Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.2003, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.2003, Page 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. DESEMBER 2003 Í Guðsgjafaþulu eftir Halldór Laxness segir bolsévikinn við sögumann: „Hvílík eymd að vera smáþjóðarmaður, segir Engels á einum stað, mig minnir í bréfi frá London. Til að mynda hitti ég um daginn Íslending og sagði hann mér að unaðslegustu æskuminningar sínar væru bundnar lyktinni af úldnum grút í fjörunni og maurétnum þorskhausum sem lágu til þurrks upp á görðum.“ Íslendingar geta hrósað happi yfir að hafa ekki þurft að reisa minnisvarða af Þjóðverj- anum Friedrich Engels innan um maurétna þorskhausa og úldinn grút í fjöru hins brim- kalda lífs og það mætti nefna fleiri sendingar frá Þjóðverjum og öðrum voldugum þjóðum sem betra hefur verið að vera án. Á hinn bóginn fer ekki á milli mála að eina af rótum sjálfstæðisbaráttunnar er að finna í þýsku rómantíkinni. Skáldin sem að mörgu leyti lögðu grunninn að sjálfsvitund okkar á nítjándu öld voru undir sterkum áhrifum frá Heinrich Heine og öðrum þýskum skáldum. Franska byltingin, þýska rómantíkin, það var þetta sem þurfti, og síðan minning um eig- in gullöld og eflaust margt fleira, þetta var bensínið, alla vega hálfur tankur. Nei, það er sko ekki aumt að vera mótaður af rómantískum skáldum sem líka áttu sinn þátt í að endurreisa tungumálið, sem bjuggu til ný orð um himintungl og stjörnur. Hugsið ykkur aumingja Færeyingana sem þurfa að heyja sína sjálfstæðisbaráttu á ein- hverju embættismannamáli. Í því dæmi, að minnsta kosti, bera drykkfelld skáld höfuð og herðar yfir spillta bókara. Félagsskapur okkar manna hét Fjölnir, einsog íþróttafélagið í Grafarvoginum. Ung- lingarnir í Grafarvoginum eru Fjölnismenn. Hinir fullorðnu geta séð Fjölnismenn leika fót- bolta, sótt íþróttamót og samkomur. Það er Fjölnismönnum nítjándu aldar að þakka að ungu Fjölnismennirnir í dag tala gullaldarmál, að vísu með slettum og slangri og alls kyns unglingatöktum, sumt er ýkt fokk- ing böggað geðveikt, annað algjörlega steikt, en þannig á tungumálið að vera, hörku knatt- spyrna, átök nýjunga og hefða, flott mál sem meitlast og þróast, Megas og Jónas. Tungumálið snýst ekki bara um málfræði- reglur heldur líka þjóðfélagsveruleika. Aðal- atriðið er að menn hafi eitthvað að segja, að líf- ið sé skemmtilegt. … „Ég er afkomandi hraustra, bláeygra vík- inga. Ég á ætt að telja til hirðskálda og sig- ursælla konunga. Ég er Íslendingur. Nafn mitt er Tómas Jónsson. Ég er gamall. nei nei.“ Þannig hefst skáldsagan Tómas Jónsson Metsölubók eftir Guðberg Bergsson, eitt af tímamótaverkum íslenskra nútímabókmennta. Ég las Tómas Jónsson upp til agna þegar ég var unglingur og get alltaf blaðað í henni aftur og aftur. Ef einhver sagði eitthvað við mann var svar- ið: „Þú ert bara einsog Tómas Jónsson,“ eða maður sneri því við og sagði: „Sko, einsog Tómas Jónsson sagði …“ Hann gat bjargað manni úr ótrúlegustu að- stæðum, þessi elliæri skrifstofumaður sem rifjar upp ævi sína. Einhverju sinni er hann að útbúa vegabréf í huga sér og skráir í reitinn fyrir starfsheiti: playboy. Tómas bregður sér sem sé í ótal gervi, oftast í huganum. Eitt sumarið vann ég hjá Rafmagnsveitunni. Flokkurinn sem ég var í vann við að rétta ljósastaura. Við keyrðum um borgina í appels- ínugulum bæjarstarfsmannabíl, slógum halla- máli á ljósastaurana og ef þeir voru