Íslendingaþættir Tímans - 15.03.1973, Page 1

Íslendingaþættir Tímans - 15.03.1973, Page 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Fimmtudagur 15. marz 16. tölublað 6. árg. Nr. 101 TIMANS Jóhannes Bjarnason Jóhannes Bjarnason fæddist aö Pjallaskaga i Dýrafiröi 10. júli 1915. Hann var 8. barn foreldra sinna af 14. t>au voru Gunnjóna Vigfúsdóttir Nathanaelssonar i Alviöru og Bjarni Sigurðsson bóndi að Fjallaskaga. Þegar Jóhannes var 11 ára fluttust foreldyar hans að Lambadal i sömu sveit. Bróðir Bjarna, Guðmundur As- geir, og kona hans tóku hann þá i fóst- ur að Hólakoti, sem einnig var i Mýra- hreppi. Þar átti Jóhannes heimili þar til hann fluttist til Reykjavíkur. Hann fór strax og aldur leyföi á sjóinn. Þau störf vann hann unz heilsu hans var þannig farið, að þau hentuðu honum ekki. Vann Jóhannes hin siöari ár við verzlunarstörf hjá Asbirni ólafssyni. Hinn 23. desember 1950 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sina Margréti Kristjánsdóttur frá Tröö i önundar- firði. Þau eignuðust tvær dætur. Sú eldri er gift en hin ennþá barn að aldri. Heimili sitt reistu þau i Reykjavik og. hafa búið þar æ siðan. Hann andaðist að Landakoti 1. september. 1972. Það er ekki fyrir daglegan samgang' eða nána deilingu kjara okkar i milli umfram það, sem sveitungar og vinir hittast hér i borginni ýmissa atvika vegna, sem kemur mér til að minnast hans nú. Ég þarf heldur ekki að segja þeim, er þekktu hann, hver manngerð hans var. En mig langar til að minnast hans vegna þess, hversu fagurt for- dæmi hann gaf þeim, er um það vilja hugsa eða hafa spurnir af, innan hans stóra frændgarðs eða utan. Jóhannes fæddist svo sannarlega á mörkum hins byggilega heims. Opið haf og þver- hnipt björg umlykja Fjallaskaga. Það var algjörlega undir náttúruöflunum komið hvort nokkurrar hjálpar var að vænta utan að komandi, hvað svo sem fyrir heföi komiö þar á bænum. 1 dag væri þaö talin ögrun við heilbrigða skynsemi að setja fólk þar niður til búsetu. Við þennan kalda veruleika glimdi fjölskylda hans og hlaut sigur. 1 þessu algleymi einangrunarinnar hlaut sál hans slna fyrstu mótun. Hann fékk fljótt að vita aö hendurnar voru til aö vinna með, fæturnir til að standa á og Guösviljinn til að styðjast við. Engra annarra kosta var völ dreng þess tima, sem borinn var i miðjum, stórum barnahópi en biða máttar sins og meg- ins og taka þá til starfa, sem hann og gerði svo vel, að eftir er munað af þeim, er til þekkja. Mér eru mjög minnisstæöir þeir dagar á sl. sumri, er við lágum bæöi I Landakotssjúkrahúsi. Þá töluöum við kannski meira saman en um ævina fram að þvi til samans. Hann sagöi mér hve viðbrigöin hefðu verið mikil að flytja að Hólakoti, þar sem stutt var til bæja á alla vegu. „Ég man að lengi vel þorði ég ekki að láta ókunnuga sjá mig brosa”, sagði hann, „mér fannst ég svo undur smár og litilmótlegur”. Eðlislæg feimni hefur átt sinn þátt I þessu á móti óvananum að hitta ókunnuga. Hann var hlédræg- ur og prúðmennskan einkenndi fas hans alla ævi. — Það voru yfirveguð orð, sem hann lét falla um þaö, að nú væri hann samkvæmt Guðsvilja aö skila þeim höndum, sem hann hefði fengið til aö vinna meö og þeim fótum sem hann fékk til að standa á. Hann vann meðan dagur entist og hann stóð föstum fótum á þeirri jörö, sem hann var borinn til. Þar kom til manndóms- eðli hans, sem var djúpstætt og vilji, sem var mjög einbeittur. Stærstur þáttur i farsæld hans var ást hans á konu sinni og heimili. Hann var þar lánsmaöur, þvi andinn var einn og samur þeirra beggja. Heimsins glaum og glys létu þau vikja fyrir öruggri uppbyggingu. „Ég er feröbúinn”, sagöi hann. Ég veit, að það var satt, svo mjög bar hann skyn á þetta afl, sem fer um, án spurnar. Hann hafði oft leitað hinna dýpstu raka, en fengið það eina svar, að þau lægju enn ekki á lausu. Sá mikli andlegi styrkur, sem hann hafði fram aö færa i helstriði sinu, mun verða mér sem ljós til aö horfa á, þótt minn biötfmi sé kannski I dag ekki greindur. Það er lærdómur, sem kemur á jöfnuð milli gleði og sorgar aö vera vitni að þvi, að maður á bezta aldri taki dauðastund sinni sem hann. Hann skilaði sinum degi meö sæmd. Mér varð hugsaö til litla drengsins, sem ekki þorði að brosa til ókunnugra fyrir rúmum 45 árum, þegar ég sá, að þaö hafði verið gert heyrum kunnugt, að sföasta verk hans hér I heimi var að ganga frá peningagjöf, sem skipti hundruöum þúsunda, er afhendast skyldi heimabyggð hans, Dýrafiröi, sem gjöf frá konu hans og honum. Það heföi nægt til að kaupa allar jarðir i Mýrahreppi á þeim tima, jafnvel betur. Hinn þröngi stakkur, sem hann var borinn til, haföi verið lagður til hliðar. Ég hygg að marga Dýrfiröinga hafi sett hljóða og hugsað þakklátum huga tilhans, sem þannig sýndi tryggð 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.