Íslendingaþættir Tímans - 28.04.1979, Side 4

Íslendingaþættir Tímans - 28.04.1979, Side 4
var talin 102 ára, er hún dó 1848. Sonur Þórunnar Halldórsdóttur var Halldór Einarsson myndskeri frá Brandshúsum, en verk hans eru varöveitt i Listasafni Arnessýslu á Selfossi. Þorbjörg Halldórsdóttir ólst upp hjá foreldrum sinum i Strandarhjáleigu og átti þar heimili til 1903. Flutti hún þá meö Guðbjörgu systur sinni og manni hennar, Siguröi Jóhannessyni frá Litlagerði, aö Kröggólfsstöðum i ölfusi og siöar aö Gljúfri i sömu sveit. A þvi árabili átti hún einnig um skeið dvöl hjá Hallberu systur sinni I Hólmaseli i Flóa og manni hennar, Sveini Sigurðssyni, og auk þess var Þor- björg um tima i Reykjavik. Ariö 1916 réðist Þorbjörg til vistar aö Arnarstöðum I Hraungeröishrappi og gerðist siðan bústýra hjá Eiriki Þorbergs- syni, sem þá bjó þar I húsmennsku hjá Kristjáni bóður sinum. Þau Eirikur og Þorbjörg fluttust að Arnarstaðarkoti 1923 og bjuggu þar i 20 ár. A þeim tima varð þeim handgenginn likt og fóstursonur Guðmundur Guðmundsson systursonur Eiriks, slðar mjólkurfræöingur á Selfossi (d. 1974). Atti Þorbjörg hjá honum og fjöl- skyldu hans forsjá og traust meðan til vannst. Ber þar eigi sist nú að geta ekkju Guðmundar, frú Tove, og sonar þeirra, Eiriks Guðmundssonar I Hátúni 43 I Reykjavik og fjölskyldu hans. Eirikurfrá Arnarstöðum dó á Hlöðum á Selfossi á annan dag jóla árið 1943 hjá Sveini Sveinssyni systursyni Þorbjargar og konu hans, Klöru Karlsdóttur. Hjá þeim átti Þorbjörg heimili á árabilinu 1944—1955, siðan var hún um eins árs skeið hjá Guðmundi Guðmundssyni og Tove konu hans. Með ættmennum sinum á Stóru-VatnsleysuogLambastöðum dvaldi Þorbjörg árin 1956 til 1959 en flutti þá til dvalar á hjúkrunarheimilinu Asi I Hvera- gerði. Þaðan flutti hún á dvalarheimilið Hrafnistu, þar sem hún átti siðan heimili til dánardægurs. Leiðir minar og Þorbjargar lágu fyrst saman að Arseli á Selfossi heima hjá Sveini og Klöru. Uröu mér þá fljótt hugstæð hagleiksverk hennar I útsaumi, tengd æsku hennar og uppruna austur I Rangáringi. Hún hafði þá fyrir skömmu saumað þekktasta útsaumsverk sitt, myndina af foreldrahúsum i Strandahjá- leigu. Gaf hún byggðasafninu I Skógum eitt eintak þeirrar myndar. Hafði hún saumaðþaðá áttugasta aldursári og gefið þvi viðeigandi tileinkun i orðum Svein- bjarnar Egilssonar: „Römm er sú taug, er rekka dregur föðurtúna til”. My'ndin er af framhlið bæjarhúsa, bikuðum þiljum hvitum vindskeiðum, grónum veggjum og þökum. Ofan þeirra er grunnmynd bæjar- ins gerð i réttum hlutföllum. Læröur arki- tekt væri vel sæmdur af verkinu. Ótaldir eru þeir menn, útlendir og innlendir, sem hafa staðnæmst frammi fyrir þessari mynd I byggðasafninu og gaumgæft hana iaðdáun ogfæstum þeirrahefur vistfiogið það i hug að konan, sem saumaði hana, 4 Una H. Sigurdardóttir Þaö var eitt sinn, fyrir mörgum árum siðan, að ég var staddur að Laugum i Þingeyjarsýslu. Þar var þá einnig stadd- ur séra Helgi Tryggvason, yfirkennari Kennaraskólans I Reykjavlk, en hann þjónaði Miklabæ I Skagafirði um þessar mundir. Tókum við tal saman, þvi aö viö 4 vorum