Lesbók Morgunblaðsins - 16.08.2003, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. ÁGÚST 2003 15
Morgunblaðið/Þorkell
Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Anna Pálína Árnadóttir og Að-alsteinn Ásberg Sigurðssonverða líkt og fyrr með stofu-tónleika á Menningarnótt. Að
þessu sinni halda þau, ásamt Gunnari
Gunnarssyni píanóleikara og Gunnari
Hrafnssyni kontrabassaleikara, þrenna
tónleika í gamla
lestrarsalnum í
Þjóðmenning-
arhúsinu kl. 17, 19
og 21.
„Þetta er þriðja árið sem við erum með
tónleika á Menningarnótt og við köllum
þá áfram stofutónleika, því við byrjuðum
í stofunni heima og erum síðan búin að
færa út kvíarnar,“ segir Aðalsteinn.
Aðspurð hvernig bókasafnið henti til
tónleikahalds segir Anna Pálína athygl-
isvert hve góður hljómburðurinn sé. „Við
vorum einmitt að hlæja að því um daginn
að það er merkilegt með bókasöfn, þar
sem gengið er um og sussað á fólk, hve
ofsalega góður hljómburðurinn er oft.
Þannig að þetta suss bergmálar í margar
sekúndur. Óneitanlega er líka dálítið
kikk að fá að hafa svolítið hátt á bóka-
safninu,“ segir Anna Pálína hlæjandi og
bætir við: „Okkur hefur lengi langað til
að búa til tónleikaröð og kannski er þetta
sú röð, þ.e. tónleikar á óvenjulegum stöð-
um þar sem ekki eru haldnir tónleikar
alla jafna. Það er aldrei að vita nema við
verðum í sundlaug á næstu Menning-
arnótt!“
Að sögn Önnu Pálínu og Aðalsteins
verður dagskráin bland í poka. „Í raun
munum við bara spila þetta eftir eyranu,
það fer allt eftir því hvað kemur af fólki
og á hvaða aldri,“ segir Anna Pálína.
„Dagskrá tónleikanna þriggja ræðst al-
gjörlega af áhorfendum. Við lítum yfir
salinn og þá sjáum við á andlitunum hvað
á að vera næst. Nóg er nú til af efninu
hjá okkur. Við erum bæði með gamalt
efni og glænýtt, þannig að það verður sitt
lítið af hverju. Auk þess verð ég með smá
ljóðaupplestur til að auka á fjölbreytnina,
eins og ég er vanur,“ segir Aðalsteinn.
Svo skemmtilega vill til að Menning-
arnótt er ekki eina menningarhátíðin sem
Anna Pálína og Aðalsteinn spila á nú um
helgina því á sunnudagskvöld verða þau
með útitónleika í tengslum við Ormsteiti
austur á Héraði, nánar tiltekið á Trjá-
safninu í Hallormsstaðarskógi.
„Kikk að fá að hafa
hátt á bókasafni“
STIKLA
Söngdagskrá í Þjóð-
menningarhúsi
Næsta v ika
Laugardagur
Árbæjarsafn kl. 13 og 15.
Sögugöngur á Menningarnótt.
Guðný Gerður Gunn-
arsdóttir borgarminjavörður
verður með leiðsögn um Að-
alstræti og Grjótaþorp og hefst
gangan kl. 13. Páll V. Bjarna-
son arkitekt verður með leið-
sögn um gamla vesturbæinn
og hefst sú ganga kl. 15. Lagt
verður af stað í göngurnar hjá
Upplýsingamiðstöð ferðamála
við Ingólfsnaust, Aðalstræti 2.
Í Listmunahorninu sýnir Örn
Sigurðsson útskorna gripi og
húsgögn alla helgina.
Ljós-
mynda-
safn
Reykjavík-
ur 14-22
Grófarhús-
inu við
Tryggvagötu
15, verður boðið upp á þá
skemmtilegu nýbreytni að gest-
ir geta látið mynda sig í
nítjándu aldar stíl með bak-
grunn og búninga við hæfi.
Þá verður milli kl. 15-18
einnig kynning á sýningunni
Frumefnin Fimm, Ferða-
dagbækur Claire Xuan. Verður
nánar farið í saumana á
Ferðadagbókinni um Ísland
með sérstakri áherslu á rúnir
en Haukur L. Halldórsson mun
gefa innsýn í heim þeirra og
teikna upp búmerki, sem einn-
ig voru þekkt sem nafnrúnir,
fyrir gesti og gangandi.
Laugaborg Eyjafirði kl.
16. Tónleikar: Kammersveitin
Ísafold.
Kompan, Kaupvangs-
stræti 23 Akureyri, kl. 17.
