Morgunblaðið - 16.06.2004, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 C 3
bílar
HIN framúrstefnulega hönnun á
Renault Megané II virðist hafa hitt í
mark hjá Evrópubúum. Aðeins eru
liðnir 20 mánuðir frá frumsýningu
bílsins og nú þegar hafa yfir milljón
bílar selst.
Í frétt sem Renault hefur sent
frá sér í tilefni af þessum tímamót-
um kemur fram að Megané hafi far-
ið fram úr væntingum strax í fyrra
og náð þeirri stöðu, sem hann hefur
haldið æ síðan, að vera mest seldi
bíll í Evrópu.
Renault þótti taka talsverða
áhættu að gefa hönnuðum sínum
frjálsar hendur með næstu kynslóð
Megane línunnar sem selst hafði í
4,7 milljónum eintaka á sjö árum.
Það kom þó fljótt í ljós að áhættan
borgaði sig og að evrópskum kaup-
endum líkaði nýstárleg en rennileg
hönnunin sem hinn útstæði aftur-
endi stallbaksins varð að tákni fyrir.
Megané II var valinn bíll ársins árið
2003 og hefur nú sett ný viðmið í
hröðum og góðum viðtökum bíls á
markaði.
Milljón Megané
II seldir
ÞÓTT Ísland, Noregur og Finnland
séu sér á báti hvað varðar háa mark-
aðshlutdeild Toyota er mikill upp-
gangur hjá fyrirtækinu annars staðar
í Evrópu. Af þessum sökum hefur
Toyota nú aukið framleiðslugetuna til
þess að stytta afgreiðslufrestinn á
nýjum bílum.
Toyota setti sér það markmið að
selja 1,2 milljónir bíla í Evrópu árið
2010 og strax á þessu ári verður sal-
an um 915.000 bílar en var 834.000
bílar í fyrra. Í mörg ár var megnið af
sölunni hérlendis Corolla-bílar en
núna er salan jöfn og þétt í a.m.k.
fimm gerðum, þ.e.a.s. Land Cruiser,
RAV 4, Avensis, Corolla og Yaris.
Toyota framleiðir 60% af bílunum
sem seljast innan Evrópu í verk-
smiðjum í Bretlandi, Frakklandi og
Tyrklandi. Fyrr á árinu tilkynnti Toyota
að framleiðsla á Yaris í Frakklandi
yrði aukin úr 184.000 bílum í
240.000 bíla á ári. Núna er fyr-
irtækið að leggja 50 milljónir sterl-
ingspunda í verksmiðjur sínar í Bret-
landi til þess að ná fram
framleiðsluaukningu á Corolla og
Avensis, úr 220.000 bílum á ári í
285.000 bíla. Toyota framleiðir
150.000 bíla í verksmiðju sinni í Tyrk-
landi þannig að heildarfram-
leiðslugetan í þessum þremur löndum
er 645.000 bílar á ári þegar stækk-
unin er gengin í gegn.
Í Tékklandi opnar Toyota nýja verk-
smiðju í samstarfi við PSA (Peugeot-
Citroen), árið 2005 og þar á að setja
saman til viðbótar 100.000 Toyota-
bíla. Á þessu ári ráðgerir Toyota að
framleiða 565.000 bíla, 466.000 vél-
ar og 198.000 gírkassa í Evrópu.
Toyota eykur
framleiðsluna
í langbaksgerð.
Á árinu 2006 er ráðgert að
bjóða bílinn í svipaðri útfærslu og
Audi Allroad, þ.e.a.s. í langbaksgerð
og með 4Motion-fjórhjóladrifi. Nýr
Passat verður mun stærri en nú-
verandi gerð. Hjólhafið verður 5 cm
lengra og afturendinn sömuleiðis til
þess að auka farangursrýmið, sem
stækkar úr 475 lítrum í 485 lítra
sem þar með verður það mesta í
þessum flokki bíla.
Bíllinn verður sömuleiðis rúm-
betri að innan en áður með meira
fóta- og axlarrými en áður. Þá
verður bensíntankurinn 70 lítra í
stað 62 lítra núna.
Bíllinn verður boðinn með nýj-
ustu vélum VW, þ.á m. 1,6 lítra FSI,
2,0 lítra FSI og nokkrum gerðum
af 2,0 lítra dísilvélinni. Flaggskipið
fær líklega W8-bensínvél eins og í
núverandi gerð og fjórhjóladrif að
auki. Einnig er talið líklegt að hann
verði boðinn með 3,2 lítra, V6 vél.
Allar gerðir verða með sex gíra
handskiptingu en DSG-raðskiptur
gírkassi verður valbúnaður með
stærri vélunum. Engin hefðbundin
sjálfskipting verður í boði, ef marka
má fréttaflutning erlendis.
NÝ KYNSLÓÐ Volkswagen Passat
kemur á markað á næsta ári í ger-
breyttri mynd. Ljóst er að bílnum
er ætlaður annar staður á mark-
aðnum en hingað til enda verður
höfðað meira til þeirra sem sótt
hafa í lúxusbílana en áður. Eins og
myndirnar sýna er bíllinn allt öðru-
vísi útlits að framan en núverandi
kynslóð og þar setja kannski mest-
an svip nýjar framlugtir ásamt
breytingu á grillinu. Að aftan sækir
hann útlit sitt að miklu leyti til lúx-
usbílsins VW Phaeton. Í fyrstu
verður bíllinn eingöngu boðinn sem
fernra dyra stallbakur en síðar meir
Nýr Passat fínni en áður
Nýr VW Passat á markað á næsta ári. Nýr Passat minnir á Phaeton að aftan.