Morgunblaðið - 16.06.2004, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
480 8000
SELFOSSI
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000
Toyota Landcruiser 90
GX árg. 1998, sjálfsk., ek.
186 þús.
Verð 1.990 þús.
Toyota Avensis S/D VVTI
árg. 2002, sjálfsk., ek. 50
þús.
Verð 1.610 þús.
Lexus IS 300 Sport árg.
2003, sjálfsk., ek. 9 þús.,
18" álfelgur. Einn með
öllu.
Verð 4.350 þús.
Nissan Almera GTI árg.
1997, 5 gíra, ek. 150 þús.
Álfelgur, topplúga.
Verð 670 þús.
Toyota Yaris T Sport árg.
2002, 5 gíra, ek. 26 þús.
Verð 1.250 þús.
Toyota Avensis 1,6 árg.
1998, 5 gíra, ek. 155 þús.
Verð 680 þús.
EINU sinni var Mitsubishi Colt smá-
bíll sem seldist ágætlega hér á landi.
Síðan hefur dregið úr vinsældum
bílsins enda hann ekki verið endur-
nýjaður eins og aðrir bílar með tíð og
tíma. Nú hefur Mitsubishi kynnt nýja
kynslóð Colt, þá sjöttu, og miðað við
fyrstu kynni af honum í heimsborg-
inni Barcelona, þar sem bíllinn hefur
verið í kynningu fyrir fjölmiðla síðan í
mars, kemur þessi bíll með látum inn
í harða samkeppni á þessum mark-
aði, þar sem fyrir eru bílar eins og
Toyota Yaris, Honda Jazz, Peugeot
206, Hyundai Getz og fleiri.
Fram kom í kynningu Mitsubishi á
bílnum að hinn dæmigerði kaupandi
á að vera hún Lísa; 25 ára gömul kona
sem er að kaupa sinn fyrsta nýja bíl.
Staðfært upp á flestar aðstæður
þyrfti Lísa þessi að búa í Undralandi
því flestar konur á þessum aldri eru
annaðhvort ennþá í námi eða að farn-
ar að greiða af háum námslánum og
því ólíklegasti kaupendahópur hvaða
nýja bíls sem er. En vissulega myndi
Colt henta ungum konum ekki síður
en körlum. Sala í Evrópu á bílum í
þessum stærðarflokki, B-flokki, er
4,3 milljónir bíla á ári og sættir Mits-
ubishi sig við 100.000 bíla á ári, a.m.k.
til að að byrja með, eða 2,5% mark-
aðshlutdeild.
Mikið hjólhaf – hannaður í Evrópu
Miðað við þessa bíla er Colt tals-
vert stór bíll. Hann er lengri en þeir
allir en reyndar styttri en VW Polo
en á hinn bóginn fimm cm breiðari.
Frá hlið minnir útlit bílsins ekki lít-
ið á Mercedes-Benz A en jafnframt
verður manni strax ljóst að hönnunin
á bílnum, með afar teygðu hjólhafi,
miðar að því að gera innanrýmið sem
mest. Þetta er hábyggður smábíll
með snert af fjölnotabílslagi og hann-
aður af Mitsubishi Design í Evrópu.
Framendinn er brattur og framrúðan
stór og stórar margspegla framlugtir
setja svip á framendann. Að aftan er
bíllinn þverskorinn og mestan svip
þar setur hástæður afturlugtaklasinn
sem nær nánast frá stuðara upp að
þakbrún. Hönnunin er lagleg en það
er ekkert nýtt blað brotið í þeim efn-
um. Segja má að nýr Colt sé útlits-
lega í takt við nýjustu bílana í þessum
stærðarflokki þar sem áherslan hef-
ur færst frá hinu sportlega yfir í hið
hagnýta.
Innanrýmið vekur mikla athygli í
Colt. Þar er í ýmsum atriðum vikið
frá hinu hefðbundna, ekki síst í efn-
isnotkun. Mælaborðið er úr vönduðu
plastefni með óvenjulegri fernings-
laga áferð og mælar eru úr gegnsæju
plasti sem gefa innréttingunni fersk-
legt yfirbragð. Sætin eru þægileg og
með óvenju langri setu, sem er þægi-
legt í langkeyrslu. Í prófunarbílnum
voru þau með einlitu, rauðu og slit-
sterku áklæði. Bíllinn er rúmgóður
og státar hann af mestu heildarfóta-
rými helstu keppinautanna, þ.e.
Peugeot 206, Honda Jazz og Toyota
Yaris. Aftursætisbekkurinn er tví-
skiptur, 60/40, og hann er á sleða,
eins og í Yaris og Jazz, þannig að há-
vaxinn farþegi getur fært bekkinn
aftur um allt að 15 cm og getur þá
notið meiri þæginda en búast hefði
mátt við, sérstaklega þar sem höfuð-
rýmið er mikið. Hægt er að fella aft-
ursætisbökin niður og fella sjálf sæt-
in upp að framsætum ef flytja þarf
stóra hluti, og það sem meira er þá er
hægt að taka aftursætin með öllu úr
bílnum og mynda þannig 645 lítra
flutningsrými.
