Morgunblaðið - 23.06.2004, Page 1

Morgunblaðið - 23.06.2004, Page 1
2004  MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A AMMA ROONEYS HYGGST TAKA BINGÓ FRAM YFIR FÓTBOLTA / B2 ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla, sem tekur þátt í Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar, kemur saman á fimmtudaginn á Laugarvatni þar sem leikmenn gangast undir þrekpróf, að sögn Einars Þorvarðarsonar, framkvæmdastjóra Handknattleikssambands Íslands og aðstoð- arlandsliðsþjálfara. Ekki hefur verið tilkynnt ennþá hverjir verða í landsliðshópnum sem býr sig undir leikana. Reiknar Einar með að Guð- mundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynni val á 22 leikmönnum en af þeim er aðeins leyfilegt að tefla fram 15 leikmönnum á Ólympíu- leikunum. „Það er verið að hnýta síðustu lausu endana í valinu um þessar mundir, allt verður klárt á fimmtudaginn þegar undirbúningur hefst,“ sagði Einar í gær. Lokaundirbún- ingur fyrir ÓL í Aþenu að hefjast Frá þeim tíma hefur Guðmundurverið meira og minna frá æf- ingum og keppni vegna meiðsla í hnjám en hann hef- ur fjórum sinnum slitið krossband í hné á ferlinum. Hann náði reyndar að spila megnið af tímabilinu 2002 en oftast sem varamaður, og skor- aði ekki mark. Tímabilinu 2003 missti hann algjörlega af, var þá aðstoðarþjálfari KR en spilaði ekk- ert, og það var ekki fyrr en í maí á þessu ári sem hann var af alvöru kominn inn í hóp KR-inga að nýju. Það sem af er sumri hefur Guð- mundur tekið þátt í sex af sjö leikj- um KR í úrvalsdeildinni, þar af fimm sinnum sem varamaður. Í fyrrakvöld kom hann til leiks á 67. mínútu og skoraði tvívegis á síð- ustu fimm mínútum leiksins. Fór á fyrstu fótbolta- æfinguna í maí „Þetta er búin að vera löng fjar- vera, það má segja að ég hafi ekki snert bolta af neinu viti í meira en hálft annað ár, frá því í september 2002 þar til í byrjun maí. Í vetur hef ég fyrst og fremst verið í styrktaræfingum með Gauta Grét- arssyni, sem hefur hjálpað mér mikið, og fór ekki á mína fyrstu fótboltaæfingu fyrr en í maí. Hnén eru í merkilega góðu standi, ég get reyndar ekki æft eins mikið og aðrir og þarf að taka því rólega í einn til tvo daga eftir leiki. Svo hugsa ég bara um einn dag í einu og reyni að njóta þess að spila fót- bolta eins og ég get. Hver dagur til viðbótar í boltanum er konfekt fyr- ir mig. Það var vissulega gaman að ná að skora þessi tvö mörk, maður getur þetta greinilega ennþá,“ sagði Guðmundur við Morgunblað- ið í gær. Bjartsýnn að eðlisfari Þrátt fyrir alla fjarveruna sagð- ist hann aldrei hafa gefið upp von- ina um að leika knattspyrnu að nýju. „Ég er bjartsýnismaður að eðlisfari og gerði mér alltaf vonir um að geta haldið áfram. Það mun ég gera eins lengi og líkaminn leyf- ir, enda gerir maður ekkert skemmtilegra en að spila fótbolta,“ sagði Guðmundur, sem verður þrí- tugur í haust og er fimmti marka- hæsti leikmaður KR í efstu deild frá upphafi með 39 mörk. Guðmundur Benediktsson, leikmaður KR, er kominn í gang á nýjan leik Hver dagur í boltanum er konfekt fyrir mig GUÐMUNDUR Benediktsson skoraði langþráð mörk fyrir KR-inga í fyrrakvöld þegar þeir lögðu Fram að velli, 3:0. Þetta voru fyrstu mörk Guðmundar á Íslandsmótinu í knattspyrnu í þrjú ár, eða síðan hann skoraði jöfnunarmark KR gegn Breiðabliki, 1:1, á KR-vellinum hinn 28. júní 2001. Eftir Víði Sigurðsson Landslið karla verður í eldlínunniá Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst, 20 ára landslið pilta freistar þess að verja Evrópumeistaratitil sinn í ágúst í Lettlandi, en liðið varð Evrópumeistari 19 ára landsliða í fyrra. Þá tekur 19 ára landslið kvenna þátt í lokakeppni Evrópu- mótsins í Slóvakíu í lok júlí og í byrj- un ágúst og loks verður 18 ára lands- lið pilta á meðal þátttökuliða í lokakeppni EM í Serbíu og Svart- fjallalandi sem hefst eftir rúman mánuð. Til undirbúnings fara 20 ára landslið pilta og 19 ára landslið stúlkna á Opna Norðurlandamótið í Gautaborg í byrjun júlí og verður það einn helsti liður í undirbúningi liðanna fyrir lokakeppni EM. Mótið er haldið samhliða hinu árlega Par- tille Cup-handknattleiksmóti ung- menna sem fjölmörg íslensk fé- lagslið taka þátt í að vanda. Heimir Ríkarðsson, þjálfari 20 ára landsliðs pilta, hefur valið 17 manna hóp leikmanna til þess að taka þátt í Opna Norðurlandamótinu, hópinn skipa Björgvin Páll Gústavsson, Pálmar Pétursson, Jón Árni Traustason, Andri Númason, Andri Stefan, Arnór Atlason, Árni Björn Þórarinsson, Árni Þór Sigtryggsson, Daníel Berg Grétarsson, Einar Ingi Hrafnsson, Ernir Hrafn Arnarson, Hrafn Ingvarsson, Ívar Grétars- son, Jóhann Gunnar Einarsson, Kári Kristján Kristjánsson, Magnús Stef- ánsson og Ragnar Hjaltested. Mikið að gera hjá HSÍ „ÞAÐ hefur örugglega aldrei verið eins mikið um að vera hjá Hand- knattleikssambandi Íslands að sumarlagi og nú,“ segir Einar Þor- varðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, en fjögur landslið Íslands taka þátt í stórmótum í júlí og ágúst. ■ Dregið í EM kvenna/B3 Reuters Henrik Larsson, annar frá vinstri, fagnar ásamt liðsmönnum sínum eftir að Mattias Jonson jafn- aði metin fyrir Svíþjóð gegn Danmörku í 2:2 í Evrópukeppninni í knattspyrnu. Leikurinn endaði 2:2 og það þýðir að Svíar og Danir komast áfram úr C-riðli í 8-liða úrslitin en Ítalir sitja eftir með sárt ennið þrátt fyrir að þeir hafi sigrað Búlgaríu 2:1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.