Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.2003, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. DESEMBER 2003 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Háskólabíó kl. 15 Jóla-
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands undir stjórn Bernharðar
Wilkinson. Einleikari: Björg
Brjánsdóttir. Einsöngur: Jóhann
Páll Jóhannesson. Kór Kárs-
nesskóla, nemendur úr List-
dansskóla Íslands.
Langholtskirkja kl. 23 Jóla-
söngvar Kórs og Gradualekórs
Langholtskirkju. Einsöngvarar:
Bergþór Pálsson og Ólöf Kol-
brún Harðardóttir. Hljóðfæra-
leikarar: Bernharður Wilkinson
og Hallfríður Ólafsdóttir flauta,
Monika Abendroth harpa, Jón
Sigurðsson kontrabassi, Lára
Bryndís Eggertsdóttir orgel,
Kjartan Valdemarsson píanó
og Pétur Grétarsson trommur.
Stjórnandi:Jón Stefánsson. Tón-
leikarnir verða einnig á sunnu-
dag kl. 20.
Sunnudagur
Áskirkja kl. 17 Kammersveit
Reykjavíkur. Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari leikur fjóra uppá-
haldskonserta sína, fjóra fiðlu-
konserta, eftir Bach. Með henni
leika Daði Kolbeinsson á óbó
og Unnur María Ingólfsdóttir á
fiðlu.
Dómkirkjan kl. 17 Dómkór-
inn í Reykjavík og Unglingakór
Dómkirkjunnar syngja jóla-
söngva. Stærsta verkið sem flutt
verður er Fantasia on Christ-
mas Carols eftir R. Vaughan
Williams í þýðingu Heimis
Pálssonar. Einsöngvari eru
Bergþór Pálsson, Anna Guðný
Guðmundsdóttir leikur á píanó
og Steef van Oosterhout á
klukkuspil. Saman flytja kór-
arnir fjárhirðasönginn Það sem
englasveitir sungu eftir M.
Praetorius í þýðingu Sigur-
björns Einarssonar og Blíða
nótt, blessaða nótt í nýrri þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar.
Stjórnendur kóranna eru þau
Marteinn H. Friðriksson og
Kristín Valsdóttir. Aðgangur er
ókeypis.
Hásalir, Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 20 Kór Flens-
borgarskólans í Hafnarfirði
sem Hrafnhildur Blomsterberg
stjórnar heldur, ásamt gestum,
árlega jólatónleika. Með kórn-
um kemur fram Kór Öldutúns-
skóla undir stjórn Egils Friðleifs-
sonar. Á efnisskrá eru fjölmörg
hátíðarlög og skemmtilög
ásamt lögum í útsetningum sem
sjaldan heyrast á Íslandi.
Áskirkja kl. 21 Kór Áskirkju
heldur jólatónleika og eru þeir
síðasti liður í afmælisdagskrá
sem haldinn hefur verið í tilefni
20 ára vígsluafmælis Áskirkju
og 40 ára afmælis Áspresta-
kalls. Eingöngur: Bjartur Logi
Guðnason, Hjálmar Pétursson
og Þórun Elín Pétursdóttir.
Stjórnandi er Kári Þormar.
Fríkrikjan í Reykjavík kl.
22 Aðventuvaka í umsjá Öllu,
Ásu og Önnu Siggu. Kyrrlát
dagskrá með kertaljósum, hug-
leiðingum og ljúfum tónum.
Aðgangur er ókeypis.
Mánudagur
Víðistaðakirkja kl. 22
Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði
er með árlega jólavöku. Auk
Þrasta, undir stjórn Jóns Kristins
Cortez, kemur fram Lúðrasveit
Hafnarfjarðar undir stjórn Þor-
leiks Jóhannessonar, Kór Öldu-
túnsskóla undir stjórn Egils
Friðleifssonar og nemendur
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Selfosskirkja kl. 22 Jóla-
vaka Samkórs Selfosskirkju.
Stjórnandi kórsins er Edit Moln-
ar. Undirleikari Miklós Dalmay.
Gestir Samkórsinseru Katrín
Sigurðardóttir, einsöngvari og
bóndi í Ásum í Gnúpverja-
hreppi, og eldri barnakór Sel-
fosskirkj, undir stjórn Glúms
Gylfasonar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Steingrímur Þórhallsson organisti.
