Íslendingaþættir Tímans - 17.08.1974, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 17.08.1974, Blaðsíða 7
Stefán Sigurðsson fyrrum bóndi Hnjúki F. 5. des. 1906. —D. 29. mars 1974. Man ég þig enn, er ég ungur augum leit fyrsta sinni. Af athafna orku þungur, sem ei mér liður úr minni. Þvf aftur í æskudalnum ötull þú reistir býli. 1 fannþunga fjallasalnum fagurt þú reistir skýli. Leiðrétting 1 21. tölublaði Islendingaþátta féll niður fæðingar og dánardægur Sigurunnar Þorfinnsdóttur Blönduösi. Hún var fædd 16. október 1897 en dáin 22. april 1974. mági samúðarkveðjur minar og kveð vin minn Svanberg Magnússon skip- stjóra með þessari kveðju: Vinur og starfsbróðir. Far þú i friði, friöur Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Komdu sæll, Svanberg, þegar þér sýnist svo. Skrifað á sjómannadaginn 1974 á siglingu við eyna Stronu i Pentlands- firði á m/s Laxíoss frá Reykjavik. Markús B. Þorgeirsson islendingaþættir Þá erfitt var ungum manni að yrkja sér jörð og búa, en það mátti segja með sanni — þú sóttir að flestu að hlúa. Svo fluttirðu burt eins og fleiri, og fannst, að þú þoldir ei stritið, en aðeins til Akureyrar, svo austur gætir þú litið. Þú einn virðist laus við amann, og alls staðar varstu til friðar. Við syngjum ei lengur saman, þvi sólin er gengin til viðar. E.K. 0 Ásgeir vináttu og tryggðar, sem ég veit, að ekki munu slitna. Og þvi meiri, sem kynnin urðu, þvi betur kunni ég að meta hann og virða. Asgeir L. Jónsson var bændunum hollur ráðgjafi. Viða lágu vegir hans um landið og gróðurinn óx i sporum hans. Við Landeyingar eigum honum mikið að þakka. Frá stofnun Jarð- ræktarsambands Landeyja hefur hann um aldarfjórðungs skeiö verið sam- starfsmaður okkar og leiðbeinandi viö uppþurrkun i Austur- og Vestur-Land- eyjum. Má segja, að á þvi samstarfi byggðust þær öru framfarir, er orðið hafa i þessum sveitum á umræddu timabili. Ásgeir L. Jónsson var hvarvetna mikill aufúsugestur, bar jafnan birtu i bæinn, hressandi andblæ. Hann var hispurslaus og fór ekki dult með skoðanir sinar, fastur fyrir eins og bjargið, sem ekki bifast. En ljúfmann- legur i framkomu, einlægur og vildi öllum vel. Og nú er hann horfinn úr jarðneskri tilvist. Við erum alltaf varbúin að sjá á bak- nánum vinum. Hann var einn þeirra manna, er ég hlakkaði til að fara og finna oft, er ég flyttist til Reykjavikur. Við áformum, en Guð ræður. Og klukkan glymur einum i dag, öðrum á morgun. Og ég stend eft- ir og sakna góðs vinar. En ég kveð hann i von og trú. Hittumst heilir! Frú Agústu og börnum færi ég inni- legar samúðarkveðjur frá mér og fjöl- skyldu minni. Bið þeim öllum blessun- ar Guðs. S.S.H. f Þótt siðbúið sé, langar mig að minn- ast Htillega Asgeirs L. Jónssonar, sem andaðist þann 13. april siðastliðinn. Asgeir fæddist 2. nóvember 1894 á Þingeyrum, sonur Jóns Asgeirssonar bónda þar og ráðskonu hans, Guð- bjargar Aradóttur. Jón Asgeirsson, eða Jón á Þingeyrum, eins og hann var oftast nefndur, var frægur maður á sinni tið, talinn einn bestur hesta- maður sinnar samtiðar og listagóður hagyrðingur. Til Guðbjargar þekki ég ekki né æskuára Ásgeirs. Ásgeir varð búfræðingur frá Hólum árið 1914 en hélt til Þýzkalands til framhaldsnáms fljótlega að styrjöld lokinni það var kjarksamlega gert þá. Embættisprófi sem vatnsvirkja- fræöingur lauk hann árið 1922 og unni jafnan þýzkri menningu. Heim kominn réðst hann fljótlega til starfa hjá Búnaðarfélagi Islands og vann þar nær óslitið til dauðadags. Starfsdagur hans varð bæði langur og góður, og fá- ir munu að honum loknum hafa þekkt land sitt og þjóð betur. Asgeir dvaldist langdvölum i Vik i Mýrdal, eftir að hann kvæntist siðari konu sinni, Ágústu Vigfúsdóttur frá Flögu i Skaftártungu, fyrri kona Ásgeirs var Anna Geirsdóttir, ættuð úr Arnesþingi. Þá þegar tókst með hon- um og foreldum minum svo og börnum beggja góð vinátta, sem ekki bar á skugga. Ég kynntist A§geiri fyrst verulega eftir að ég var kominn á fullorðins- aldur, hann hniginn á efri ár. Ætti ég að lýsa honum, væri það helzt þann veg, að mér fannst hann stundum flestum mönnum islenzkari. Strið- lundaður nokkuð og mesti orðhákur, ef sá gállinn var á honum, en ætið hreinn og beinn. Lifsviðhorf og stjórnmála- skoðanir hafði hann vægast sagt fast- mótaðar. — En flokksþræll hefði Ás- geir aldrei getað orðið, sama hvað hann hefði á sig lagt. Atgervismaður var Asgeir bæði til likama og sálar og hélt reisn sinni til hins hinzta. Mér er það minnisstætt hve kjarngott islenzkt mál hann talaði, ég heíd hann hafi borið sanna virðingu fyrir tungu sinni. Manna glaðastur á góðri stund. Hann verður mér minnis- stæðari mörgum öðrum, ástvinum hans sendi ég samúðarkveðjur, og taki þeir viljann fyrir verkið. Jón Thor Haraldsson 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.