Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Blaðsíða 8
Attræður Eysteinn Björnsson frá Guðrúnarstöðum Þann 17. júli s.l. varö Eysteinn Björnsson frá Grimstungu — i seinni tið ávallt kenndur við Guðrúnarstaði i Vatnsdal — 80 ára. Þessa afmælis minntist hann með veglegu höfi á Hveravöllum, sóttu hófið nær 100 manns. Þvi miður gat ég ekki sótt hóf þetta, en þar sem Eysteinn er bæði frændi minn og náinn vinur til margra ára, þá vil ég leyfa mér að biðja Timann fyrir smáafmælisgrein þó siðbúin sé. Eysteinn er fæddur að Skárastöðum i Miðfjarðardölum, sonur þeirra sér- stöku merkishjóna Helgu Sigurgeirs- dóttur og Björns Eysteinssonar, sem alkunnur var fyrir áræði sitt, ósér- hlffni og dugnað, og kannski ekki sizt fyrir trúna á Guð og handleiðslu hans. Ættartölu Eysteins ætla ég ekki að rekja hér. Hún er að nokkru rakin i hinni sérstöku ævisögu Björns Eysteinssonar. Eysteinn var yngstur af sonum Björns og Helgu. Hann fluttist kornungur með forcldrum sinum að Grimstungu i Vatnsdal og eyddi þar sinum bernskuárum.Þegar Björn eftirlét 2 næstelztu sonum sinum Þorsteini og Lárusi, jörð- ina Grimstungu og fluttist á eignarjörð sina Orrastaði i Torfa- lækjarhreppi, þá fluttist elzti sonurinn Sigurgeir og Eysteinn sá yngsti með honum þangað. Eysteinn var þó ekki lengi á Orrastöðum, þvi 19 ára fór hann að búa i Hamrakoti, sem var nokkurs konar hjáleiga frá Orrastöð- um. t Hamrakoti bjó hann ekki nema 1 ár, en flytur vorið 1915, að jöröinni Meðalheimi i sömu sveit. Arið, sem hann fluttist að Meðalheimi kvæntist hann Guðrúnu Gestsdóttur frá Björn- ólfsstöðum i Langadal, mikilli dugnaðarkonu. 1 Meðalheimi bjuggu þau hjón til ársins 1928. A þeim árum var Meðalheimur rýrðarkot, en þó gat Eysteinn ekki fengiö hann keyptan, en bjó þar sem leiguliði. Börnunum fjölg- aði ört, en þrátt fyrir þetta hvort tveggja komust þau hjón vel af, enda bæði harðdugleg og fylgin sér. Auður var þó ekki i búi, enda munu fáir bændur hafa grætt á þeim árum. Eysteinn fór bv' að svipast eftir betra jarðnæði. Vorið 1928 fékk hann til ábúðar jörðina Hafursstaði á Skaga- strönd, sem mun vera fremur góð jörð, enda gekk búskapur þeirra hjóna þar vel fram þrátt fyrir kreppuna. Þau hjón eignuðust 8 börn, 5 stúlkur og 3 drengi, sern öll eru á lifi og öll hið mesta dugnaðarfólk. Börnin eru Helga og Bryndis giftar þeim Hraunsbænd- um i ölfushreppi, Svanhildur gift kona i Þorlákshöfn, Hólmfriður bjó allmörg ár i Reykholtsdal, Ásdis kennari gift Asmundi kennara frá Holti i Þistil- firði, Björn verzlunarmaður á Reyðarfirði, útskrifaður úr Samvinnu- skólanum, Gestur lögfræðingur og Kári er las stærðfræði við Hafnar- háskóla, en varð að hætta námi og vinnur nú hjá Rannsóknastofn- un byggingariðnaðarins. Ég held að þjóð vor verði að telja það allgott dagsverk að ala upp 8 börn og koma þeim vel til manns, en það skal tekið fram að börnin munu fljótt hafa farið að bjarga sér eftir föngum, bæði hvað vinnu og menntun snerti. Ætt Björns Eysteinssonar er þekkt að þvi, að hlifa hvorki sjálfum sér né börnum sinum. Þó allt gengi vel með búið og börnin á Hafursstöðum dró þtí þar ský fyrir sólu. Vorið 1936 slitu þau hjón samvistum og skiptu með sér búi og börnum. Slikt er alltaf erfitt ekki sizt þegar um mörg börn er að ræða. Sjálfsagt fara slikir hlutir verst með börnin og munu þau oftast bera ör eftir. Þegar svona var komið hugðist Eysteinn hætta búskap og réðist hann sem ráðsmaður tii Lárusar bróður sins, sem átti þá 1/5 Hnausa i þingi og rak þar allstórt bú með stórbúinu i Grimstungu. Eysteinn er ráðsmaður hjá Lárusi i Hnausum i 3 ár eða til ársins 1939 og sumt af börnum hans hjá honum. Vorið 1939 flytur Eysteinn að Guðrúnarstöðum i Vatnsdal. Björn bróðursonur hans hafði þá keypt þá jörð og ætlaði að setjast þar að, en við giftingu hans breyttist sú ætlan og Björn flytur á 1/2 Auðunnar- staði i Viðidal. Eftir að Eysteinn fluttist að Guðrúnarstöðum mun hann hafa verið talinn bóndi þar, en Lárus i Grimstungu og Björn sonur hans höfðu þó allmikil itök i jörðir.„, fyrstu 2-3 árin. Arið 1945 kaupir Eysleinn Guðrúnarstaði af þeim frændum sinum, og hóf þá aftur búskap af fullum krafti. Hann fékk sér ágæta ráðskonu, Guðrúnu Jónsdóttur frá öxl, en hún hafði áður búið á Guðrúnarstöðum i mörg ár, með manni sinum Guðmundi Magnússyni, en hann andaðist úr lungnabólgu á bezta aldri og varð öllum harmdauði, sem hann þekktu. Eysteinn bjó svo á Guðrúnarstöðum til ársins 1964, en þá afhenti hann jörð og bú Gesti syni sinum, en heimili hafði hann ávallt á Guðrúnarstööum og mun hafa það enn, þó Gestur sonur hans hafi nú selt jörðina. Nokkru áður en Eysteinn afhenti syni sinum jörðina, hafði hann farið að vinna hjá Sauðfjárveikivörnunum. Framhald á bls. 7. 8 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.