Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1973, Side 3

Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1973, Side 3
Asgrímur Sigurðsson Fæddur 26. jan. 1944 Dáinn 21. október 1973 Oss er svo léttgengt um æskunnar stig i ylgeislum himinsins náðar, og fyrir oss breiða brautirnar sig svo bjartar og rósum stráðar. Vér leikum oss, börnin, við lánið valt og lútum þó dauðans veldi, þvi áður en varir er allt orðið kalt og ævinnar dagur að kveldi. E. Ben. Enn einu sinni hefur maðurinn með ljáinn greitt þungt högg. Maður i blóma lifsins kallaður brott frá konu og tveimur ungum börnum. Við, sem eftir stöndum, leitum hnuggnir eftir svari. Hvers vegna þurfti þetta endilega að vera hann? Hvers vegna eru það ekki bara þeir öldnu, sem deyja, meðan hinir ungu fá að lifa? Við þessum og þvilikum spurningum fæst vist ekkert svar, en rök þeirra æðri máttarvaida, sem ráða örlögum manna, virðist oft erfitt að skilja. Asgrimur Sigurðsson fæddist þann 26. janúar 1944, og var þvi aðeins tuttugu og niu ára. er kallið kom. Hann varsonur þeirra ágætu hjóna Sigurðar Sigurðssonar og Ragnheiðar Ásgrims- dóttur. Við Ásgrimur voru nágrannar frá þvi að við fyrst litum dagsins ljós og vorum ekki háir i loftinu, þegar fyrstu kynni hófust. Við hið sorglega fráfall Asgrims leita margar bernsku- minningar á hugann: Það er barið að dyrum. A þröskuldinum stendur ' Asgrimur, árrisull aö vanda. Hann kann þvi illa að við félagarnir bælum rúmin fram á miðjan dag. svo það er um að gera að drifa sig i spjarirnar. Þegar út er komið, er haldið niður i fjöru. Þetta er bjartur vordagur i maí. og grásleppu- karlarnir eru að lenda. þegar við komuð niður eftir. Við hjálpum þeim að setja bátana. Siðan hefja þeir aðgerð. og við fáum nóg af hrogn- kelsalifur. sem er úrvals beita, Við höldum þvi næst út á Ufsaklett að veiða. Fiskurinn gefur sig vel til, þegar slik beita er annars vegar. Um hádegisbilið er haldið heim og ákveðið að fara i knattspyrnu á Fram- nesvöll eftir hádegi. Þar er lif i tuskunum, að vanda. Hörð barátta um knöttinn.krydduð mátulegu rifrildi þar sem enginn er dómarinn, gera leikinn meira spennandi en ella. Þó fær þetta allt farsælan endi, og heim höldum við móðir og másandi. Við setjum boltann á sinn vanastað, i gangarskápinn heima hjá Ásgrimi. Einhver stingur upp á þvi að halda upp á efstu hæðina, en þar búa afi og amma Asgrims, þau indælu hjón, Asgrimur og Ragnheiöur. Hjá þeim eigum við strákarnir alltaf vist athvarf. Og það bregzt ekki frekar en endranær, að vel sé á móti okkur tekiö. Við setjumst i stigann og drekkum gos og borðum smákökur. Þetta er indæl hressing eftir hlaupin. Þegar við höfum drukkið, borðað og skrafað um stund, er haldið út i örfirisey. Þar er dvalizt fram eftir degi. Sólin er farin að lækka sig, þegar við höldum heim, og við erum orðnir of seinir i matinn. Mæður okkar verða vfst ekki hýrar á svipinn, þegar við komum, en við erum nú á þeim aldri, að við tökum slika hluti ekki alvar- lega. Við skiljum við dyrnar hjá Ásgr- imi, og hver heldur til sins heima. Einn dagur i hamingjurikri bernsku er liðinn. Og hvað er betur til þess fallið að gera æskuárin hamingjusöm en góðir félagar? Einn slikur félagi var As- grimur. Hann var einstaklega þægi- legur i umgengni, glettinn og spaug- samur og kunni sjálfur vel að taka grini. Hann var ekki að tvinóna við að taka þátt i ýmsu ráðabruggi, sem okkur strákunum datt i hug. Ef vel tókst til, kunni hann manna bezt að gleðjast yfir velgengninni. Ef hins vegar eitthvað fór úrskeiðis, var honum jafn vel lagið að gera gott úr öllu saman og sætta sig við orðinn hlut. Illt umtal og rangsleitni voru honum fjarri skapi. Gott skap, ásamt sáttfýsi, ef þvi var að skipta, gerði það að verkum, að þar sem Ásgreimur var annars vegar, var aldrei um alvarleg illindi að ræða, eins og oft vill verða, þar sem margir strákar koma saman. En árin liðu. Litlu pollarnir á Holts- götunni komust á gelgjuskeiðið. Asgrimur fluttist á brott með foreldrum sinum i annan bæjarhluta. Hann lauk verzlunarnámi og hóf störf i verzlun föður sins. Einstök greiðvikni hans og lipurmennska gerði það að verkum, að maður leitaði ósjálfrátt til hans. Asgrimur kvæntist og eignaöist tvær dætur, og við sem þekktum hann sáum að hann var hamingjusamur. En þvi miður varð sú hamingja skamm- vinn. Asgrimur veiktist af alvarlegum sjúkdómi, og þó að sú barátta, sem þá hófst tæki nokkurn tima, varð endirinn sá, sem nú er raun á orðin. Sól er hnigin til viöar og Ásgrimur er allur. „Eitt sinn skal hver deyja” stendur að visu einhvers staðar, en sannleikur þessarar staðreyndar er þvi bitrari, er i hlut á góður drengur á bezta aldri. Mér verður hugsað til eiginkonu, dætra, foreldra, systkina, afa og annarra nákominna skyld- menna. öll mátu þau mikiö, þar sem Asgrimur var, og öll hafa þau þvi misst mikils. Ég bið góöan guö aö veita þeim styrk á þeim dimmu dögum, sem nú fara i hönd. M.Ó. e islendingaþættir 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.