Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. APRÍL 2004 9 má nefna aðstæður skapandi einstaklinga í gagnrýnni andstöðu við ríkjandi öfl samfélags- ins. Stephan reyndi einlægt að styðja viðleitni manna til menntunar og fræða þótt hún væri fálmandi. Þessir þræðir eru ofnir með ýmsum hætti inn í meginþráð ævisögunnar. Um leið og frásögnin veitir yfirsýn myndast spenna milli heildarinnar og stakra þráða. Sög- ur af einstaklingum eru ekki línulaga, þær eiga að sýna margslunginn „vef mannlegra tengsla“.7 Ljúka þurfti uppkasti að öllu verkinu áður en hreinritun hófst einmitt til að glíma við þetta atriði – hvernig einstök atriði tengjast hinum samsetta vef og heildarframvindunni. Sjálfssköpun „Satt er það sem mælt er að engi maður skapar sig sjálfur“, sagði Grettir sterki en því neitaði Stephan. Hann var ekki tímaskekkja eins og Grettir og Don Kíkóti heldur á undan sinni samtíð. Með fróðleiksfýsn og sköpunar- þörf að vopni tók hann örlög sín í eigin hendur. Hann tileinkaði sér hugmyndir Emersons um sjálfstraust og sjálfssköpun. Þegar Stephan flutti til Kanada kom hann sér fyrir í útjaðri mannlegs samfélags og reyndi að skapa sjálfan sig og hið litla sjálfsþurftasamfélag landnem- anna. Í þeirri stöðu gat hann ræktað sjálfs- myndina af bónda sem orti akur og kvað sér til hugarhægðar. Þegar sú mynd var smíðuð sá hann heiminn af hærri sjónarhól, greindi hann, gagnrýndi og skopaðist að honum. En þegar leið á ævina snerist sjálfssköpunin upp í varn- arbaráttu þegar stríð, kapítalismi, firring og nútími þrengdu að. Stephan var sjálfstæður bóndi sem komst þó ekki hjá því að sá æ meir í akur óvinar síns þótt hann tæki þátt í pólitískri baráttu bænda gegn auðmagninu. Við ritun ævisögunnar þurfti að takast á við sjálfssköpun Stephans, hvernig hann kynnir sjálfan sig fyrir framtíðinni í verkum sínum og bréfum. Hann var fljótur að setja saman sjálfs- ævisögubrot fyrir Baldur Sveinsson, það sýnir hve skýr sjálfsmyndin var.8 Óhjákvæmilega myndast spenna milli sjálfsmyndar Stephans og þeirrar sögu sem ævisagan rekur. Ævisögu- höfundur má ekki láta viðfangsefnið taka af sér völdin. Hann verður sjálfur að túlka athafnir og innra líf söguhetjunnar og setja fram sem sitt eigið verk. Þegar menn skrá eigin ævi líta þeir á ferilinn sem leið að áfangastað. Ævisaga þarf að ljúka mynd af söguhetjunni en sú mynd getur hæglega verið brotakennd, mótsagna- kennd og jafnvel allt önnur en sjálfsmynd söguhetjunnar. Spennan milli sjálfskynningar Stephans og þeirrar myndar sem ævisagan dregur upp sést vel í frásögninni af síðustu mánuðunum sem hann lifði. Í bréfum skopast hann að sjálfum sér og virðist æðrulaus í baráttu við dauðann. Ekki þarf að fara í grafgötur með að sú barátta hafi verið mun sársaukafyllri en hann gefur til kynna með þessum hálfkæringi. Jafnvel Krist- ur bað föðurinn að taka slíkan kaleik frá sér, í angist dauðans varð sviti hans eins og blóð- dropar (Lúk. 22: 42–44). Bréf Helgu og Rósu bera vott um að barátta Stephans hafi verið erfið og hann hafi jafnvel örvænt á stundum. Samt er sem Stephan hafi dáið sáttur. Hann aflaði sér þekkingar og menntunar, fann striti sínu skapandi merkingu og mótaði veraldlega trú á það að yrkja jörðina nýjum kynslóðum. Með því komst hann út úr þeim vítahring erf- iðis sem faðir hans hafði setið fastur í. Sú sátt Stephans var niðurstaðan af fjölþættri átaka- sögu. Heimildir: 1 Páll Skúlason. „Hugleiðingar um heimspeki og frá- sagnir“. Pælingar Reykjavík 1987: 39-40. 