Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Qupperneq 2
Hjónin frá Hulduhólum
Hreiðar Gottskálksson og
Helga S. Björnsdóttir
Hreiðar Gottskálksson
Fæddur 9. aprll 1896
Dó 27. júnl 1975
Helga S. Björnsdóttir
Kædd 4. nóv. 1897.
Dó 25. ág. 1972.
Oft heyrir maður það i minningar-
greinum um meðbræður vora, að ekki
hafi orðið neinn héraðsbrestur, þegar
þeir hafa kvatt þennan heim. Senni-
lega er átt við, að þeir hafi ekki verið
eitt af stóru númerunum í þessari ver-
öld. En er ekki maðurinn eða konan,
sem hafa verið öðrum til fyrirmyndar,
skilað samfélaginu fullu lifsstarfi og
þjóðfélaginu myndarlegum börnum,
einmitt stórt niimer þó þau hafi lifað
lifi sinu utan við skarkala lifsins.
Hreiðar var fæddur 9. april 1896 i
Vatnshól i' Austur-Landeyjum, sonur
hjónanna, sem þar bjuggu, Gottskálks
og Sigurbjargar.
Gottskálk var Hreiðarsson bónda
Stóru-Hildisey og Vatnshól, Hreiðars-
sonar Skarðseli, Helgasonar Stóra-
Klofa, Jónssonar Bjarnason Flag-
bjamarholti, en hann átti Hildi Högna-
dóttur lögréttumanns á Laugarvatni,
en Bjarni faðir Jóns var Helgason
prestur að Fellsmúla, dó 84 ára 1773.
Þetta voru miklar og merkar bænda-
ættir. Hreiðar var 10. ættliður i beinan
karllegg frá Jóni Bjarnasyni, sem
talinn er hafa búið i Austvaðsholti um
1600.
Sigurbjörg móðir Hreiðars var Sig-
urðardóttir bónda Seljavöllum Eyja-
fjöllum, Sigurðssonar bónda Voðmúla-
stöðum og Efri-Hól, Sighvatssonar
sama stað, Þorsteinssonar bónda
Vestur-Holtum, Jónssonar dó 1688.
Hreiðar var þvi kominn af traust-
um ættum úr Rangárþingi.
Hjónin I Vatnshól eignuðust 4 börn
Sigurður var elztur, var lengi bóndi á
Kirkjubæ i Ve., hann dó 1955, Ragn-
hildur dó ung, Hreiðar sem hér er
minnzt og Sigurjón , sem búið hefur
2
einhleypur I Vestmannaeyjum. Þá ólu
þau upp sem sitt barn frá fæðingu,
Guðjón systurson Gottskálks og stúlku
Guðbjörgu Guöjónsd., hún dó 1973.
Fermingarárið 1910 missti Hreiðar
móður sína. Sigurjón var þá fárra
vikna gamall. Var það mikið áfall
fyrir heimilið sérstaklega bömin. En á
heimilinu voru tvær systur Gottskálks,
sem tóku að sér húsmóðurstörfin og
voru drengjunum sem beztu mæður.
1912 bregður Gottskálk búi og flytur
til Vestmannaeyja og giftist þá Ingi-
björgu Jónsdóttur Atlasonar frá Ey.
og annaðist hún drenginn eins og bezta
móðir. 1 Eyjum stundaði Hreiðar
ýmsa vinnu, sem til féll, sjómennsku
á vetrum, en fór i kaupavinnu á sumr-
in. 1919 réðist hann að Grafarholti og
þar með voru örlög hans ráðin. Síðan
hefur hann unnið sitt lifsstarf I Mos-
fellssveit.
13. maí 1922 gekk hann að eiga unn-
ustu slna Helgu Sigurdis, næst yngsta
af 7 börnum hjónanna i Grafarholti,
Bjöms hreppstj. Bjarnasonar bónda
Vatnshorni, Eyvindssonar, Hjartar-
sonar og Bóthildar Magnúsdóttur hjón
I Syðri-Brú Grimsnesi. Móðir Björns i
Grafarholti var Sólveig Björnsdóttir
prests á Þingvöllum, Pálssonar prests
sama staðar, Þorlákssonar, en kona
Björns móðir Helgu var Kristrún
Ey jólfsdóttir bónda á Stuðlum.
Reyðarfiröi, Þorsteinssonar. Foreldr-
ar Helgu voru gagnmerk hjón og
heimilisbragur allur til fyrirmyndar.
Vorið 1922 byrja þau búskap af
Reynisvatni og búa þar I þrjú ár. Siðan
fara þau að Þormóðsdal, en 1926 reisa
islendingaþættir