Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Blaðsíða 14

Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Blaðsíða 14
MINNING SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Húsfreyja í Eyvindartungu S.l. sunnudag lézt í sjúkrahus- inu að Selfossi Sigríður Jónsdórlir, húsfreyja í Eyvindartungu í Laug ardal. Sigríður fæddist að Stiflis- dal 1 Þingvallasveit 8. maiz 1894. Hún var í hópi níu barna hjónanna Jóns Ásmundssoar og Bóthildar ís- leifsdóttur, sem þar bjuggu um skeið. Foreldrar Sigriðar voru efnalítil eins og algengt var um barnmarg- ar fjölskyldur á þeim tíma og ekki þekktist þá aðstoð af hálfu þjóð- félagsins eins og nú er veitt af al mannatryggingum. Þau hjónin munu því hafa ótt- ast það, að geta ekki fætt og klætt allan barnahópinn sinn á þann hátt, er þau töldu viðunandi Þeim bauðst fóstur fyrir eitt barn hjá frændfólki sínu í Efstadal i Laug- ardal og í það fóstur valdist Sig- ríður. Hún var fjögurra ára gömul er hún fór að heiman frá foreldr um sínum að Efstadal. Sigríði mun hafa tekið sárt að skilja við foreldra sína og mörg glaðilynd og ástkær sysfkin. I Efstadal var efnahagur góður og að mörgu leyti fyrirmyndar- heimili, en engin veraldleg gæði gátu komið í stað ástríkis góðra foreldra fyrir óþroskaða barnssál- ina. Sigríður var að eðlisfari dul í skapi og hefur vafalaust levnt til- finningum sinum, svo sem barni er fært að gera, en auðfundið var á efri árum hennar, að sárinda gætti hjá henni yfir því, hversu ung hún þurfti að hverfa frá for- eldrum sínum. Sigríður átti heimili í Efstadal fram yfir tvítugsaldur eða allt til þess að hún fór að búa sjálf. þó hvarf hún að heiman, eins og ungu fóllki er títt, um tíma til að sjá sig um í veröldinni. Einn vetrartíma, þegar hún var 19 ára dvaldi hún i Reykjavík við að læra fatasaum. En þá varð hún fyrir þeirri raun að veikjast af taugaveiki og lá hún I henni um fimm mánaða skeið og var um tíma tvísýnt um líf hennar. Aldrei mun hún hafa beðið þess bætur að fullu. Eitt sinn fór hún einnig í kaupa- vinnu norður í Eyjafjörð og eign- aðist hún þar vini, sem hún hélt tryggð við til æviloka. Tímamót urðu í lífi Sigriðar ár ið 1917, er ungur sveinn úr Reykja vífc, Teitur Eyjólfsson að nafni, fcom að Efstadal. Kynni þeirra Teits og Sigríðar leiddu til hjóna- bands þeirra. Þau hófu búskao að Böðmóðsstöðum í Laugardal vorið 1921 en árið 1923 keyptu þau Ey- vindartungu, sem varð framtiðar- heimili þeirra. Teitur var fjölgáfaður hugsjóna maður, fullur af athafnaþrá, og bjó yfir mikilli orku til að koma áhugamálum sínum áfram. Strax og þau komu að Eyvindartungu hófst hann handa um hvers konar umbætur á jörðinni. Hann var mað ur nýs tíma og honum fylgdu ný- ir hættir. Hann ræktaði í stærri stíl en áður hafði verið gert, beizl aði Sandá til rafmagnsframleiðslu fyrir heimilið og byggði bæjar og skepnuhús úr steinsteypu. Þessum framfcvæmdum hans fylgdu því mikil umsvif á heimilinu. En sam- hliða þessuim miklu umsvifum í búskap sinum tók hann jafnframt að sér forystu í sveitarmálum í Laugardal. Allt þetta leiddi til þess að mifcl- ar annir hlóðust á Sigríði við heim- ilisstörfin, sem einnig urðu mikl ar vegna vaxandi ómegðar þeirra hjóna. Þeim fæddust á þessum ár- um sjö börn, sem öll komust til þroska. En hjónin voru hvort á sínu sviði óvenju vel verki farin, dugleg og áhugasöm-og þvi bless- aðist afkoman vel. Þegar kom fram á fjórða ára- tuginn kom vágestur í islenzkar sveitir. — mæðiveikin illræmda. í þessari pllágu hrundi niður fjár stofn bænda og þanrng fór hjá hjónunum í Eyvindartungu. Þ°tla varð til þess að Teitur tei raði fyr- ir sér um aðrar leiðir til tekjuöfl- unar til framfærzlu fjöiskyldu sinnar. Haustið 1939 var 'nann ráð inn forstjóri vinnuhælisins að Litla-Hrauni og var hann forstjóri þess í sjö ár. Eftir það kom hann heim aftur en fór þó fljótiega að vinna utan heimilis á ný m.a. tók hann að sér framkvæmdastjórn við hafnargerð i Þorláfcshöfn og var við það í nokkur ár. Seinustu ævi- árin var hann með iðnrekstur í Hveragerði. Teitur dó sumarið 1966. Við þessa breytingu i starfi Teits færðust aufcnar skyldur á bak húsfreyjunnar í Eyvindar- tungu, sem hélt áfram búskapn- um með börnum sínum, sem þá voru að vaxa úr grasi. Elzti son urinn, Jón, tófc ungur við forráð- ‘Uim búsins utanbæjar og hefur um mörg síðustu árin rekið búið á eig- in spýtur með móður sinni. Sigríður var vel verki farin og affcastamifcil, vann hljóðlega og 14 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.