Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Blaðsíða 13

Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Blaðsíða 13
inn, að því undanskildu, að íslenzk una kenndi Stefán Sveinsson, sá ágætasti kennari, sem á varð kosið og frábært ljúfmenni. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur um, að fjölþætt kennsla krefst mikils starfs, ekki sízt, þeg ar hún er rækt með slíkri alúð, sean einkenndi Ásgeir Magnússon. Hann mun sjálfur aldrei hafa kom ið hér í kennslustund til nemenda sinna án sérstafcs undirbúnings, hirort heldur var í fimleikum eða búblegum fræðum. Ég get rifjað það upp, að hann kenndi oft með fyrirlestrum bæði sögu og íleiri námsgreinar. Reikning kenndi hann búkar laust, a.m.k. fyrsta veturinn. Mun það hafa valdið mestu um, að stærðfræði hefur verið sú fræði- grein, er hann hafði tekið ástfóstri við og ijós þekking á því, að stærð fræðinám verður að byggjast á skilningi og rökhugsun“. Fleiri fluttu ávörp og þakklæti sitt til skólans, þ.á.rn. síra Valdi- mar Eylands prestur í Vestur- heimi. Hann sagði m.a.: „Mjög er tvísýnt, að ég hefði nokkru sinni haldið inn á þá braut, sem ég hef síðan gengið, ef þessi skóli hefði ekki verið hér á sinn: tíð. Löngun til náms hafðj ég að visu, en hana hafa margir haft og hæfileika, en hún hefur verið kviksett vegna skorts á tækifær um.Þessi skóli var mér tækifæri. Ilér fékk ég frekari hvót til framsóknar og aukið sjálfst.raust. Ég tel víst, að þið skólasystkin mín munið öll ljúka upp einum munni um það, að skólavistin hafi orðið ykkur til blessunar hvaða stöðu eða stétt, sem þér hafið val- ið yður. Návist yðar í dag ber vitni um það“. í sjö ár tókst Ás- geiri að reka þennan skóla sinn við hina ótrúlegustu erfiðleika. fvrri h eim sty rj al d ará r i n, h ækk a n di vöruverð og vöruskort og einn kaldasta vetur, sem yfir landið hafði komið. En það, sem bugaði hann, var, að taugaveiki kom upp í skólanum. Það kom síðar fram, að taugaveiki hafði leynzt í hérað- inu um sumarið, en almennt var talið, að hún hefði komið upp í skólanuim og var það álitshnekkir og of fáar umsóknir bárust. Lýs- ingu á þessu er að fmna i erindi því, sem Ásgeir flutti við þetta sama tækifæri og birt er i bók bróður hans, Magnúsar Magnús- sonar, Ég minnist þeirra, ásamt ræðum þeirra Kristmundar og síra Valdimars. — Síðar stofnaði Ás- geir ásamt Unni konu sinni sjóð til að styrkja námsfólk úr V-Húna vatnssýslu tii vísindanáms. Ásgeir lét það ekki á sig fá, þó að hann yrði að gefast upp við skólann, heldur stundaði hann ým- is störf, kennslu og íleira þar til hann flyzt til Reykjavíkur 1923, en það er frá þeim tíma, s em endunminningar mín ar um hann eru. Hann bjó þá uim skeið á heimili foreldra minna, en var ráðinn kennari að Miðbæj- arbarnaskólanum. Mér hafði verið gefið stafrófskver, meira af rælni en búizt væri við, að ég mundi lœra að lesa strax. En þarna fékk ég kennarann og^ man ég, að ég hljóp ailtaf til Ásgeirs og bað hann að segja mér nöfn staíanna og fyrr en nokkurn varði, var ég farinn að tengja saman í orð. Ás- geir prófaði mig 1 Jobsbók og man ég lítið frá því, enda víst skilið lítið, en Ásgeir sagði mér frá því síðar. Hann lét sér mjög annt um kunnáttu mína og hafði áhyggjur af, að ég yrði Mtt skrifandi, en