Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Side 7

Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Side 7
búskap að nýju, fyrst að Kambi í Holtum og síðar í Tungu í Vestur- Landeyjum, en árið 1930 fluttu þau hjónin búskap sinn að Kana- stöðum í Austur-Landeyjum, en þá jörð keyptu þau og bjuggu þar síðan rausnarbúi, þar til þau fluttu til Reykjavíkur árið 1945, en þar hafa þau átt heimili síðan. Börn Elíasar og Karenar eru dætur tvær, Kristán, gift Jóni Sig urjónssyni, forstjóra og Anna gift Erni Gunnarssyni, kennara við Heyrnleysingjaskólann i Reykja v£k. Elías var vinsæll, enda jafnan léttur í lund í góðra vina hópi, gestrisinn með afbrigðum oe hjálp samur og áttu bæði hjónin þar ó- skipta aðild að. ■ Á yngri árum var hann áræð- inn og röskur í klettum og tor leiði vestfirzku fjallanna, enda ai- gengt að leita til hans ef bjarga þurfti fé úr sjálfheldu, sem oft kom fyrir. f búskap sínum reynd ist hann forsjáll og dugandi, enda komst hann þar til góðra bjarg álna, með aðstoð konu sinnar, sem , jafnan reyndist forsjál húsmóðir. Hann var og maður verklaginn og starfssamur og átti þrátt fyrir há- an aldur, þvi sjaldgæfa láni að fagna að halda starfsorku til hinzta dags. Útför Elíasar fór fram (mánu- daginn 8. september), en minning- in um góðan dreng lifir. S.J. MINNING SIGURÐUR HANNESSON, BAKARI Oftast virðist dauðimn harður og miskunnarlaus, en stundum líkn. Það var harður dómur fyrir mann eins og Sigurð Hannesson, fullan lífsorku og starfslöngunar, að missa heilsuna löngu fyrir ald- ur fram. 1 tíu ár bjó hann í ná býli við dauðann, en bar sig karlmannlega, vitandi þó, að hverju stefndi. Hann lézt í Heilsu verndarstöðinni í Reykiavik 21. september s. 1., nýlega orðinn sex- tugur. Sigurður Einar Hannesson, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur i Reykjavik 7. september 1909 og bjó mestan aldur sinn hér í borg, starfaði lengst af sem bakari, en þá iðn hóf hann að læra í Keflavík, ungur að aldri. Hinn 17. júlí 1933 var mikill ham ingjudagur í lifi Sigurðar. Þá kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Laufeyju Benediktsdóttur, hinni mestu ágætiskonu, sem bjó honum og bömum þeirra gott heimili. Börn þeirra urðu fimm, en fyrsta barn sitt misstu þau, aðeins sex mánaða gamalt. Syn- irnir eru þrír, Benedikt, Grétar og Haukur, sem er yngstur, og ein dóttir, Erla, allt myndarfólk. Sigurður heitinn hafði mikla ánægju af félagsstörfum og átti m. a. sæti í stjórn Bakarsveinafé- lagsins og stjórn Knattspyrnufélags ins Fram. Sá, sem þetta ritar, kynntist Sigurði, er hann starfaði fyrir Fram, en störf Sigurðar fyr ir það félag voru drjúg. Hann var hændur að unglingum og hafði mikla ánægju af því að vinna fyr ir þá. Seint er hægt að gleyma ánægjusvipnum á Sigurði, þegar hann var að undirbúa kaffifund ina fyrir yngstu knattspyrnumenn félagsins. Hann sparaði hvorki vinnu né fyrirhöfn til að geta glatt þá yngstu — og gladdist með þeim. Framkoma hans var bein og hrein og hann hikaði aldrei við að láta álit sitt í ljós, án til- lits til þess, hvort það aflaði hon um vinsælda eða ekki. Slíkir menn eru ekki á hverju strái, eD slíkur maður var Sigurður. Fyrir tiu árum varð hann fyrir því áfalli að missa heilsuna á einni nóttu. Færustu læknar, bæði hér og erlendis, reyndu að hjálpa honum. Og um tíma leit út fyrir, að hann hlyti einhvern bata. En fljótlega færðist í sama horf, og l tíu löng ár beið, þessi annars hrausti og glaðværi maður, dauða síns. Eftirlifandi konu hans og börn- um votta ég samúð. — alf Kveðja frá barnabarnum. Elsku góði afi okkur hönd þín leiddí, þú sagðir okkur sösur sorgunum það eyddi A hið göfga og góða gjörðir þú að benda. sagðir, Guð er góður geislana að senda Bentir þú á biómin bjart þá lýsti sóUn. sagðir, allt h:ð unga ylrík þráir skióiin. Víst þú alla verma vildir hlýju binni. Geymdir æskuárin ætíð þér í nvnrti Vð þökkum elsku afi allt hið góða oa biarta. oft þú okkur veittir yl frá þínu hjarta. Minningin þín miðlar mörgum geislum hlýjum Alltaf sigrar sólin sorta af dökkum skýjum. Okkur barnabænir blíður oft þú kenndir, þær sem gull skal geyma. í gröf ei lífs er endir Jesú ljós oss lýsi lífsins skuggum eyði. Hann, þig elsku afi inn til dýrðar leiði. G. G. frá Melgerði. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.