skakkir hófumst við handa við að rétta þá. Ég man vel eftir þessu sumri, ekki síst vegna þess að þá fór ég að sjá veruleikann fyr- ir mér sem texta. Ég fór hreinlega í vímu þeg- ar orðin röðust skemmtilega saman. Mig fór að langa að skrifa þetta niður, ekki síst það sem kom til mín í gegnum gluggann á appelsínugula bæjarstarfsmannabílnum, en þetta bara flaut um í höfðinu og fór aldrei nið- ur á blað. Kannski var þetta óttalegt bull, en samt. Strákurinn á loftpressunni hét Frímann. Hann braut stéttirnar í kringum staurana þeg- ar við vorum að rétta þá. Næstum því allir ljósastaurar í borginni voru skakkir. Frímann var með sítt liðað hár, hlustaði á þungarokk og hafði góða kímnigáfu. Eitt sinn bárust bókmenntir í tal í bæjar- starfsmannabílnum okkar. Sigurjón, eldri maður, sem sumir sögðu að ætti sér dularfulla sögu, hóf raust sína til að hneykslast á ungu skáldunum sem leyfðu sér jafnvel að spauga með Halldór Laxness. Þá sneri Frímann, sem sat í framsætinu, sér við og sagði við Sigurjón: „Lest þú bara Tómas Jónsson og haltu kjafti.“ … Nú er það svo að allar þjóðir velta því fyrir sér hverjar þær eru og horfa á heiminn af þeim hóli sem þær sjálfar standa á. Ég var eitt sinn að lesa úr verkum mínum í Englandi, nán- ar tiltekið á bókmenntahátíð í borginni Chel- tenham. Þegar upplestri lauk og umræður hófust sagði ein konan í salnum: „You seem to have a very English sense of humor.“ Konan var að hrósa mér, en orð hennar eru líka til marks um það hvernig hrokinn er stundum vaxinn inn í tungumálið, þegar hin fornu stórveldi telja jafnvel kímnigáfuna sér- eign sína. Þannig hefur sagan prentast inn í huga þeirra, en líklega er þó hlegið í öllum löndum og oft að mjög svipuðum hlutum. Ég hef lesið upp fyrir indverska jóga og Zulu menn í Afr- íku, en Zulu mennirnir sögðu ekki að ég hefði „Zulu sense of humor“, þótt þeim þætti ég frekar spaugilegur náungi. Lítill strákur sá fána í hálfa stöng. Hann spurði pabba sinn af hverju fáninn væri svona. Pabbi hans sagði að það væri af því að einhver hefði dáið. „Nú, hann hefur þá ekki náð að hífa hann alla leið,“ sagði strákurinn. … „Ég er afkomandi hraustra, bláeygra vík- inga.“ Já kannski er lítill Tómas Jónsson í okkur öllum, eða að minnsta kosti í mér, því í annað sinn var ég staddur í London og hafði með- ferðis fyrstu skáldsögu mína Riddarar hring- stigans í handriti á ensku. Ég hringdi í útgefanda úr símaklefa við Leicester Square og spurði hvort ég mætti ræða við hann um verk mín. Útgefandinn spurði mig fyrir hvað ég stæði. Ég sagði að það væri ný gerð af raunsæi, svonefnt ísbjarn- arraunsæi. Hann bað mig koma rétt fyrir lok- un. Ég gaf mér góðan tíma til að finna aðsetur hans, fór síðan á næstu krá og hressti mig ör- lítið með hverfisbúum, en var mættur á um- sömdum tíma. Þegar ég heilsa útgefandanum og kynni mig segir hann: „Má ég spyrja, hví komið þér alla þessa leið með handrit yðar, af hverju hag- nýtið þér yður ekki póstþjónustuna?“ Ég var svo hissa á spurningu mannsins að ég vissi ekki fyrr til en ég hafði sagt: „For- feður mínir, víkingarnir, sigldu sólarhringum saman yfir hafið, bara til að lesa eitt ljóð fyrir kónginn.