sjálfur skrifaði hann hina fegurstu hönd, svo sem kunnugt er af hinum fögru hand- ritum hans. Hann lét mig því í einkatíma í skrift, 6 ára gamla, til Guðlaugar Arason, sem var fræg- ur skriftarkennari í Reykjavik, en Htinn árangur mun þetta hafa bor- ið. Seinna varð hann svo kennari minn 1 barnaskóla, þar til Mann lét af kennslu til að gerast fréttastjóri hins nýstofnaða Ríkisútvarps, árið 1930, mér til mikillar sorgar. Frá árinu 1930—40 var hann fréttastjóri innlendra frétta, en starfaði jafnfraimt á teiknistofu bæjarsímans í Reykjavík og frá 1940 vann hann þar eingöngu og m.a. teiknaði hann þar jarðsíma- kerfi Reykjavíkur. Það virðist nú, að þarna sé tal- ið það, sem nægt hefði til ævi starfs flestum mönnum en fleira skal þó til telja. Ásgeir hafði yndi af búskap og rak um skeið bú að Ægissíðu við Kleppsveg og eitt skeið hugðist hann gera búskapn- uim meiri skil og keypti stórbýHð Þórustaði í Ölfusi og átti um hríð. Hann var mjög verklaginn og reisti sér þrisvar sinnum íbúðar- hús bæði einhýli og með öðrum og vildi hafa allt með myndarbrag En þá er óvikið að ritstorfum Ásgeirs. Áður var minnzt á áhuga hans á stjörnufræil og um þau efni gaf hann út Vetrarbrautina alþýðlegt fræðirit, prýðilega sam- ið á fögru má'li. Hann átti bréfa- skipti við stjarnfræðinga erlenda og birti oft ^reinar í tímaritum um þau efni. Lengst mun þó halda nafni hans á lofti Johsbók, sem hann sneri í bundið mál íslenzkt. eftir brezkri þýðingu frá 1885. Frumritið skrautritaði Ásgeir sjálf ur og sendi Manitoba háskóla að gjöf. Þótti það hið fegursta rit. En sá þáttur í fari Ásgeirs að gera alla hluti eins vel og kostur var, olli því, að hann hóf að nema hebresku, er hann var kominn á sjötugsaldur og þýddi Jobsbók aft- ur og sfcrautritaði enn þýðingu sína og hlaut verðlaun í Kirkju- ráði fyrir. Var 'hún gefin út ljós- prentuð ásarnt skrautrituðum þýð ingum hans af sálmunum, orðs- kviðunum og predikaranum, 1965 af Menningarsjóði og er ein feg- ursta bók, er út hefur komið á fs- landi. Um Þýðiagu Ásgeirs er það að segja, að séra Guðmundnr Sveins son, fyrrverandi kennari við Há- skólann og lærður í semetiskum. fræðum, hefur lokið á hana hinu tnesta lofsorði. Hann bar þýðing- una saman við frumtextann og seg ir í einu bréfi til Ásgeirs: . . mér þykir það eitt hið skemmtilegasta, sem ég geri, að at huga þýðingu yðar, og ég er hrif- inn af því bversu yður tekst að túlka erlendan texta á fögru máH og hrynjandi . . .“ Síðari ár Ásgeirs var hann heiisutæpur, m.a. var sjónin þverr andi, en samt féli honum aldrei verk úr hendi og eftir hann liggja mörg handrit í bundnu máli, rituð rneð hinni fögru rithönd hans, en að hann skyldi geta haldið áfram svo lengi þrátt fyrir heilsuleysi sitt þakkaði hann konu sinni Unni Ás- mundsdóttur, sem annaðist hann af stakri kostgæfni. Ásgeir var þríkvæntur Fyrsta kona hans var Ingibjörg Björns- döttir frá Bæ. Með 2. konu sinni, Karolínu Sigurbergsdóttur eignað- ist hann tvær dætur, er iifa föður sinn. Af öllu framansögðu má sjá, að Ásgeir var ákaflega fjölhæfur mað ur og mætti ætla, að he'ði hann lifað við þau menntunarskiiyrði, er nú tíðkast, hefði hann orðið mik- ill vísindamaður. Gerður Magnúsdóttir. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.