Lesbók Morgunblaðsins - 16.08.2003, Blaðsíða 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. ÁGÚST 2003
S
ÍÐASTLIÐIN 49 ár hefur verið
sett upp leiksýning um Ólaf
helga Noregskonung á Stikla-
stöðum þar sem hann var felld-
ur árið 1030. Þetta er gríðarmik-
il sýning með 450 þátttakend-
um. Atvinnuleikarar eru í
aðalhlutverkum en einnig kem-
ur fram fjöldi áhugamanna í aukahlutverkum,
þar á meðal 130 börn og 130 hermenn. Hljóm-
sveit og kór taka einnig þátt í sýningunni sem
fer fram undir beru lofti fyrir framan áhorf-
endabekki sem taka um 6.000 manns í sæti. Sýn-
ingarnar eru fjórar á ári hverju, haldnar í
tengslum við afmæli Stiklastaðaorrustu sem tal-
in er hafa farið fram 29. júlí árið 1030 og kirkju
og menningarhátíðina Ólafsdaga sem haldin er
árlega í Þrándheimi. Um tuttugu þúsund manns
sáu sýninguna á síðasta ári en aðeins einni sýn-
ingu hefur þurft að fresta í þessi 49 ár vegna
veðurs. Þykir það teikn um að Ólafur helgi vaki
yfir sýningunni. Þegar undirritaður sá sýn-
inguna 26. júlí síðastliðinn braust sólin fram úr
skýjunum á örlagaríkustu stundum verksins
eins og til að staðfesta nærveru dýrlingsins. En
þrátt fyrir hana voru sumir Þrændir á báðum
áttum um nýja uppfærslu á verkinu. Það er
Tyra Tønnessen sem leikstýrir verkinu nú og er
hún fyrsta konan sem hlýtur heiðurinn en leik-
ritið er eftir Olav Gullvåg og er hið sama og fyrir
49 árum.
Átök konungs og bænda
Leikritið gerist á bænum Súlu í Þrándheimi í
Noregi. Bærinn stendur skammt frá landamær-
um Svíþjóðar. Eins og víðar í Noregi er deilt um
það á bænum hvort fylgja eigi Ólafi konungi að
málum eða bændahernum sem berst gegn kon-
ungsveldinu og vill halda í gömul gildi hinnar
heiðnu trúar og heimsmyndar. Þorgeir flekkur
bóndi er konungsmaður en kona hans, Guðríð-
ur, vill styðja bændaherinn.
Árekstur heiðni og kristni birtist skýrast í
Guðrúnu dóttur Þorgeirs og Guðríðar sem hef-
ur gengið af vitinu vegna þess að hún bar út van-
skapað barn sitt. Samkvæmt heiðnum sið var
leyfilegt að bera út börn en kristin siðferðisvit-
und segir Guðrúnu að hún hafi drýgt mikla
synd.
Þormóður kolbrúnarskáld kemur til bæjarins
og boðar komu Ólafs konungs ásamt her sínum
frá Svíþjóð. Fréttir berast um að bændur safni
liði til að berjast við konunginn. Á Súlu er hins
vegar lítill ræningahópur frá Svíþjóð sem vill fá
að berjast fyrir kónginn. Ólafur segir að
ókristnir menn berjist ekki fyrir sig. Gangast
ræningjarnir við því og taka skírn enda fylgjast
þeir með Ólafi vinna kraftaverk þar sem hann
reisir við fallinn kornakur bóndans á Súlu. Þor-
LIFANDI LEIKHÚS AÐ STIK
„Öll starfsemin ber þess
vott að reynt er að gera
þá sögu sem staðurinn á
aðgengilega almenningi.
Og það tekst með miklum
ágætum. Staðurinn er all-
ur eins og lifandi leik-
hús,“ segir ÞRÖSTUR
HELGASON um Stikla-
staði þar sem hann sá
meðal annars nýja upp-
færslu á leikriti um Ólaf
helga Noregskonung sem
sýnt hefur verið þar ár-
lega síðan 1954.
Hermenn konungs liggja í valnum og Þormóður Kolbrúnarskáld flytur sitt síðasta kvæði.
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Ólafur helgi kominn til bæjar Þorgeirs flekks ásamt herliði sínu.
Menningarmiðstöðin að Stiklastöðum hýsir veitingastað, sýninga- og tónleikasal og fleira. Kirkja Ólafs helga á Stiklastöðum, reist fyrst
stuttu eftir orrustuna 1030.