Morgunblaðið - 16.06.2004, Síða 5
in á Yamaha er einnig sú stífasta og
fékk hjólið mínus í kladdann fyrir
að þreyta okkur alla óþarflega mik-
ið í vinstri hendinni. WR er ekki
þyngsta hjólið í kílóum talið en þar
sem þyngdarpunktur hjólsins er
fremur ofarlega fer hvert kíló að
gera meira vart við sig, sérstaklega
í beygjum. Hjólið er fremur hátt og
stórt og hentar sérstaklega vel fyrir
hávaxna ökumenn. Fjöðrunin vinn-
ur miðlungsvel úr þungum og hæg-
um höggum, (s.s. í djúpum sandi á
lítilli ferð), en þegar hraðinn eykst
er Jamminn kominn á heimavöll og
étur upp þær hindranir sem á vegi
hans verða. Hjólið fæst hjá Arctic
Trucks/Yamaha og kostar 911.000
kr. (www.yamaha.is).
Ef líkja ætti Yamaha WR við
hest teldist það seint góður barna-
hestur. Til þess er það of stórgert
og gróft. Aftur á móti er hjólið stór-
skemmtileg blanda af vinnu- og
veðhlaupahesti. Hægt er að þeytast
á því allt árið án þess að það slái
feilpúst. Ef þér skyldi svo detta í
hug að keppa á hjólinu þarf ekkert
til nema bensín á tankinn og góða
skapið.
TM450
TM á meira sameiginlegt með
motocrosshjóli en hinu dæmigerða
enduro-hjóli. Þetta er fjórgengishjól
með snerpu tvígengishjóls og hent-
ar því langbest sem keppnistæki.
Hinn dæmigerði ökumaður sem sér
fyrir sér rólega sunnudagsrúnta
ætti ekki að hugsa um TM. Til eru
önnur hjól sem skila sínu miklu bet-
ur við slíkar aðstæður. Mótorinn á
TM er hraðgengur og aflið kemur
inn með miklum látum. En það á
ekki að koma á óvart, hjólið er jú
eftir allt smíðað með keppni í huga.
Þeir okkar sem sóttust eftir „kikk-
inu“ fundu það svo sannarlega á
þessu hjóli. Það er líka gaman að
horfa á TM-ið. Hjólið er skemmti-
lega smíðað og hlaðið frábærum
búnaði, s.s. Öhlins-fjöðrun, fallegum
bláum gjörðum og fleiru. Fyrri dag-
inn ókum við í braut sem á um
margt skylt við motocrossbraut og
hjólið bar af í þessum aðstæðum.
Mikið rosalega var gaman að
sprengja sig út úr djúpum sand-
beygjum á þessum fola með spól-
strókinn á eftir sér. Fjöðrun hjóls-
ins fékk einnig mikið lof allra enda
ekki við öðru að búast frá Öhlins og
hún bar það einnig með sér að með
lítilsháttar vinnu í stillingum megi
stilla fjöðrunina hárfínt fyrir hvaða
aðstæður sem er. Lögun hjólsins er
einnig til þess gerð að auðvelda
færslu líkamsþyngdar fram og aftur
á hjólinu eins og á motocrosshjólum
enda hjólið grannt og flatt ásetu.
Sætið var dáldið hart fyrir mjúka
bossa en varla hægt að setja út á
það þar sem hjólinu var ekki ætlað
að vera þægilegt. Titringur frá mót-
or upp í stýri var töluvert grein-
anlegur og hávaðinn í hjólinu mikill
og sver sig í ætt við lætin í WR 450.
TM kostar 999.000 kr. og fæst hjá
JHM sport (www.jhmsport.com) og
er hægt að fá Öhlins framdempara
á hjólið fyrir 60.000 kr. aukalega.
TM er villikötturinn í hópnum.
Það kemur út úr umboðinu tilbúið í
keppni. Hjólinu fylgir lítill púki sem
situr á öxlinni á þér og hvíslar að
þér hraðar, hraðar, hraðar.
VOR
VOR 450 er án efa fallegasta
hjólið í hópnum en um leið það hjól
sem framkallaði hvað ólíkust við-
brögð. Annaðhvort hatarðu það eða
elskar. Eiginlega ekkert þarna á
milli. Það sem allir voru þó sam-
mála um er að þetta hjól er ólíkt
öllu öðru sem er í boði á mark-
aðnum í dag. Mótorinn er eins og
ódrepandi traktorsmótor, með alla
vinnsluna á einum stað, alveg neðst.