2 Sigurður Gylfi Magnússon. Menntun ást og sorg. Reykjavík 1997: 16-17 3 Mikhail Bakhtin. Speech Genres & Other Late Essays. Austin 1986: 159-170. 4 Mikhail Bakhtin. „Discourse in the Novel“. The Dialogic Imagination, Austin 1981: 249-422. 5 Paul Ricoeur. Time and Narrative I. Chicago 1984: 66. Immanuel Kant. Kritik der reinen Vernunft. Frank- furt am Main 1974 [1787]: 184. 6 Carlo Ginzburg. „Einasagan: Eitt og annað sem ég veit um hana“. Molar og mygla. Ritstjórar Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Hafstein. Reykjavík 2000: 51. 7 Hannah Arendt. The Human Condition. Chicago 1998: 184. 8 Úlfar Bragason. „Orð vex af orði. Um sjálfsævisögu- drög Stephans G. Stephanssonar“. Andvari 118 (1993): 110-120. Höfundur er bókmenntafræðingur í Reykjavíkur- Akademíunni. „Svo er annað, í bréfum er oft eina „æfisagan“ að gagni – ég á við þá sem æðst er og innanbrjósts. Þau eru eins og skjáir á þekju úti, þeim sem inni er, sýna með því hvernig stráin beygjast, hvaðan vindurinn stendur, það er að segja, þau sem eru um annað en veðurfar og búrdalla,“ sagði Stephan . F yrir nokkru mátti fræðast um þær staðhæfingar Þorvaldar Þorsteins- sonar í Lesbók Morgunblaðsins (27. mars 2004) að allir menn væru skapandi, en fáir vissu af því, og að það væri misskilningur eða lygi að listamenn einir réðu yfir sköpunar- gáfu. Máli sínu til stuðnings stillir Þorvaldur viðurkenndum klisjum um háleitar list- ir og þjóna þeirra, listamennina, upp sem and- stæðu við daglegt amstur venjulegs fólks. Þetta útspil Þorvaldar er auðskilið og í raun engar frétt- ir fyrir þá sem lengi hafa barist í því að sinna list- rænu starfi og hafa efasemdirnar einar með í far- teskinu. Það sem hins vegar er frétt í málinu er það að Þorvaldur er þarna að leita til almennings sem hráefnis (í listaverk?) og það gerir hann grímulaust. Hann byrjar grein sína, eða auglýs- ingu eins og hann vill kalla þetta skrif sitt, á því að tilkynna þá augljósu staðreynd að sköpunargáfa sé almenn og listirnar takmarkaðar, því þær rúmi ekki allt mannlegt atferli. Hann bætir síðan í og leggur áherslu á að hon- um finnist allt sem venjulegt fólk tekur sér fyrir hendur vera af sömu rótum runnið og listrænt starf og því jafnt að gæðum og inntaki. Annað er varla hægt að ráða af auglýsingunni, enda engu púðri eytt í að skilgreina sköpunina eða sköpunar- gáfuna og einungis gefið í skyn að rætur sköp- unarskilningsins séu ættaðar úr öðrum tíma, að- stæðum og viðhorfum sem lítið hafi með veruleika okkar og samtíma að gera. Látum það gott heita. Nú er það auðvitað þekkt að hugmyndin, eða eigum við að segja staðreyndin, um upphafningu listarinnar er gamalt fyrirbæri. Daglegt bjástur manna og handverk var um langan aldur höfund- arlaust og í sjálfu sér ekki þörf á slíku í guð- dómlegu sköpunarverkinu þar sem Höfundurinn var einn og allir hans þjónar. Þegar hins vegar listamenn og kaupahéðnar sáu hvers virði original hugmynd og listaverk gat verið, bæði í andlegum og veraldlegum skilningi, var stutt í að menn sign- eruðu sitt pródúkt. Upphafningin hins vegar er yngra fyrirbæri og á sér rætur í því að menn reyndu af veikum mætti að skilja þá óumræðilegu dýpt sem falist gat í vel hugsuðu og óræðu lista- verki. Þessi skilningsárátta á dulmagni listarinnar hefur heldur