Hallveig Rúnars-dóttir sópran ogSteingrímur Þór-hallsson organisti
halda kyrrðartónleika í Nes-
kirkju kl. 21 á mánudags-
kvöld.
Hallveig
hefur komið
fram sem ein-
söngvari víða
og söng í
fyrra hlutverk Fiordiligi í
óperunni Cosi fan Tutte eftir
Mozart með Óperustúdíói
Austurlands.
Steingrímur hefur komið
víða fram bæði sem einleik-
ari og sem undirleikari kóra
og í hljómsveitum og má þar
nefna tónleika sem hann
hélt á Klais-orgel Hallgríms-
kirkju í ágúst síðastliðnum.
Hann er nú organisti og
kantor í Neskirkju.
Eru þetta hefðbundnir að-
ventutónleikar, Hallveig?
„Nei, kannski ekki alveg.
Þarna verður ekkert átt við
halelúja glohohohohoríu-
trillurnar. Það á við á öðrum
tímum en það er líka hátíð-
legt. Þegar við ákváðum að
vera með tónleika um jólin
þá vildum við hafa þá svolít-
ið öðruvísi. Fólk kemur og
hlýðir á fallega aðventu-
sálma, Maríukvæði en einnig
flytjum við tónlist eftir Bach
og Händel, allt á kyrrum
nótum. Kirkjan verður ein-
göngu lýst með kertaljósum
og það verður ekki klappað
milli atriða. Tónlistin verður
ein samfelld heild í u.þ.b.
klukkutíma því Steingrímur
verður með spuna milli
verkanna. Við reynum að
gera eins fallega og eins vel
og okkur er mögulegt. En
þessir tónleikar eru ekki síst
hugsaðir fyrir okkur sjálf til
tilbeiðslu og íhugunar. Út
frá því valdi ég textana. Við
verðum einnig í lág-
stemmdri miðnæturmessu í
Neskirkju á aðfangadags-
kvöld. Þar syng ég í kvartett
gamla ítalska miðalda-
tónlist.“
Hvernig er samstarfi ykk-
ar Steingríms háttað?
„Við Steingrímur höfum
unnið mikið saman. Við
kynntumst í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og höfum
verið vinir síðan. Við eigum
ofsalega vel saman sem tón-
listarmenn. Höfum mjög lík-
ar hugmyndir um tónlist,
t.d. berum við bæði mikla
virðingu fyrir tónlist og lát-
um aldrei neitt frá okkur
nema það sem við erum full-
komlega ánægð með. Tón-
listin gengur fyrir hjá okkur
og við erum bara farvegur.
Það má kannski segja að við
séum baksviðs þó við séum
aðalleikarar. Við héldum
svipaða tónleika í Landa-
kotskirkju árið 1998, rétt áð-
ur en við fórum bæði utan til
náms, ég til London en hann
til Páfagarðs. Við komum
heim á sama tíma og höfum
verið mjög samstiga.“
Finnst þér þessi tími að-
ventunnar hávaðasamur?
„Já, mér hefur fundist há-
vaðinn fara stigvaxandi ár
frá ári, en fyrir mér eru
þetta ekki jólin. Mér fannst
ekkert veita af því að bjóða
uppá lágstemmda tónleika.
Ég vil gefa fólki færi á að
upplifa kyrrðina, fara inná
við og finna frið hátíð-
arinnar sem í vændum er.
Því verða tónleikarnir fyrst
og fremst mjög trúarlegir
og einlægir.“
Er orgelið ekki hávaða-
samt?
„Nei, nei, það er hægt að
spila á orgel bæði hátt og
lágt. En það þarf ansi stórt
orgel til að yfirgnæfa mig,“
segir Hallveig og skellihlær.
Ekki átt við
Glohohohor-
íu-trillurnar
STIKLA
Kyrrðar-
tónleikar
í Neskirkju
helgag@mbl.is
Myndlist
Borgarskjalasafn,
Grófarhúsi: Ólíkt – en líkt.
Til 2. febr.
Gallerí Hlemmur: Egill Sæ-
björnsson. Til 20. des.
