Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.2003, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.2003, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. DESEMBER 2003 S aga hljóðritunartækninnar er rakin til ársins 1877, en þá fann bandaríski uppfinningamaður- inn Thomas Alva Edison (1847– 1931) upp hljóðritann sem á ensku var nefndur „phono- graph“. Sú tækni var síðan þró- uð frekar og leiddi til þess að smíðuð voru hljóðritunartæki þar sem notaðir voru vaxhólkar til upptöku og afspilunar. Þegar nær leið aldamótunum 1900 var hafin fjölda- framleiðsla á hljóðritunartækjum byggðum á vaxhólkatækninni, fyrst í Ameríku og síðar í Evrópu. Þessi tæki voru þannig gerð að einfald- ur vélbúnaður var knúinn áfram með upp- trekktri stálfjöður, hún dreif áfram sigurverk með tannhjólum sem sneru sívalningi ofan á tækinu. Upp á sívalninginn var smeygt allþykk- um hólki úr hörðu, vaxkenndu efni. Meðan hólk- urinn snerist á tilteknum, jöfnum hraða, var nál látin strjúkast við vaxhólkinn og um leið dregin hægt til hliðar með skrúfugangsverki. Við nál- ina var tengd hljóðtrekt sem talað var inn í eða sungið. Hljóðbylgjurnar komu hreyfingu á nál- ina sem skar fíngerða hljóðrás í yfirborð hólks- ins. Að hljóðritun lokinni, var farið til baka að upphafi hólksins, stillingu tækisins breytt í af- spilun og nálin látin lesa hljóðrásina af hólkinum sem aftur snerist með sama hraða. Tækið sá nú um að breyta hreyfingu nálarinnar aftur yfir í tal eða tónlist og flytja með hljóðbylgjum út um trektina að eyrum hlustenda. Orð og hugtök, sem tengjast hljóðritunar- tækni, finnast fyrst í íslensku ritmáli skömmu eftir að hún kemur til sögunnar í Ameríku. Í ís- lenskum blaða- og tímaritagreinum komu snemma fram bæði erlend orð og íslensk nýyrði um þetta nýtilkomna tæknisvið. Upplýsingar um slíkt eru nú auðfundnar í ritmálsskrá Orða- bókar Háskólans. Um hljóðritunartækin voru notuð erlend orð svo sem fónógraf, grafófónn eða diktafónn en á íslensku orðin málvél, talvél, hljóðvél, hljómritunarvél, hljóðgeymir, hljóm- riti eða hljóðriti. Gripurinn, þar sem upptakan var varðveitt, var á erlendum málum nefndur fónógram, en á íslensku hljóðrit. Um þann sí- vala vaxgrip, sem erlendis nefndist cylinder, voru á íslensku höfð ýmis lýsandi orð, svo sem sívalningur, kefli, rúlla, vals eða hólkur. Úr elstu skrifum á íslensku um hljóðritunartækni, er hér valin frétt sem birtist í Þjóðólfi 15. febr- úar 1879, um tveimur árum eftir að Edison fann upp hljóðritann: Nýar uppgötvanir Sá, sem nú er frægastur allra ýngri hugvitsmanna er E d i s o n, maður miðaldra í Bandaríkjunum. Á fáum árum hefir hann uppgötvað ótal undra-vélar. Meðal þeirra eru merkastar: telefóninn, fónografinn og míkrofóninn. Tele- fóninn er málþráður, sem ekki einungis flytur milli tveggja staða hristinginn, svo vélin, sem tekur við, rispi orðin, heldur hljóðið sjálft. Á þennan hátt geta menn nú heyrt hver annars málróm, þó sinn sé í hvoru héraði. Fó- nografinn er ekki rafvél, heldur einskonar hljóðvél, sem talað er í, og sem tekur við orðunum og gefur þau aptur eins og skýrt bergmál, en þó ólík klettunum að því, að hún getur geymt bergmálið, ef „dregið er fyrir“, þó menn vildu í þúsund ár. Ef þá er dregið frá, hleypur sama hljóðið eptir sama tónstiga út úr vélinni aptur talandi sömu orð og í sama rómi sem áður var talað inn. List þessi er byggð á næmri hljóðhimnu í vélinni, sem má hreifa og stöðva eptir vild þess er á hana. Míkrófóninn eykur hljóðið (heyrnina) á sinn hátt eins og stækkunar- glerið stækkar mynd hlutanna fyrir auganu. Gangur melflugunnar eptir gleri heyrist gegnum þá vél eins skýrt og gangur hests á grjóti. Báðar hinar síðarnefndu vélar eru að sögn bæði einfaldar og ódýrar. … Vaxhólkatæki Þorgils Jónssonar og Vilhjálms Hákonarsonar Eitt fyrsta hljóðritunartæki, sem vitað er um með nokkurri vissu hér á landi, virðist hafa verið í eigu tveggja manna á Suðurnesjum nokkru fyrir aldamótin 1900. Samkvæmt bréfi í skjala- safni sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, hefur Þorgils Jónsson (f. 1866), þá lausa- maður á Kalmannstjörn í Kirkjuvogssókn, árið 1898 selt Vilhjálmi Hákonarsyni á Stafnesi, hljóðritunartæki sem nefnt er „graphophone“. Um fyrri eigandann, Þorgils Jónsson, er lítið vitað eða af hvaða ástæðu hann eignaðist grafó- fón, líklega fyrstur manna á Íslandi. Auðveldara er að finna heimildir um Vilhjálm Kristin