vaxið síðan eins og þekkt er. Upp- hafning athafnarinnar „að skapa“ er hins vegar hástig þessa hugsunarháttar og beinist fyrst og fremst að þeim sem skapar og minna að því sem hann gerir – þetta er allt að því átrúnaður á Lista- manninn sem guðlega veru. Skilji ég Þorvald rétt, þá er hann ekki hrifinn af slíkri dýrkun og vill hvorttveggja í senn, fella listamanninn af stalli og upphefja dagsdaglegar athafnir sem hliðstæðu listrænnar sköpunar. Upphafning hins almenna og höfnun eða nið- urfærsla hins háleita er á margan hátt áhugaverð hugmynd, en að mínu viti ber hún í sér tilbreyt- ingalausa flatneskjuna. Og þegar hugmyndin er sett fram með þá blekkingu að leiðarljósi að „einkaréttur listamanna á hugmyndaflugi og frjó- um huga [hafi] rænt okkur meðvitundinni um þau tækifæri sem felast í öðrum starfsgreinum …“ er eins og allt vit sé úr henni og verið sé að afhjúpa eitthvert samsæri. Hver rændi hvern hverju? Hafa listamenn, menningarstofnanir og jafnvel samfélagið allt rænt almenning „[leyfinu] til skap- andi tjáningar í lífi sínu og starfi“? Hvernig fór það rán eiginlega fram og er samfélagið að ljúga einhverju í sjálft sig? Er samfélagið að gera ein- hverja vitleysu með því að meta frumlega nýsköp- un að verðleikum, sama hvaðan hún kemur? Er ályktun Þorvaldar um jafnræði allra athafna og athafnamanna sönnun þess að allt og allir séu að skila af sér merkilegum afurðum af því þeir geta ekki gert neitt án þess að teljast skapandi? Hér held ég að Þorvaldur sé á hálum ís, enda ljóst að það eitt að draga lífsandann telst til sköpunar- atburðar og vitnar um „… návist sköpunarmátt- arins í daglegum samskiptum fólks …“ Ég sé ekki betur en eitthvað annað og duldara hangi á spýt- unni en löngun hans til allsheljarleiðréttingar á óþolandi ástandi. Nú er það rétt hjá Þorvaldi að „sköpunargáfa mannsins spannar svið sem er langtum víðfeðm- ara en nokkur upptalning á listgreinum eða tæknibrellum nær yfir“. Það þarf enga sérstaka lindarheila til að sjá það í hendi sér, en það sem hins vegar orkar tvímælis er að það „að gera eitt- hvað“ beri endilega vott um skapandi huga. Það að draga menn í hópa eftir athafnasemi sinni ber ekki vott um annað en að þeir sem sinna sköpun á því sviði eru nefndir eftir starfsgrein sinni – lista- menn skapa listaverk og bændur sinna búskap. Það að bændur og útgerðarmenn og sjómenn hafi heil ráðuneyti sem ráðskast með störf þeirra ber ekki vott um annað en það þurfi að koma böndum á sköpunarþörf þeirra og athafnasemi. Það segir sitt um mikilvægi starfanna, en ekkert um inni- hald starfsins sem skapandi framlags, og á sama hátt má segja að listasöfn og menningarstofnanir starfi í þágu þeirra sem sinna listsköpun og jafn- framt þeirra sem vilja heimsækja þau. Hvort listasöfn hins vegar eru mikilvægari en búgarðar eða frystitogarar í samfélaginu er algerlega ab- strakt spurning. Ég reikna með því að margir listamenn teldu frystitogara merkilegri og áhuga- verðari vinnustað en listasöfn eða vinnustofur sín- ar og öfugt, en slík pæling segir akkúrat ekkert til um mikilvægi sköpunarinnar eða starfanna á hvorum stað fyrir sig. Það að veiða fisk og verka í svöngum heimi er göfugt starf og stundum arð- bært að auki, en ég hef ekki orðið var við það í mínu lífi að það teldist óæðra starf vegna þess að það eru til listamenn í samfélaginu og sumir þeirra meira að segja metnir að verðleikum. Á