Íslendingaþættir Tímans - 17.08.1974, Page 1

Íslendingaþættir Tímans - 17.08.1974, Page 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 17ágúst 1974—23. tbl. — 7. árg. nr. 174. TÍMANS Kristján Finnbogason verkstjóri, Selfossi f. 8. aprll 1918 d. 17. júll 1974. Skuggar svifu um lífssvið mitt, er mérbarst fregnin um andlát Kristjáns frænda mins, er látizt hafði á Landspitalanum eftir erfiða sjúk- dómslegu. En þannig er lifsins saga, að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga. En brátt birti I sálu minni, þvi minningin um þennan hugheila frænda minn geymir margar ljúfustu gleði- stundir minar. Faðir Kristjáns, er var bróðir móður minnar, Halldóru Helgadóttur á Svín- hóli, hafði kynnst konu sinni, Sigriði Teitsdóttur, vestur i Dölum, glæsilegri ljósmóður með skapgerð heila og glaða lund. Þau Sigrfður og Finnbogi komu frá prestshjónunum að Kvennabrekku, frú Guðriði Helgadóttur —systur Finnboga) og sira Jóhannesi L.L. Jóhannessyni. Foreldrar Kristjáns voru fullhugar miklir og áttu strax þá draumsýn að eignast eðlisgott og rúmt jarðnæði, er hæfði athafnaþrá þeirra. Þröngt var þá um búsetu i sveitum, en ástin lætur ekki að sér hæða né tefja för, svo ungu hjónin héldu úr Dölum með ekki stóran heimanmund, en mikinn vilja, suður yfir Bjúgs-fjallveg. Þar hófst framtiðarstarfið, búskapurinn I Hitardal, árið 1910. Erfitt var til fanga, en landrými nóg, heimatún smátt, en þúfur margar og litill bær. En lund var létt og lifið frjálst i fögrum fjallasal. Störfin kölluðu á fórnfúsar hendur og gott mannlif þess lands, sem ungir elskendur áttu nú og unnu. A þeim fornfræga stað, Hitardal, blandast margbreytileg náttúrufegurð og tröllaukin tign i landslagi, litum og linum, þegar sól skin i heiði eða skugga ber á leiti. Þarna fæddist Kristján, vinur minn og frændi, inni milli fjallanna, og þar átti hann heima. Þar mundi hann öll sin æskuvor og smaladrengsinsléttu spor. Þangað leitaði hugur hans oft og lét sig miklu varða um velfarnað staöarins. Kristján var sjöundi i röð tiu bræðra, sem þar fæddust, auk einnar systur. En einn son hafði . Finnbogi faðir þeirra eignast, áður en hann kvæntist Sigriði. Kristján var allt sitt lif mikið mótaður áhrifum heimaslóða og eiginleikum foreldra sinna. Þar fór saman alhliða dugnaður ásamt verk- hyggni, áræðni og framsýni án hiks eða minnimáttarkenndar, velviljaður var hann með stóra lund og glaða. „Vilji er allt sem þarf,” að hugsa, vilja og framkvæma voru hans einkunnar- orð. Hann var gæddur eiginleikum baráttumannsins, og hvarvetna á veg- ferð hans fannst honum vera óunnin verkefni I sjónmáli. Enda þótt hin stóra sveit bræðranna I Hitardal yrði fljótt knáir sveinar og nýir Hitdalakappar á frumbýlisárum foreldranna, sem gerðu garðinn frægan, sannaðist þar sem annars- staðar, að margs þarf búið við, þvi áfram var haldið til manndóms og mennta jafnhliða þeim átökum, er grjóti var rutt úr vegi, þýfi breytt i þaksléttur og siðar sáðslettur, gömul hús gerð ný, og litla býlið varð að höfuðbóli á þess tima mælikvarða, en sjóðir kaupmáttar ungu sveinanna ekki digrir. Leita varð þvi utan garðs til nýrra fanga. Helztu möguleikar á þvi sviði voru vegagerðarstörf. Ungir að árum unnu þeir bræður að slikum störfum, mest hjá hinum þekkta vega- vinnuverkstjóra, Ara Guðmundssyni frá Borgarnesi: 12 ára gamall mun Kristján fyrst hafa unnið hjá Ara og siðan áfram meira og minna um 14 ára skeið. Fljótt mun verkhæfni hans hafa komið i ljós. Var hann þvi um nokkurt skeið flokkstjóri vegagerðarmanna i Borgarfirði og nágrenni. í dagsins önn og erfiði var hann aðgætinn og ihugull og leysti vel úr hverjum'vanda. Mér fannst flest stækka i návist hans, nema erfiðið, það hvarf i höndum hans allt til siðustu stundar. Ekkert starf var svo smátt i augum frænda mins, að hann léti hjá líða að leggja sig fram, hvernig leysa skyldi, og við hrjúfan haka og reku var höndin styrk og iðjusöm. En þegar þrengdist I heimagarði, burt var sótt og brotinn akur nýr. Arið 1941 steig hann gæfuspor er gjöful reyndust. Réðst hann kaupamaður að Bár I Flóa til nafna sins Ólafssonar, sem var hinn mesti sæmdarmaöur og smiður góður. En Kristján eldri Ólafs- son átti einnig margar fagrar dætur og Kristján yngri, frændi minn, valdi eina úr systrahópnum friða, Sigriði. Framtið hans var ráðin, og hann hafði hlotið stærsta happdrættisvinning lifs sins. Sigriður og Kristján giftust árið 1945. Arið 1947 lauk Kristján húsa-

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.