Íslendingaþættir Tímans - 24.07.1976, Page 5

Íslendingaþættir Tímans - 24.07.1976, Page 5
Soffía Kristjánsdóttir F- 3. marz 1907 D- 15. júni 1976 Aðfararnótt 15. júni sl. lézt i Borgar- sPítalanum móðursystir mln, Soffia Kristjánsdóttir, eftir rúmlega mánaðar legu. Ekki kom mér I hug, þegar Soffla 'agðist i sjúkrahús til uppskurðar, að ekki ætti hún þaðan afturkvæmt. HÚn hafði ætið verið svo hraust og dugleg, eins og gjarnt er um fólk af hennar kynslóð. Hin sorglega staðreynd var s>i. að of seint var leitað læknis. Soffia var mjög tengd lifi minu, þar sem náin vinátta var ætið milli Peimilis mins og hennar. Það verður þvi erfitt að sætta sig við, að hún er ekki meðal okkar lengur. Þetta er þó 'eiðin okkar allra og Soffia var auð- vitað orðin fullorðin og hafði aldrei hlift sér. Það er undarlegt, hve miklu svo lágvaxin og grönn kona gat af- tastað. Sést á þvi, hvernig allt hefst með seiglunni, og seig var Soffia. A fjölskyldumótum var Soffia ætiö Slöð og kát. Oft glumdi hláturinn við a"t I kringum hana og margar fleygar setningar hennar eru okkur öllum i jersku minni. — Soffia var hrein og °ein i allri framkomu. Kom hún sinni skoðun á framfæri á eigin máta og fór sjaldan i felur með afstöðu sina. — Hún var tryggur vinur. Það sýndi hún margsinnis um ævina. Gerði allt, sem i jjannar valdi var, þegar hún vissi, að ajálpar var þörf. Soffia var fædd 3. marz 1907 á tsa- ‘>röi. Foreldrar hennar voru Guðbjörg “jarnadóttir, sem bjó lengst af á Akureyri, og Kristján Hans Jónsson, Otstjóri á ísafirði. Kristján faðir nennar lézt þegar Soffia var aöeins 6 ára að aldri. Neyddist Guðbjörg þá til að 'eysa upp heimilið.Soffia var sett i óstur til Lilju Jónsdóttur, föðursystur sinnar, að Kambi i Reykhólasveit. Hilja var ljósmóðir og bjó að Kambi i sambýli við stjúpdóttur sina Sesselju efánsdóttur, og mann hennar, Jón randsson. Þegar Lilja dó, varð Soffia ram hjá Sesselju fram til ársins 24. Næstu árin vann Soffia við ýmis a Seng störf. Til Reykjavikur kom Soffia 1930. Þá yrst kynnast þær systur, móðir min °8 Soffia. Tókst með þeim hin mesta ■slendingaþættir vinátta, ekki minni en hefðu þær alizt upp saman. Árið 1942 giftist Siffia miklum sóma- manni, Sverri Ólafssyni, sem lézt fyrir tveimur árum. Tvö börn eignuðust þau hjón. Björgu Lilju, sem gift er Guð- mundi Hervinssyni, og Björn, kvæntan Solveigu Indriðadóttur. Þótt Soffia hverfi nú snögglega héðan, þá má segja, að hún hafi lokið meira af ævistarfi sinu en mörgum auðnast. Hún hefur séð börn sin bæði vel gift og fylgzt með fimm barna- börnum fyrstu æviár þeirra. Að lokum vil ég þakka Sofflu frænku vináttu hennar og tryggð við foreldra mina og okkur systkinin. Kveð ég hana með eftirfarandi erindi: Ei mundi henta öllum ævistig þinn að feta. Þröng og kröpp voru oft kjörin kaupgeta nánast engin. En þér lét ekki að vila eða renna af hólmi. Með dugnaði þinum og þreki þrautir ailar vannstu. Dlsanna. f Aðfararnótt þriðjudagsins 15. júni léztSoffia Kristjánsdóttir, Hæðargarði 22,1 Borgarspitalanum, eftir nokkurra vikna legu þar. Soffia var fædd 3. marz 1907 á Isa- firði, dóttir hjónanna Guðbjargar Bjarnadóttur og Kristjáns H. Jóns- sonar ritstjóra. Guðbjörg, fædd 21. janúar, 1877, d. 6. júni, 1967, var dóttir Bjarna bónda á Vöglum i Fnjóskadal, Jónssonar (Reykjahlíðarætt). Móðir Guðbjargar var Jóna Jónsdóttir bónda á Vatnsleysu Kristjánssonar. Kristján faðir Soffiu var fæddur 21. mai, 1875, d. 27. september 1913, sonur Jóns Jáhannssonar bónda á Hörðubóli i Dalasýslu og konu hans Soffiu ólafs dóttur. Kristján lézt frá fimm börnum ungum, var Soffia þá sex ára. Soffia fluttist til Reykjavikur 1934. Hún giftist Sverri Ölafssyni 1942, en hann lézt fyrir rúmum tveimur árum. Sverrir var fæddur 30. ágúst 1898, dáinn 16. marz 1974. Foreldrar hans voru Ólafur Nikulásson, ættaður af Suðurnesjum og Ingibjörg Benónýs- dóttir frá Ormskoti undir Eyjafjöllum ' Hinrikssonar (sjá tslendingaþætti Timasns 14. tbl. 1974). Sverrir og Soffia áttu tvö börn: Björgu, gifta Guðmundi Hervinssyni húsasmiða- meistara, eiga þau tvö börn, Sverri og önnu, og Björn vélstjóri, kvæntur Sólveigu Indriðadóttur, eiga þrjú börn, Indriöa, Erlu Soffiu og Kolbrúnu. Kynni min af Soffiu frænku minni, en ættir okkar koma saman i þriðja og fjórða lið, byrjuðu ekki eiginlega fyrr en fyrir tæpum áratug, er dóttir min giftist Birni syni hennar. Vissum við þó hver af annarri og Guðbjörgu móður hennar þekkti ég, þvi hún kom stundum til móður minnar. Soffia vann mikið utan heimilis. Hun var dugleg og afkastamikil, létt i skapi og glaðsinna, sivinnandi og vakandi yfir velferð heimilisins og barna sinna og barnabarnp. Sist grunaði mig það er hún lagðist inn á sjúkrahús, að hún ætti ekki þaðan afturkvæmt. En hún vissi að hverju dró, og að stundir hennar væru taldar hér á jörðu. Hún virtist ekki kviða um- skiptunum og gat talað um það og gert sinar ráðstafanir. Nú þegar leiðir skilja, fylgja hennir þakkir vina og vandamanna fyrir fórnfúst og óeigingjarnt ævi- starf. Solvéig Jónsdóttir. 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.