Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1973, Qupperneq 4
Guðmundur Þorvaldsson
bóndi, Litlubrekku
Þann 31. okt. siðastl. andaðist á
heimili sonar sins að Tungulæk i
Borgarhreppi, Guðmundur Þorvalds-
son;fyrrum bóndi á Litlubrekku. Var
hann jarðsunginn að Borg á Mýrum þ.
10. nóv. að viðstöddu miklu fjölmenni.
Guðmundur var fæddur 4. febr. 1886
að Hofsstöðum i Alftaneshreppi. F"or-
eldrar hans voru hjónin Þorvaidur Er-
lendsson og Helga Sigurðardóttir frá
Háhóli. Bæði voru þau hjón
Álfthreppingar af traustu bændafólki
á Suður-Mýrum. Þorvaldur var sonur
hins merka dugnaðarmanns Erlends
Sigurðss. á Alftarósi og fyrri konu
hans Guðnýjar Einarsdóttur frá
Skipanesi. Þorvaldur mun hafa flutzt
að Litlubrekku 1888, þegar Guðmund-
ur var á 3. ári. Laust fyrir 1910 hóf
Guðmundur búskap á Litlubrekku,
fyrst með Helgu systur sinni, sem sið-
an giftist Vigfúsi Þormar, hreppstjóra
i Geitagerði á Fljótdalshéraði. Árið
1915 kvæntist Guðmundur eftirlifandi
eiginkonu sinni Guðfriði Jóhannes-
dóttui; ljósmóður frá Gufá, greindri og
mikilhæfri konu. Var sambúð þeirra
mjög til fyrirmyndar.
Sá, er þessar linur ritar, kynntist
þeim Brekkuhjónum ekki neitt að ráði
fyrr en 1936, en þá bjuggu þau á Arna-
brekku. Þá jörð keypti Guðmundur af
Guðlaugi Jónssyni. er þar hafði búið.
Arið 1928 flutti hann þangað ásamt
fjölskyldu sinni. Arnabrekka er sam-
týnis Litlubrekku og var þvi stutt að
flytja. Guðmundur átti þá báðar þess-
ar jarðir. Arnabrekka er gamalt stór-
býli að fornu og nýju. Jörðin er land-
mikil og mikil hlunnindajörð nú til
dags vegna laxveiðinnar i Langá.
Eins og fyrr segir, bjuggu þau hjón á
Arnabrekku, en flutti þá aftur að Litlu-
brekku, eftir að hafa byggt vandað i-
búðarhús. Um likt leyti tók Jóhannes,
sonur þeirra, við Árnabrekku, og býr
hann þar nú ásamt dóttur sinni og
tengdasyni, Stefáni Ólafssyni.
Alla tið bjuggu þau .Guðfriður og
Guðmundur við mikla rausn og
höfðingsskap.
Guðmundur á Brekku, en svo var
hann ætið nefndur, var glæsilegur
maður, hár og þrekinn, og vakti ó-
skipta eftirtekt, hvar sem hann fór.
Hann var mjög vel greindijr og vel að
sér um ýmsa hluti. Hann var sérstak-
lega vel að sér i sögu almennt, en þó
fyrst og fremst fornsögunum. Hvgg
ég. að hann hafi kunnað Egilssögu þvi
sem næst utanbókar. Guðmundur var
vel hagorður. en fór dult með það.
Ég átti þvi láni að fagna að vera
heilt sumar á Arnabrekku. fyrst við
venjulegar vorannir. en siðar við hey-
skap. Þetta var sumarið 1936. Þá voru
öll börnin enn i föðurgarði. en tvö þau
vngstu innan við fermingaraldur. 011
voru börnin glæsileg,eins og þau áttu
kvn til. Um það leyti var Guðmundur
með stórt bú. sérstaklega fjárbú. en
um langt árabil mun hann hafa verið
með fjárflestu bændum i hreppnum.
Heimilisfólkið var margt og i mörgu
að snúast,eins og eðlilegt var. en þar
var stjórnað með lipurð og æðruleysi.
Vandalaust fólk hafði það hvergi
betra en hjá þessum ágætu hjónum.
enda ekkert til sparað, að svo mætti
verða. Húsbóndinn ævinlega gaman-
samur og hafði oft frá mörgu
skemmtilegu að segja, þegar tóm
gafst til. Guðmundur var alla tið gleði-
maður og hrókur alls fagnaðar á góðra
vina fundum. A Brekku heyrði maður
aldrei talað illa um annað fólk. Ná-
grannarigur,/sem sums staðar hefur
viljað við brenna. var óþekkt fyrir-
brigði á heimili Guðmundar á brekku.
Nú er Guðmundur á Brekku horfinn
af okkar sjónarsviði, en eftir lifir
minningin um góðan dreng.
Guðfriður og Guðmundur eignuðust
alls 10börn,en 7 þeirra náðu fullorðins-
aldri og verða þau talin hér i aldurs-
röð:
1. Helga Guðfriður f. 28. okt. 1916.
Maður Sigursteinn Þórðarson, stöðvar-
stjóri i Borgarnesi, nú látinn. Helga
býr nú i Reykjavik ásamt börnum sin-
um.
2. Jóhannes Magnús f. 28. okt. 1916,
(tviburabróðir Helgu), bóndi á Arna-
brekku. Kona: Ása ólafsdóttir.
3. Kristin Fanney f. 22. mai 1919, bú-
sett i Bandarikjunum. Maður: Hilmar
Skagfield endurskoðandi.
4. Ragnheiður Valdis f. 21. júli 1920,
búsett i Bandarikjunum. Maður
Leonard Pepper lögfræðingur.
5. Jóhanna (Asta Jóhanna) f. 15. febr.
1922. Hún stundaði nám i læknisfræði
við Háskóla tslands og átti stutt eftir
til lokaprófs. er hún lézt 1955. Maður
hennar var Thorolf Smith fréttamaður
við Rikisútvarpið. nú látinn.
6. Hjördis Þórhildur f. 20. des. 1923,
búsett i Reykjavik.
7. Óskar Guðmundsson f. 23. ágúst
1925. bóndi Tungulæk, sem er nýbýli úr
landi Litlubrekku. Óskar hefur hin sið
ari ár stundað bifvélavirkjun i Borgar-
nesi. Kona: Ragnhildur Einarsdóttir
frá Stóra-Fjalli.
Guðmundur og Guðfriður fluttu i
Borgarnes,til Helgu dóttur sinnar, sem
þá var orðin ekkja, en siðast liðið ár
voru þau á Tungulæk hjá Óskari syni
sinum og tengdadóttur.
Ég votta þér, Guðfriður min, börn-
um þinum. tengdabörnum og barna-
börnum djúpa samúð.
Magnús Sveinsson
frá Hvítsstöðum.
pgp' \
4
íslendinqaþættir