Gallerí Skuggi, Hverfis-
götu 39: Áslaug Arna Stef-
ánsdóttir. Til 21. des.
Gallerí Sævars Karls:
Claus Egemose. Til 31. des.
Gerðarsafn: Carnegie Art-
verðlaunin.Til 22. feb.
Gerðuberg: Myndskreyt-
ingar úr nýjum barnabókum.
Til 11. jan.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar. Jólasýn-
ing: Fyrstu jólin. Til 22. des.
Hallgrímskirkja: Bragi Ás-
geirsson. Til 25. febr.
Hús málaranna, Eiðis-
torgi: Þór Magnús Kapor og
Benedikt S. Lafleur. Til 21.
des.
i8, Klapparstíg 33: Hreinn
Friðfinnsson. Undir stiganum:
Magnús Logi Kristinsson. Til
10. jan.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Fjölbreytt jóla-
sýning. Til 4. jan.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið fyrir hópa eftir
samkomulagi í desember og
janúar.
Listasafn Íslands: Íslensk
myndlist 1960–80. Til 11.
jan.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Nútíma-
maðurinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsi: Ólafur Magn-
ússon – konunglegur hirð-
ljósmyndari. Til 4. jan. Dom-
inique Perrault arkitekt. 21.
des. Erró-stríð. Til 3. jan.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Ferðafuða.
Myndlistarhúsið á Miklatúni.
Til 25. jan.
Listhús Ófeigs:
Ína Salóme. Til 30. des.
Mokkakaffi:
Olga Pálsdóttir. Til 10. jan.
Nýlistasafnið:
Samtímalist í aldarfjórðung –
1978–2003. Til 21. des.
ReykjavíkurAkademían:
Örn Karlsson – yfirlitssýning.
Til 1. febr.
Safn – Laugavegi 37:
Opið mið.–sun. kl. 14–18. Ís-
lensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk. Breski listamaðurinn
Adam Barker-Mill. Lawrence
Weiner: Fimm nýjar teikni-
myndir. Til 1. mars. Hreinn
Friðfinnsson. Til 15. febr.
Leiðsögn alla laugardaga kl.
14.
Skálholtsskóli:
Staðarlistamenn – Jóhanna
Þórðardóttir. Jón Reykdal. Til
1. febrúar.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Fredie Beckmans. Til 11. jan-
úar. Snorri Ásmundsson. Til
8. jan.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðarins
– Jóhannes úr Kötlum. Hvað
er heimsminjaskrá UNESCO?
Til 31. des.
Leiklist
Borgarleikhúsið: Grease,
lau.
Tjarnarbíó:
Ævintýrið um Augastein, sun.
Tilkynningar, sem birtast
eiga á þessari síðu, þurfa að
berast í síðasta lagi árdegis á
fimmtudegi, á netfangið
menning@mbl.is.
Morgunblaðið/Eggert
Egill Sæbjörnsson sýnir í Galleríi Hlemmi.
Á UNDANFÖRNUM árum
hefur skapast hefð fyrir því
á Þorláksmessu, að vegfar-
endur fái að hlýða á „ten-
órana þrjá“ á svölum Kaffi
Sólons í Bankastræti kl.
20.30. Söngur þeirra er
orðinn hluti af þeirri
stemmningu sem skapast í
miðborg Reykjavíkur á Þor-
láksmessu. Tenórarnir þrír
eru ekki þeir sömu ár frá
ári, enda ræður oft hvaða
stórsöngvari er heima
hverju sinni. Í ár eru það
Kolbeinn Ketilsson, Þorgeir
J. Andrésson og Snorri
Wium, sem syngja nokkur
vel valin jólalög og þekktar
aríur af svölunum.
Í ár verður sú nýbreytni
höfð á að tenórarnir þrír fá
þrjár sópransöngkonur sér
til fulltingis, þær Valgerði
Guðnadóttur, Huldu Björk
Garðarsdóttur og Öldu Ingi-
bergsdóttur.
Það er Höfuðborgarstofa
sem stendur fyrir tónleik-
unum.
Tenórar og sópranar
á svölum Kaffi Sólons
Snorri WiumÞorgeir J. Andrésson
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Kolbeinn Jón Ketilsson er einn af tenórunum þremur.