Það er ekki hægt að kæfa mótorinn,
hann mallar bara og mallar og svo
snýrðu upp á bensíngjöfina, ferð í
gegnum gírana og hraðinn eykst en
samt er eins og hjólið sé alltaf á
sama lágsnúningnum. Þetta er það
hjól sem finnur grip alstaðar og
þegar önnur hjól fara að spóla bítur
VOR sig fast við jörðina. Annað sér-
kenni þessa hjóls er framendinn.
Það er eins og framhjólið hafi gert
samning við náttúruöflin um að
toga sig niður með margföldu
þyngdarafli, hjólið steinliggur að
framan eins og ekkert annað sem
þú hefur kynnst áður. Hjólinu
hlaust einnig sá vafasami heiður að
vera þyngsta hjólið í hópnum í kíló-
um talið og þessir áðurnefndu eig-
inleikar hjólsins (traktorsmótor og
þungur framendi) gera það að verk-
um að maður verður töluvert var
við allan þennan massa sem maður
hefur í höndunum. Það sem vegur á
móti þessari miklu þyngd er Öhlins-
fjöðrunin, og einnig það að þyngd-
arpunktur hjólsins er fremur neð-
arlega. Frágangur hjólsins er í
heildina góður og smíðin virkar
vönduð. Startsveif hjólsins er frá-
brugðin öllum öðrum hjólum því
hún gengur fram en ekki aftur þeg-
ar maður stígur á hana. VOR er á
kynningartilboði þessa dagana á
859.000 kr. og má fá allar upplýs-
ingar um hjólið og umboðsaðila
þess á Íslandi á www.vor.it.
VOR gerði þennan reynsluakstur
eftirminnilegan. Hjólið virkar,
a.m.k. fyrir suma og um það bera
alþjóðlegir meistaratitlar vitni.
Hvað er best?
Að útnefna eitt hjól sem afger-
andi sigurvegara er ekki hægt með
góðu móti. Hér er þetta orðið
spurning um að hver og einn vegi
kosti og galla hvers hjóls í samræmi
við óskir sínar. GasGas er líklega
það hjól sem hvað flestir yrðu
ánægðir með, eða ylli hvað fæstum
vonbrigðum eftir því hvernig menn
líta á þetta.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 C 5
bílar
ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT
Mikið úrval af notuðum dekkjum
13 - 14 - 15 - 16 - 17 og 18 tommu.
Eigum einnig nýja og
notaða sólaða hjólbarða
Eldshöfða 6 s. 567-6860
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
BÍLAR
GUÐBERGUR Guðbergsson, lands-
þekktur akstursíþróttamaður, var
sýningarstjóri á Sportbílasýningunni
íLaugardalshöll um síðustu helgi.
Hann hleypur í skarðið fyrir Ragnar
Halldórsson sem Sverrir Þórodds-
son skoraði á í síðustu viku. Listi
Guðbergs yfir þau tíu farartæki sem
hann kysi helst í sinn bílskúr er af
fjölbreyttara taginu. Þar má sjá
þotu, þyrlu og ofursportbíla en líka
mótorhjól af sverustu gerð.
„Fyrst myndi ég velja Lamborg-
hini Gallardo. Ég er ekki farinn að
keyra svona bíl en hann er ansi
hreint fallegur. Ég þori ekki að nefna
Ferrari Enzo því það er eiginlega ekki
hægt að keyra hann hérna. En það er
meiri möguleiki að geta keyrt og
keypt Lamborghini Gallardo,“ segir
Guðbergur.
Hann nefnir líka Porsche 911
Turbo, en sjálfur á Guðbergur eina
þrjá Porsche bíla í sínum bílskúr.
„Hann er mjög vel hægt að nota á Ís-
landi og ég færi á honum um allt
land. Ég hef farið nokkrum sinnum á
Carrera 4 til Akureyrar og einu sinni
fór ég í kappakstur á Porsche Turbo.
Ég og Jón heitinn Halldórsson fórum
átveimur Turbo-bílum frá Hvolsvelli
í bæinn fyrir mörgum árum um miðja
nótt. Við vorum 29 mínútur á leið-
inni, en þetta er fyrnt,“ segir Guð-
bergur.
Þá var Porsche Turbo með 300
hestafla vél en núna er hann 450
hestöfl og undir fjórum sekúndum í
hundraðið.
