsinu verður
skilað fullbúnu að utan, með grófjafn-
aðri lóð. Verð 19,3 millj.
Andrésbrunnur
Erum með glæsilegar 4ra og 5 her-
bergja íbúðir í nýju þriggja hæða
lyftuhúsi. Bílageymsla. Vandaður frá-
gangur og glæslegar íbúðir. Íbúðirnar
eru allar afhentar fullbúnar án gólf-
efna - tilbúnar til afhendingar. Verð
frá 17,9 millj.
Daewoo-kæli- og frystiskápur
stærð 200x60x63 cm.
Verð áður: 108.900 kr.
Verð nú: 69.900 kr.
Á tilboði
Raftækjaverslun
Íslands