Morgunblaðið - 16.06.2004, Síða 4
4 C MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
H
jólin sem um ræð-
ir eru GasGas 450
fse, Yamaha WR
450, Husaberg 450
Fe, TM 450 og
VOR 450. Til stóð
að fá KTM 450
með í þennan reynsluakstur, enda
þykja þau standa mjög framarlega í
þessum flokki en því miður var ekki
unnt að verða við þeirri ósk okkar.
Til að fá sem breiðasta innsýn inn í
reynsluaksturinn fékk ég til liðs við
mig þá Heimi Barðason, Jón Bjarn-
arson og Reyni Jónsson sem allir
eru gamlir refir í sportinu
GasGas
GasGas er sett saman í lítilli
verksmiðju á Spáni af mönnum
meitluðum af djúpri hefð og ástríðu
fyrir svokölluðum klifur (trials)
mótorhjólum. Þegar enduro-hjól
komu frá verksmiðjunni fundu
margir eiginleika klifurhjólsins í
þessu nýja hjóli Spánverjanna. Út-
koman er hjól sem er ótrúlega lip-
urt og notendavænt en leynir þó á
sér og hreinlega flengist áfram þeg-
ar snúið er upp á rörið. GasGas-
mótorinn hefur mjög breitt vinnslu-
svið, það er afl alstaðar en samt
skilar hann því átakalaust frá sér,
næstum því silkimjúkt. Þú gætir
ruglast og talið að hjólið sé kraft-
laust en tilfellið er að það mok-
vinnur, það bara gerir það án þess
að vera með læti. Þetta má að miklu
skrifa á beinu innspýtinguna en þar
stendur GasGas fetinu framar en
keppinautarnir sem nota allir „gam-
aldags“ blöndunga. Eftir þessi
kynni finnst manni vélarhljóð hinna
hjólanna líka ansi óhreint á meðan
Gasserinn er silkimjúkur á öllum
vinnslusviðum. Fjöðrunin er einnig
mjög góð og var hjólið líklega í hvað
bestu samræmi hvað varðar fram-
og afturfjöðrun. Hjól sem í gegnum
tíðina hafa haft lipra aksturseig-
inleika hafa gert það á kostnað
stöðugleika hjólsins þegar ekið er á
mikilli ferð og GasGas er ekki und-
anskilið þessu lögmáli. Það skortir
nokkuð á öryggistilfinninguna þeg-
ar hjólinu er ekið í hæsta gír á
miklum hraða, hjólið er ekki það
rásfastasta á þessu hraðasviði. En
hjólið er ekki að svíkja mann svo
illa að ekki megi komast hjá þessum
greinilega háhraðaskjálfta með að-
gát. Við höfum upplifað þetta sterk-
ar á öðrum hjólum í gegnum tíðina.
Sumum okkar fannst hjólið helst til
þungt og vanta lítillega upp á topp-
kraft hjólsins, en skoðanir voru
samt skiptar um þetta meðal
reynsluakstursmanna. Frágangur-
inn á hjólinu er ekki jafnlýtalaus og
á japönskum hjólum en engu að síð-
ur vel fullnægjandi.
Sumum kann að finnast umsögn-
in um GasGas vera eindregið já-
kvæð. Hún er það líka. Tilfellið er
að kostir hjólsins eru margfalt fleiri
en gallarnar. Stærsta vandamálið er
líklega tengt því að útvega sér hjól-
ið því Spánverjarnir anna vart eft-
irspurn. GasGas 450 fse fæst hjá
JHM Sport og kostar 898.000 stgr.
(www.jhmsport.com)
Husaberg FE450
Husaberg stendur á krossgötum.