Harley Davidson V-Rod og Yamaha
WR450F 2Trac
Guðbergur er mikill hjólamaður og
hann vill Harley Davidson V-Rod í
sinn bílskúr. „Mér finnst þetta bara
svo fallegt hjól. Ég hef lengi leitað að
svona hjóli og reynt að bjóða í það á
Netinu. Ég á alltaf hippa og þetta er
draumahjólið í þeirri deildinni. Það er
mjög flott hönnun á hjólinu og það er
loftkælt og með Porsche-hannaðri
vél. Já, Porsche kemur oft við í mínu
lífi. Ég átti meira að segja einu sinni
lyftara sem hannaður var af
Porsche. Þetta er eini lyftarinn sem
ég hef átt um ævina,“ segir Guð-
bergur.
Í bílskúrnum verður annað hjól; af-
ar merkilegt. Þetta er Yamaha
WR450F 2Trac, sem er fyrsta mót-
orhjólið með drifi á báðum hjólum.
Guðbergur þarf reyndar ekki að láta
sig dreyma um það því hann hefur
þegar keypt það og komið því fyrir í
bílskúrnum sínum. Hjólið er í raun
ekki ennþá komið á markað og er
Guðbergur með fyrstu mönnum að
fá slíkt hjól í hendurnar.
Farartækjaáhuginn ríður ekki við
einteyming hjá Guðbergi. Hann vill
líka þyrlu í bílskúrinn.
Hann flýgur mikið og á flugvél og
er að smíða aðra. Hughes 500 heitir
þyrlan og er framleidd í Bandaríkj-
unum. Þyrlan kostar milli 60–70
þúsund dollara og með því að leggja
spaðana niður kæmist hún fyrir í
skúrnum.
Bayliner er sex manna sportbátur
úr trefjaplasti. „Það er gaman að
fara á svona bát í Breiðafjörð og víð-
ar. Það er hægt að fá svona báta
ódýrt frá Bandaríkjunum og það er
ekki nema 10% vörugjald á þá en
Siglingamálastofnun vill ekki leyfa
innflutning á þeim. Ástæðan er sú að
þeir þurfa að vera CE-merktir og
þannig fást þeir ekki þar. Það er
hægt að flytja inn bíla þótt þeir séu
ekki CE-merktir.“
Svifnökkvi og tvídrifshjól ásamt BT-10 þotu
Morgunblaðið/ÞÖK
Guðbergur Guðbergsson við einn af nokkrum Porsche-bílum sínum.
Þota og svifnökkvi
BT-10 þota er „kit-vél“ sem Guð-
berg langar mikið til að eignast. „Ég
hef lengi haft hug á því að eignast
slíkan grip en hann kostar bara dálít-
ið mikið, eða 130 þúsund dollara
ósamansettur. Þetta er þota sem
flýgur á hraða ljóssins. Hún tekur tvo
og skemmtilegt að skutlast á henni
til Evrópu.“ Guðbergur vill líka svif-
nökkva. Hann hefur prófað slíkt tæki
og þykir það mjög sniðugt. „Þetta er
tæki til þess að nota á sjó og vötnum
en ég vildi helst prófa hann á ám.
Það er líka hægt að fara á honum yfir
sanda og snjó. Það er hægt að fá
þetta notað á Netinu frá Bretlandi á
500.000 til eina milljón. Bretarnir
keppa mikið á svifnökkvum.“
Í lokin vildi Guðbergur hafa einn
góðan rallbíl í bílskúrnum sínum og
þá yrði fyrir valinu Peugeot 307
WRC. „Þetta er rándýr bílskúr og
mig dreymir um þetta þótt ég sjái
ekki fram á að eignast það allt sam-
an. En eitthvað af þessu kem ég til
með að eignast og eitthvað af þessu
áég nú þegar,“ segir Guðbergur, sem
skorar á Loga Bergmann Eiðsson
fréttamann. Hann segir að Logi sé
bíladellugaur þótt hann segist sjálfur
ekki hafa mikið vit á bílum.
Bílskúr Guðbergs lítur svona út:
1. Lamborghini Gallardo
2. Porsche 911 Turbo
3. Harley-Davidsson V-Rod
4. Yamaha WR450F 2Trac
5. Huges 500 þyrla
6. Bayliner hraðbátur
7. BT-10 þota
8. Paraplane
9. Svifnökkvi
10. Peugoet 307 WRC
10 farartæki í
bílskúr Guðbergs
Guðbergssonar