sama hátt get ég ekki séð að listamenn séu slíkir hálfvitar að halda því fram að þeirra störf séu merkilegri en sjómanna, af því að þeir eru að leit- ast við að skapa listaverk sem eiga sér fáar ef nokkrar hliðstæður. Störfin eru bara ólík. Og á sama hátt get ég ekki séð vitleysuna í því að lista- söfn safni list, frekar en læknaminjasafnið safni læknaminjum og báðar stofnanirnar geri þeim hlutum hátt undir höfði. Eða að Lesbókin sinni menningu, listum og þjóðfræði og dreifi jafnvel hugmyndum listamanna og auglýsingum um námskeið. Það er hlutverk stofnana að rétta fram afurðir sínar svo aðrir megi njóta þeirra og því hafna ég kenningu Þorvaldar um að með því móti sé um leið verið að gera lítið úr öðrum þáttum eða störfum í samfélaginu og draga menn í dilka. Fjöldi listamanna hefur unnið á mörkum hins almenna og sértæka á undanförnum árum líkt og Þorvaldur og hefur stundum verið kallað inngrip eða íhlutun og „intervention“ á erlendum málum. Ástæður slíkra þreifinga eru margþættar eins og vænta má, en samandregið má segja að listamenn hafi með markvissum hætti reynt að stækka mengi listarinnar og færa út landamæri með því að auka þátttöku almennings í listsköpun og draga fram mikilvægi almennrar sköpunar. Í flestum ef ekki öllum þeim tilfellum sem ég þekki til er þetta gert af mikilli nærfærni og skiln- ingi á samfélaginu og framlagi hvers og eins. Þar er unnið með fólki, en ekki með það. Það hins veg- ar að líta á fólk sem hráefni í námskeið hjá lista- manni „til hvatningar fyrir þá sem langar að kynnast eigin sköpunargáfu og eru tilbúnir til að taka ábyrgð á því að vera skapandi einstaklingar á sínum vettvangi“ ber vott um óvenjumikinn hroka gagnvart skapandi fólki hvar í stétt sem það stendur. Þarna stendur LISTAMAÐURINN frammi fyrir hráefni sínu og bíður þess að afhjúpa leyndardómana í efninu. Þvílík klisja um stöðu listamannsins! Ég hef ekki séð listamann taka sér hærri stöðu gagnvart öðru fólki og öðrum störfum en hér um ræðir, enda algert nýmæli að listamenn taki aðra skapandi einstaklinga í meðferð í eigin ágæti. Þetta er „stofnanavæðing sköpunarinnar“ í sinni leiðinlegustu mynd og hástig handleiðslunn- ar, enda blasir við að þarna er Listamaðurinn að setja sjálfan sig í hlutverk afhjúpandi kyndilbera sannleikans og ég nefndi hástig upphafningarinn- ar hér að framan. Í grein í þessari sömu Lesbók er Þorvaldur sagður „afhjúpa listheiminn sem upphafinn strúktúr“. Það gerir hann ekki, en mér sýnist hann miklu fremur afhjúpa Listamanninn sjálfan sig sem upphafinn strúktúr á námskeiði sem á að afhjúpa sköpunargáfu annarra með hans eigin listrænu meðulum. Þarna er Listamaðurinn í há- sæti og það grágrettnislega er að þetta er enn ein sönnun þess „að sköpunargáfan [hefur] fyrst og fremst tekið sér bólfestu í fólki sem tengist háleit- um listum og viðurkenndu menningarstarfi“ og ætlar að verða lífseigt fyrirbæri. Þetta er því ekki góð hugmynd og hittir sjálfa sig fyrir í því að hefja listamanninn á hærri stall en áður. Nóg er nú samt. Höfundur er myndlistarmaður. ALLIR AFHJÚPAÐIR Að líta á fólk sem hráefni í námskeið hjá listamanni, eins og Þorvaldur Þorsteinsson gerði í Lesbók nýlega, ber vott um óvenju mikinn hroka gagnvart skapandi fólki hvar í stétt sem það stendur, segir í þessari grein. E F T I R K R I S T I N E . H R A F N S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.