Þetta hjól, sem hannað er með kraft
og léttleika að leiðarljósi, hefur þótt
hafa fullháa bilanatíðni, eins og
flestir vita. Það sem ekki allir vita
er að mikið vatn hefur runnið til
sjávar sl. 1–2 ár og hjólin verið end-
urbætt. Endurbætur sem eru lík-
legar til að auka endingu og áreið-
anleika sænsku hjólanna. Mótorinn
í Husaberg er hugarfóstur Thomas
Gustavsson, fyrrverandi heims-
meistara í enduro, og hann er alveg
sterkur allt frá lágsnúningi upp í
efsta hluta vinnslusviðsins þar sem
hann þeytir hjólinu rösklega, en þó
ekki fruntalega, vel á annað hundr-
aðið. Mikið hefur verið lagt í að
gera þetta hjól létt og vegur það
minnst af öllum þessum hjólum.
Þetta samspil léttleika og góðs mót-
ors gerir það að verkum að Husa-
berg virkar sem mjög hvetjandi hjól
í akstri, þeim mun hraðar sem þú
vilt fara þeim mun betra. Ef aðeins
Thomas og félagar lærðu að búa til
netta bensíntanka, en þessi klunna-
legi bensíntankur var stærsta um-
kvörtunarefni hópsins í reynslu-
akstrinum.
Þetta er tæplega hjólið fyrir ung-
linginn, til þess er það of sérstakt.
Þetta hjól mun e.t.v. falla best
þroskuðum ökumönnum sem vilja
enduro-hjól með stóru E-i. Hjólið
fæst í verslun Nitro (www.nitro.is)
og kostar 860.000 kr., en þess má til
gamans geta að fyrir 80.000 krónur
má umbreyta þessu öfluga hjóli í
super moto götuhjól.
Yamaha WR 450
Það lætur nærri að WR-hjólin
séu mest seldu enduro-hjól í heimi
sem í sjálfu sér hljóta að teljast
ágæt meðmæli. WR 450 er sterkt
hjól, afar öflugt og óhætt að gefa
því bestu einkunn hvað varðar
áreiðanleika og endingu. Vinnsla
hjólsins kom flestum þægilega á
óvart, það hefur svipaða seiglu og
XR 600 neðst á vinnslusviðinu en
togar eins og stórt tvígengishjól
upp á ærandi snúning og skilar afl-
inu frá sér ansi rösklega, fullrösk-
lega fyrir smekk sumra. Einn helsti
akkilesarhæll þessa hjóls er vafa-
samur hljóðkútur því hjólið er ann-
aðhvort mjög hljóðlátt eða mjög
kraftmikið og lifandi, en ekki bæði í
einu sem fellur illa að vaxandi um-
hverfishyggju nú á tímum. Kúpling-
Ertu spennt/ur að vita hvað er hvað í heimi 450cc fjórgengishjóla? Ef svarið er já, lestu þá áfram því við settum 5 heitustu hjólin í dag í
reynsluakstur þar sem kostir og gallar hvers hjóls komu glöggt fram þegar þau fóru undir hamarinn. Þórir Kristinsson hafði umsjón með
undirbúningi og framkvæmd reynsluakstursins.
Spánska flugan hafði marga stóra kosti og fáa galla. Sem
keppnishjól mætti GasGas e.t.v. vera örlítið sprækara.
Husaberginn hefur gengið í endurnýjun lífdaga með miklum
endurbótum en átti þó erfitt í sleipu stórgrýtinu.
Þrátt fyrir að vera dálitið óheflað á WR 450 sér stóran aðdá-
endahóp um allan heim og ekki að ástæðulausu.
TM er hjólið fyrir kappsfulla ökuþóra. Þessi mynd var tekin í eitt af
þeim fáu skiptum sem hjólið stóð kyrrt.
Djúpar ár skáru fjallvegina og traktorsmótorinn á VOR reyndist vel í
því litla gripi sem bauðst yfir sleipa árbotna.
Morgunblaðið/ÞÖK
Búið að stilla hjólunum upp á Reykjavíkurflugvelli. Þrátt fyrir hamagang stóðust öll hjólin þrautirnar án þess að bila sem telst meðmæli í sjálfu sér.
Fullvaxin enduro-hjól