“ … Ekki tala um stórar þjóðir og litlar þjóðir, útkjálka, heimshorn og jaðra. Þetta er hnöttur; miðjan hvílir undir iljum þínum og færist úr stað og eltir þig hvert sem þú ferð. En Íslendingar, hverjir erum við? Kóngar sem ekki vildu lúta neinum kóngi? Því viljum við sjálfir trúa. Einhver spaugari sagði mér að þegar fyrstu skattalögin voru kunngerð í Nor- egi þá flýðu allir sem kunnu að lesa til Íslands. Almennt er þó álitið að við séum Norðmenn sem blandast hafi Írum. Hið norræna og kelt- neska rennur saman í okkar sígildu bókmennt- um. Sumarið 2003 var haldin keppni á Akra- nesi um það hver væri rauðhærðastur á Íslandi og fékk vinningshafinn flugmiða til Ír- lands. En hljóta ekki 280.000 manns á eyju norður í höfum að vera sérvitringar, enda eru til kenn- ingar sem segja að landnámsmennirnir sem fyrstir komu til Íslands hafi verið á leiðinni eitthvað allt annað en orðið strandaglópar. Þeir munu hafa lagt skipum sínum og gengið á land en skipin voru horfin þegar þeir komu tilbaka. Þá voru engir flugvellir, ekkert Saga Class í tilverunni, einsog viðskiptafarrýmið hjá Flugleiðum heitir. Landnám Íslands tók sextíu ár, en menn hefðu verið snöggir að þessu ef flugvélar hefur verið komnar til sög- unnar. Þá hefðu landnámsmennirnir setið á Saga Class, en Írarnir aftur í. En af því að við erum eyjaskeggjar erum við á stöðugu flakki. Eyjabúinn horfir á hafið og veltir fyrir sér ævintýrunum handan þess. En þegar hann er kominn burt uppgötvar hann að ævintýrin voru allan tímann í kringum hann. Þá snýr hann við en tekur áhrifin að utan með sér. Á þann hátt erum við alltaf í viðræðum við heiminn. Ég er ég af því að ég læri af öðrum. Og kannski er heimurinn ekkert mikið stærri en við. Ég meina, það er hugsanlegt að það séu bara 280.000 manns í heiminum og hinir séu ljósrit af okkur, sem þýðir að hér á klettaeynni sé eitt eintak af hverjum. Með öðrum orðum: Þegar þjóðir eru fá- mennar skiptir hver einstaklingur miklu máli. … Oscar Wilde sagði að það hefði verið heppni norrænu víkinganna sem fundu Ameríku löngu á undan Kólumbusi að týna henni aftur. Það er í raun alveg sama hvaða Íslending við tökum sem dæmi. Hann endar alltaf með ein- um eða öðrum hætti í fortíðinni: við hlið blá- eygra víkinga, hirðskálda og konunga, einsog Tómas gamli Jónsson. Þetta gerir okkur auðvitað dálítið rembings- leg með köflum, en losar okkur líka undan minnimáttarkennd af ýmsum toga. Við erum smáþjóð en lítum á okkur sem stórveldi. Það hefur verið sagt að aðrar þjóðir geti þakkað fyrir hve fámenn við erum. Á seinni hluta tutt- ugustu aldar háðum við tvö stríð um fiskimiðin við Breta og unnum þau bæði. Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson var eitt sinn spurður að því á norrænni rithöfundaráð- stefnu í frekar niðrandi tóni hve margir byggju í Reykjavík. Merkingin undir yfirborði spurningarinnar var hvort eitthvað merkilegt gæti komið úr svo fámennum stað. Thor svar- aði því til að í Reykjavík byggju álíka margir og í Flórens á tímum Dantes. … Ég: Óli hefurðu tekið eftir því hvað dúfurnar eru með litla hausa? Heldurðu að þær séu ekki með neinn heila? ÉG, TÓMAS JÓNS- SON, FJÖLNIS- MENN OG FLEIRI E F T I R E I N A R M Á G U Ð M U N D S S O N Í þessari grein er fjallað um menningarlega sjálfsmynd þjóðarinnar og segir þar meðal annars: „Tvennir tímar, tveir heimar. Við höfum lifað tvenna tíma og búum í tveim heimum. Takist okkur að vinna úr þeim, hvíla í fangi fortíðarinnar og faðma um leið samtímann, má segja að allt sé „í haginn búið undir mikinn saungleik“, einsog segir í Vefaranum mikla …“ „Það er Fjölnismönnum nítjándu aldar að þakka a að algjörlega steikt, en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.