Kristján Guðmundsson opnar
sýningu. Einnig
verður til sýnis
og sölu bókverk
(Doktorsritgerð)
eftir Sigrúnu Þor-
steinsdóttur og
Kristján, sem kom út fyrr á
þessu ári. Sýning Kristjáns er
opin daglega frá kl. 14 til 17 til
4. september.
Art Icelandic Gallery kl.
20. Sjöfn Har opnar mál-
verkasýningu í nýju galleríi að
Skólavörðustíg 25a og á
Menningarnóttina er opið fyrir
almenning frá 20-23. Harm-
ónikkusnillingarnir Tatu Kant-
omma og Ólafur B. Ólafsson
leika fyrir gesti.
Sunnudagur
Árbæjarkirkja kl. 11 Lúther
og djass. Djasskvartett Björns
Thoroddsen leikur útsetningar
Björns á sálmum Martins Luth-
ers við guðsþjónustu í kirkj-
unni.
Árbæjarsafn. Barna- og fjöl-
skyldudagskrá Ratleikur verður
fyrir alla fjölskylduna, húla-
keppni og kassabílar. Hægt
verður að leika sér með leggi
og skeljar og margt fleira. Í Ár-
bænum verða bakaðar lumm-
ur, þar er folald, kálfur, kindur
og hænur. Teymt verður undir
börnum frá kl. 13-15 bæði
laugardag og sunnudag.
Mánudagur
Stykkishólmskirkja kl. 20.
Tónleikar: Kammersveitin Ísa-
fold.
Þriðjudagur
Borgarneskirkja kl. 20.
Tónleikar. Kammersveitin Ísa-
fold.
Miðvikudagur
Listasafn Reykjanesbæjar
kl. 20. Tónleikar Kamm-
ersveitin Ísafold.
Fimmtudagur
Listasafn Íslands kl. 20.
Tónleikar Kammersveitin Ísa-
fold.
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratug-
urinn. Í tengslum við sýn-
inguna eru einnig sýndar
ljósmyndir eftir Hans Malm-
berg sem hann tók í Reykja-
vík árið 1951. Til 1.9.
Gerðarsafn: Sýning á
málverkum Jóhannesar
Kjarvals úr einkasafni. Til
6.9.
Gerðuberg: Sumarsýn-
ingin „Hvað viltu vita?“ Þar
eru til sýnis upplýsingar um
Breiðholtið á 18. og 19.
öld. Framlengd til 5.9.
Brýr á þjóðvegi 1. Ljós-
myndasýning Gunnars
Karls Gunnlaugssonar.
Framlengd til 21.9.
Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12: Á sum-
arsýningunni er bæði hefð-
bundinn listiðnaður og
hönnun úr fjölbreyttu hrá-
efni. Til 31.8.
Hótel Edda Laug-
arbakka: Teikningar Hall-
dórs Péturssonar úr Grettis
sögu. Til 17.8.
i8 Klapparstig 33: This is
me, This is You eftir Roni
Horn 13/09/03
Opið fimmtudaga og föstu-
daga 11-18 og laugardaga
frá kl 13-17.
Listasafn Einars Jóns-
sonar:
Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14 -17.
Höggmyndagarðurinn alltaf
opinn.
Listasafn Íslands: Sum-
arsýning – Úrval verka úr
eigu safnsins. Til 31.8.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Úr eigu safns-
ins – Sýnishorn íslenskrar
hönnunar 1952–2002. Að
auki eru munir í eigu nokk-
urra hönnuða, sem sjaldan
eða aldrei hafa komið fyrir
almenningssjónir. Til 1.9.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Sossa Björnsdóttir.
Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmund-
ur Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Innsýn í al-
þjóðlega myndlist á Íslandi.
Til 7.9. Erró – stríð er ný
þemasýning úr Erró-
safneigninni. Til 3.1. Humar
eða frægð – Smekkleysa í
16 ár. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Nýir tímar
í íslenskri samtíma-
ljósmyndun. Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýn-
ingin Andlitsmyndir og af-
straksjónir. Til 1.9.
Listhús Ófeigs Skóla-
vörðustíg 5: Ragna Sig-
rúnardóttir sýnir 24 olíu-
málverk.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Claire
Xuan. Til 1.9.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Vestan
við sól og norðan við mána.
Ragnar Th. Sigurðsson ljós-
myndari og Ari Trausti Guð-
mundsson rithöfundur og
jarðeðlisfræðingur. Til 31.8.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýn-
ingar. Til 14.9.
Svipmyndir af Ragnari
Kjartanssyni, myndhöggv-
ara.
Safn – Laugavegi 37: Ís-
lensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk. Til 10. okt.
Sjóminjasafn Íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarf.:
Gripir úr Þjóðfræðisafni
Þjóðminjasafns Íslands. Til
15.9.
Skaftfell Seyðisfirði: Sól-
veig Alda Halldórsdóttir
sýnir verk sitt Upp-skurður á
Vesturveggnum í Skaftfelli
Bistro. Til 5.9.