Þriggja strokka dísill og Allshift
Fyrst um sinn verður bíllinn ein-
göngu fáanlegur fimm dyra, en
þrennra dyra bíllinn, sem kemur
seinna á markað, verður sjálfstæður
bíll en ekki byggður á þeim fimm
dyra. Bíllinn er boðinn með þremur
gerðum bensínvéla, 1,1 lítra, 1,3 lítra
og 1,5 lítra, sem allar eru með VVTi-
kerfi og smíðaðar af DaimlerChrysl-
er í Þýskalandi. Þá eru tvær dísilvél-
ar líka í boði, þ.e. þriggja strokka, 1,5
lítra, 68 og 95 hestafla. Í stað sjálf-
skiptingar býður Mitsubishi bílinn
með svokallaðri Allshift, sem er kúp-
lingslaus hálfsjálfskipting. Æ fleiri
bílaframleiðendur eru farnir að bjóða
þessa gerð gírskiptingar í stað sjálf-
skiptingar, enda hefur hún þann kost
fyrir þá að hún er umtalsvert ódýrari
í framleiðslu en hefðbundin sjálf-
skipting. Sá kostur er einnig til stað-
ar að eyðslan er minni með þessari
gerð skiptingar en hefðbundinni
sjálfskiptingu.
Bíllinn var fyrst prófaður með 1,5
lítra bensínvélinni, sem er 109 hest-
öfl. Leiðin lá í gegnum þunga umferð-
ina út á aðalveginn í gegnum Barce-
lona, Diagonal. Þaðan var haldið í
hring í kringum borgina í sveitaum-
hverfi og fjallavegum. Vélin er rösk
og lipur en togar að sjálfsögðu ekki
jafnmikið og dísilvélin, sem seinna
var prófuð. Af þeim sökum var bíllinn
stöðugt að skipta sér upp og niður
þegar hann var hafður í sjálfskipti-
valinu. Þetta, ásamt hikinu í sjálf-
skiptivalinu, fór í taugarnar á und-
irrituðum sem komst að þeirri
niðurstöðu að með þessari vél hentaði
bíllinn betur með hefðbundinni hand-
skiptingu. Annað var uppi á teningn-
um í dísilknúna bílnum sem togar 210
Newtonmetra að hámarki. Í honum
var skiptingin til friðs og var reyndar
bara nokkuð þægileg. Nú fer að
verða raunhæfur kostur fyrir al-
menning hér á landi að kaupa dís-
ilbíla og Colt með þessari skemmti-
legu þriggja strokka dísilvél og
Allshift ætti að vera valkostur sem
vert er að hyggja að. Ekkert er þó
enn ljóst með verðið á bílnum, sem
verður ekki til sölu hér á landi fyrr en
seint á þessu ári.
Það er ljóst að Mitsubishi hefur
tekist mætavel upp með nýjan Colt,
sem virkar bæði vel smíðaður og með
góða aksturseiginleika. Athygli vakti
líka hve vel hljóðeinangraður bíllinn
er, en hann deilir undirvagni með
Smart Four-Four, sem er annar bíll
sem heyrir til undir regnhlíf Daiml-
erChrysler.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Mitsubishi Colt er hábyggður smábíll með miklu innanrými.
Aksturseiginleikarnir eru prýðilegir
og hljóðeinangrun góð.
Frískleg innanrýmishönnun –
gegnsæir takkar og óvenjulegt litaval.
Hliðarsvipurinn minnir á A-bíl Mercedes-Benz. Hjólhafið er mikið.
Mitsubishi Colt
og Lísa í
Undralandi
REYNSLUAKSTUR
Mitsubishi Colt
Guðjón Guðmundsson
Vélar: 1,1, 1,3, og 1,5 lítra
bensínvélar, 75, 95 og
109 hestafla, 1,5 lítra dís-
ilvélar, 95 og 68 hestafla.
Gírskipting: Fimm gíra
handskipting eða fimm
gíra Allshift kúplingslaus
með sjálfskiptivali.
Lengd: 3.870 mm.
Breidd: 1.695 mm.
Farangursrými:
220–645 lítrar.
Mitsubishi
Colt
MITSUBISHI hefur blásið til sókn-
ar í Evrópu og ætlar sér stærri
hlut af sneiðinni á þessum næst-
stærsta bílamarkaði í heimi. Ekki
er langt síðan jepplingur Outlander
kom á markað eftir að hafa verið
fáanlegur í Japan og Bandaríkj-
unum og fyrir skemmstu kom
Lancer með andlitslyftingu og von
er á alveg nýjum bíl af þeirri gerð
innan skamms. Í Barcelona hefur
síðan í mars staðið yfir kynning á
einum mikilvægasta bíl Mitsubishi
í Evrópu sem er Colt, bíll í B-flokki,
en samtals seldust 4,3 milljónir
bíla í þeim flokki á síðasta ári.
Á blaðamannafundi þar sem bíll-
inn var kynntur kynntu forsvars-
menn kynningarmála hjá Mitsub-
ishi Evrópu þá ákvörðun
DaimlerChrysler, sem á um 36%
hlut í Mitsubishi, að verja ekki
meiri fjármunum til þróunar og
framleiðslu nýrra bíla hjá Mitsub-
ishi. Colt var einmitt fyrsti nýi bíll-
inn frá Mitsubishi eftir að sam-
starf tókst með fyrirtækjunum
tveimur og er hann byggður á
sama undirvagni og Smart Four-
Four sportbíllinn. Alex Thomas,
framkvæmdastjóri almanna-
tengsla hjá Mitsubishi Motors Evr-
ópu, sagði að tekist hefði samstarf
við aðra eigendur fyrirtækisins,
þ.e. Mitsubishi Heavy Industries,
Bank of Tokyo og fleiri aðila um að
koma að fjármögnun fyrirtækisins
í stað DaimlerChrysler, og benti
hann á að fjárhagslegur styrkur
þessara aðila væri fimm sinnum
meiri en DaimlerChrysler. Mitsub-
ishi Evrópu væri því í fullu fjöri og
ætlaði sér að selja 100.000 Colt í
Evrópu og ná þar með 2,5%
markaðshlutdeild.
DaimlerChrysler heldur að sér höndum
gugu@mbl.is