Há- konarson (1881–1956) því hann kom seinna nokkuð við sögu framfaramála á Suðurnesjum. Hann var um skeið kaupmaður í Keflavík en fékkst einnig við búskap og bjó á Stafnesi. Ung- ur að árum átti hann þess kost að ferðast til út- landa og dveljast erlendis, bæði austan hafs og vestan. Í Bandaríkjunum komst Vilhjálmur í kynni við lúðrasveitartónlist og beitti sér fyrir því árið 1910 að stofnuð var lúðrasveit sem nefnd var „Hornleikarafélag Keflavíkur“. Eina heimildin um kaup Vilhjálms á hljóðritanum, er fyrrnefnt bréf hans til sýslumanns og hljóðar svo: Stafnesi. Þann 6/1 – 98. Háttvirti herra sýslumaður! Hjer með vil jeg leita yðar leyfis um að meiga ferðast um þessa sýslu að sýna og leyfa þeim mönnum er þess æskja fyrir þóknun þ.e.a.s. 25 aura hver 3 lög (sívalninga) að hlýða á málvjel – „Graphophon“, þann er jeg hefi í dag keypt. Jeg vonast til að þjer veitið mjer leyfi þetta, því Þorgils Jónsson á Kalmannstjörn, er seldi mjer hann, ferðaðist með hann í sumar víðsvegar um landið og fjekk viðstöðulaust leyfi allra sýslumanna í þeim byggð- arlögum er hann umferðaðist, að sýna á þann hátt og fyr- ir þann greiða er hjer segjir. Virðingarfyllst. Vilhjálmur Cr. Hákonarson Svar yðar um þetta óska jeg að fá sem fyrst. Samkvæmt bréfabók sýslumanns fékk Vil- hjálmur jákvætt svar dagsett 25. janúar 1898 og segir þar orðrétt: „Samkvæmt beiðni yðar í brjefi, dags. 6. þ.m., veitist yður hjer með leyfi til að sýna mönnum hjer í sýslu „Graphophon“ fyrir borgun.“ Vaxhólkatæki Sigfúsar Eymundssonar Annar framfarasinnaður athafnamaður hefur að öllum líkindum eignast hljóðrita af svipaðri gerð. Það var Sigfús Eymundsson (1837–1911), þekktastur nú á tímum fyrir störf sín sem ljós- myndari og bóksali. Heimild um að slíkt tæki hafi verið í eigu Sigfúsar, er ritsmíð eftir Bene- dikt Gröndal, Reykjavík um aldamótin 1900, fyrst birt sem tímaritsgrein í Eimreiðinni alda- mótaárið 1900. Þar er meðal annars lýsing á því því hvernig umhorfs var í húsi Sigfúsar Ey- mundssonar, reisulegu, tvílyftu húsi sem enn stendur á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Um herbergjaskipan í húsinu á þeim tíma segir svo: „ …þar er ljósmyndahús uppi og þar myndaði Fúsi lengi múg og margmenni, og þótti enginn með mönnum teljandi nema hann væri mynd- aður af Fúsa; gekk þetta lengi, þangað til Fúsa leiddist, og tók þá Daníel mágur hans við; en í neðri herbergjunum er bókaverzlun allmikil; þar er „Nýja sálmabókin“, þar sem sextíu og sjö sálmar byrja á „Ó“ og átján á „Jeg“. Þar í einu herbergi hafði Fúsi „Graphófóninn“, sem hann kom hingað með fyrstur manna og lét syngja á hann og leika lög og orð með göldrum. …“ Eftir er að ganga frekar úr skugga um það hvort fyrr nefndir grafófónar Vilhjálms Há- konarsonar og Sigfúsar Eymundssonar hafa varðveist og hvar þau tæki kynnu nú að vera niður komin. Ef lesendur gætu veitt upplýsing- ar um þau eða afdrif þeirra, væru slíkar ábend- ingar vel þegnar. Auglýsing frá versluninni Edinborg, 1901 Líklegt má telja að hljóðritarnir tveir, sem hér var lýst, hafi verið keyptir erlendis, en slík tæki virðast fyrst hafa komið í verslanir í Reykjavík skömmu eftir aldamótin 1900. Ein fyrsta auglýsing um þau birtist í bundnu máli í vikublaðinu Fjallkonan 21. desember 1901, sem jólaauglýsing frá stórversluninni Edinborg í Hafnarstræti. Upphafserindi auglýsingarinnar eru þessi: „Kauptu í „Edinborg“. Flýttu’ þér niðrí Edinborg, þar færðu margt að sjá, farðu beint upp stigann og opin[n] verður þá Bazar harla mikill, sá bezti’ er landið á, en buddunni upp úr vasanum ei gleymdu strax að ná. ALDARAFMÆLI HLJÓÐ- RITUNAR Á ÍSLANDI Jón Leifs hljóðritar með vaxhólkatæki tvísöng kvæðamannanna Björns Friðrikssonar og Jóseps Húnfjörð sumarið 1934. Jón Pálsson (1865–1946), merkur brautryðj- andi hljóðritunartækninnar á Íslandi. E F T I R N J Á L S I G U R Ð S S O N Undir lok 19. aldar kom til sögunnar ný tækni sem átti eftir að hafa mikil áhrif á menningu og daglegt líf um heim allan. Sú tækni, hljóðritunartæknin, barst hingað til lands skömmu fyrir aldamótin 1900, en heimild er um fyrsta hljóðritann ásamt vaxhólkum til afspilunar árið 1898. Elstu varðveitt hljóðrit, sem gerð voru hér á landi, eru frá árinu 1903 og því réttra 100 ára gömul. Í tilefni af því aldarafmæli er hér gerð grein fyrir tilkomu hljóðritunartækninnar og fjallað um upphaf hennar á Íslandi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.