Skálholtsskóli: Björg Þor-
steinsdóttir er stað-
arlistamaður Skálholtsskóla
árið 2003. Til 1.9.
Icelandic Art Gallery.
Skólavörðustígur 25.
Sjöfn Har sýnir málverk.
Galleríi Sævars Karls:
Cesco Soggiu og Karl Krist-
ján Davíðsson sýna mynd-
verk.Til 28. ágúst.
Fjöruhúsið á Hellnum,
Snæfellsnesi: Aðalheiður
Ólöf Skarphéðinsdóttir.
Smámyndir unnar í þurrnál
og vatnsliti. Til 31.8.
Gallerí Dvergur: Geir-
þrúður Finnbogadóttir
Hjörvar: „The weight of
significance.“ Til 17.8.
Hafnarborg: Guðbjörg
Lind. Anna Jóelsdóttir. Til
8.9.
Nýlistasafnið: Sýningar
félaga Gjörningakúbbsins,
Heimis Björgúlfssonar og
Péturs Arnar Friðrikssonar.
Til 7.9.
Gallerí Skuggi: Valgarður
Gunnarsson. Til 23.8.
Kling og Bang: Danski
ljósmyndarinn Peter Funch.
Til 31.8.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: Lista yfir fyr-
irhugaðar og yfirstandandi
myndlistarsýningar í öllum
helstu sýningarsölum má
finna á slóðinni www.umm-
.is undir Fréttir.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið: Grease,
mið., fim., lau., lau. Pop-
pea, fös., sun., fös., lau.
Loftkastalinn: Ain’t Mis-
behavin’, lau., sun., mán.
Iðnó:kl. 16 og 20 Penta-
gon. lau.
Iðnó kl. 20.30 Light
Nights. Ferðaleikhúsið sýnir
þjóðsögur o.fl. á ensku sun..
mán, fös.
Skemmtihúsið við Lauf-
ásveg kl. 20.30: Ferðir
Guðríðar á ensku sun. fim.
Á frönsku mið. fös. lau.
Ilmur Stefánsdóttir
myndlistarkona opn-
ar sýninguna TM ör-
ugglega á menning-
arnótt í húsnæði TM
á jarðhæð Morg-
unblaðshallarinnar í
Aðalstræti 6. Sýn-
ingin stendur frá kl.
13–23. Hún sam-
anstendur af ýmsum
öryggisskúlptúrum
og ljósmyndum.
Örygg-
isskúlp-
túrar
Öryggisskúlptúr við eldhússtörfin.
MYNDLISTARMAÐURINN Sólveig Alda Halldórsdóttir
sýnir verk sitt, Upp-skurður, á Vesturveggnum í Skaftfelli
Bistro á Seyðisfirði. Verk Sólveigar samanstendur af
texta sem unninn er upp úr dagbókarfærslum William
Burroughs og hennar eigin.
Beat-skáldið William Burroughs varð m.a. þekktur fyrir
að finna upp hinn svokallaða „cut-up“ stíl en þaðan er
nafn sýningarinnar komið. Sólveig útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands í vor og er Upp-skurður önnur
einkasýning hennar. Sýningin stendur til 5. september.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 11.00 til 24.00
Upp-skurður á Skaftfelli
Upp-skurður Sólveigar Öldu.
Á Menningarnótt í Reykjavík mun
listahátíðin List án landamæra standa
fyrir sýningu og sölu á handverks- og
listmunum í Pósthússtræti 13, bakatil.
Sýndir verða munir frá nokkrum
vernduðum vinnustöðum en þeir eru
Ásgarður, Iðjuberg og hæfingarstöðv-
arnar á Akureyri og í Keflavík. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 14 laugardag-
inn 16. ágúst en kl. 16 munu M&M
dúettinn og sönghópurinn Blikandi
stjörnur skemmta vegfarendum á torg-
inu milli Pósthússtrætis og Lækjargötu.
Listahátíðin List án landamæra er
haldin í tilefni Evrópuárs fatlaðra
2003 og 10 ára afmælis Átaks, fé-
lags fólks með þroskahömlun. Átak, í
samstarfi við Landssamtökin Þroska-
hjálp, Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatl-
aðra, Sérsveit Hins hússins og vinnu-
stofuna Ásgarð, stendur fyrir hátíðinni
þar sem listsköpun fólks með þroska-
hömlun verður í brennidepli. Nú þeg-
ar hafa hátt á þriðja tug viðburða litið
dagsins ljós á List án landamæra í
Reykjavík og á Sólheimum í Gríms-
nesi. Stefnt er að fjölbreyttri dagskrá
allt árið og nær hátíðin hámarki með
átta daga listahátíð um mánaðamótin
okt.-nóv.
Handverks-
sýning á
Menningarnótt