Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Qupperneq 7

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Qupperneq 7
Njáll Hermannsson f. 30. sept. 1927. d. 18. júnl 1975. Nú leggja vil ég liljublað á leiöiö þitt Njalli minn. Hugurinn leitar liöinnar æsku er léku þér rósir á kinn. En snemma kom frostið og fölvaði vanga. Viö fáum ei skiliö þá raun, að lifa lifinu llkt og þú gjöröir, þér lét ekki aö blása I kaun. Það er hugljúf minning aö heimsóknum þinum og hlusta á þitt létta tal. Þú komst I Sæland og Hverageröi. Það var kærkomiö gestaval. Frændurnir voru svo fegnir aö hittast, fátt var þó um þaö rætt, sem báöir i æsku urðu aö þola, en ekki varö framar bætt. Nú ertu fluttur til fegri heima þvi fær enginn dómur breytt. Dæturnar ungu, sem dáöu hann pabba, drottins hönd fái leitt. Mamma og pabbi, sem muna þig ungan^ mega gleöjast af þvl. Að vita þig lausan viö likamans trefjar og ieika nú friskur á ný. Anna Jóns. o Eysteinn Fyrst sem verkstjóri við lögn hinnar stórkostlegu varnargirðingar I Húna- vatnssýslum á Kili og viöar, en siðar gerðist hann varðmaður á Kili og hefur nú verið starfsmaður varnanna i yfir 20 ár, yfir sumartimann. Forstöðumaður sauðfjárveikivarna Sæmundur Friðriksson hefur sagt mér að duglegri, útsjónarbetri og samvizkusamari mann hafi hann aldrei haft i þjónustu sinni og mun engum koma það á óvart, sem þekkir Eystein Björnsson. Eftir að Eysteinn hætti algjörlega búskap og fór að vinna að fullu hjá vörnunum hefur hann að vetrinum ýmist dvalið á Hrauni i ölfusi hjá Bryndisi dóttur sinni og Karli manni hennar, eða hjá Kára syni sinum og Fjólu konu hans hér i Reykjavik, auk þess allmikið hjá Elinborgu Jónsdótt- islendingaþættir ur og Trausta Kristjánssyni á Blöndu- ósi, en þau hjón eru mikið vinafólk hans. Hér að framan hefur verið stiklað á stóru varðandi æviferil hins áttræða afmælisbarns, en i lokin vildi ég fyrir mina hönd og hinna mörgu vina Ey- steins Björnssonar lýsa að nokkru manninum Eysteini Björnssyni. Þvi miður þekki ég ekkert af móðurfólki Eysteins, nema hvað staðreyndir sýna hvað Helga móðir hans hefur verið mikil hetjukona og manni sinum sterk og trúföst I sviptingum lifsins, meö þeim sérkennilega lifsförunaut Birni Eysteinssyni. En allir þeir, er ég hef átt tal við og þekkt hafa ætt hennar telja hana mikilhæfa og i alla staði hina merkustu. Að minu mati og flestra vina þinna hafa sameinazt i þér, Eysteinn, flestir kostir foreldra þinna, þó einhverjir gallar hafi vitanlega flotið með. Eng- inn er alfullkominn. Dugnaður þinn er alþekktur, orð þin standa ávallt sem stafur á bók. Þú vilt hvers manns vandræði leysa eftir þvi sem geta þin leyfir. Verkhyggni þin og útsjónar- semi er alþekkt svo og góðir vitsmun- ir. ósérhlifni þin og harka við sjálfan þig er alþekkt i þinum heimabyggðum og mætti telja fram mörg dæmi þvi til sönnunar. Glaðlyndi þitt og hlý fram- koma i garð allra, sem þú umgengst hefur skapað þér fjölda vina og engan veitég óvin þinn. Alla þina tið hefur þú verið frjálshyggjumaður og ávallt fylgt Framsóknarflokknum að mál- um, þó þú sem sterkur persónuleiki hafir ekki alltaf verið samþykkur öll- um hans gerðum. Það eiga margir þér gott upp að unna og ekki sizt Fram- sóknarflokkurinn, þvi þó þú hafir aldrei sótzt eftir neinum mannafor- ráðum, þá veit ég að hlýlegt viðmót þitt og skilningur á þjóðmálum hefur oft styrkt okkar góða flokk i Húna- þingi. Ég óska þér svo allra heilla þau ár, sem þú kannt að eiga eftir á þessu til- verustigi, og vonandi hittumst við handan móðunnar miklu. Hannes Pálsson frá' Undirfelli — 80 ára — Eysteinn Björnsson frá Guðrúnarstöðum nú bóndi aö Yztu-Nöf, Hveravöllum A-Hún. Elsku Eysteinn, þegar þú varðst átt- ræður, þann 17. júli s.l. þá hugsuðum við mikið til þin. Við óskum þér hjartanlega til hamingju meö afmælið. Þinn draumur rættist, að halda upp á afmælið þitt á fjöllunum enda fór vel á þvi. Engin orð fá lýst þvi þakklæti, sem við hjónin og börnin okkar færum þér á heiðursdegi þinum, og alla daga. A afmælisdaginn þinn vorum viö hjá þér og litla stráknum okkar, sem nú er hjá þér i sumar eins og I fyrrasumar, þvi að hann þráöi fjöllin eins og þú. Hjartans þakkir fyrir allt, sem þú ert okkur og okkar heimili. L i f ð u h e i 1 1 . Stella, Trausti og börnin. 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.