vel málkunnugir. Bauð hann mér far með sér til Akureyrar, sagði að með sér væri ekki áðrir en ein kona vestan úr Skagafirði ogþvi nógrýmii bllnum. Þessi kona var Una Sigurðardóttir frá Sunnu- hvoli. Ekkihöfðu við séstáður. Séra Helgi kynnti okkur. Sá ég þegar að þessi kona var glaöleg og þægileg I viðmóti. Ýmis- legtbar á góma á leiöinni, m.a. það hvað ég hefði fyrir stafni. Vissi séra Helgi aö ég hafði fengist allmikið viö tréskurö. Bað Una mig þá að smlða fyrir sig dálitla af- mælisgjöf hánda vinkonu sinni. Þetta gerði ég og þótti henni svo vænt um þaö, hafði aldrei setið á skólabekk og.hafði I uppfærslu aðeins við minni sitt að styðj- ast. Dýptinni I myndina náöi Þörbjörg með þvi að nota mismunandi gerðir af saumsporum, og hafa margir orðiö til þess að hyggja að þeim þætti myndbygg- ingar. Einnig til að skapa dýpt I myndir sinar og til að greina að myndfleti, bland- aði hún litaþráðum ýmissa lita saman og fékk þannig fram sérstök litbrigði. Þorbjörg var 95 ára gömul, er hún saumaði þrjár góðar myndir er tala máli sinu I Skógasafni, myndir af siðustu torf- bæjunum á Prestbakka á Siðu, á Berþórs- hvoli i Landeyjum og i Odda á Rangár- völlum. Þær tók hún upp eftir litlum prentmyndum i dagblöðum. Til minn- ingar um 100 ára afmæli sitt og 100 ára afmæli Keldnakirkju „handverk föður hennar” saumaði hún árið 1975 mynd af Keldum á Rangárvöllum og gaf hana Skógasafni. Hygg ég þetta verk 100 ára gamallar konu einsdæmi I islenskrfhann- yrðasögu. A 100 ára afmæli Þorbjargar gerði Hraungerðishreppur hana að heiðursfél- aga sinum. Þótti henni vænt um þá viðurkenningu. Mér var það likt og ævin- týri gamallar sögu að heimsækja Þor- björgu I litla súðarherbergið hennar á Hrafnistu. Ekki fór þar mikið fyrir veraldarauði, en veggir og hægindi skört- uðu faguriega þeirri menningu, sem bjó i vinnulúnum höndum ibúans, og góðar bækur sýndu mér það sálufélag, sem ein- semd eilinnar hafði ekki frá honum tekið. Ein útsaumsmyndin var af skipum úti á Viðeyjarsundi og handan þeirra skrúð- græn eyjan með þvi húsi, sem eitt sinn var mest viðhafnarbygging á Islandi. Þessa látlausu, fögru mynd hafði gamla konan saumað eftir útsyni úr glugga á Hrafn- istu, og margar eru á einkaheimilum inn- an lands og utan. Munu þær jafnan þykja góð eign og þvi betri sem stundir liða lengur fram. Þorbjörg var seintekin en vinföst i kynnum, fáskiptin um annarra atferli, ákveðin i skoðunum, viljaföst og hrein- skiptin. Hún verður lengi hugstæð þeim sem nutu vináttu hennar. Ég man hana vel til komandi ára i hljóðlátu brosi, hlýju handtaki og traustri frásögn um lif og hætti liðinna kynslóða. Fram um 100 ára aldur lék saumnálin enn i höndum Þorbjargar. Ekki er nema um háift ár liðið frá þvi er hún hætti að fara fram á matstofu vistmanna á Hrafn- istu. Ég leit inn hjá henni i nánd síöustu jóla og var þá glöggt að skammt var orðið ilokaáfangann. Fram um 104 ára afmælið var Þorbjörg þó klædd daglega. Hún fékk rólegt andlát þann 4. april þessa árs. Hér skulu færðar fram þakkir til allra, sem veittu henni skjól á elliárum, austan fjalls og vestan. Hún lifir áfram i góðri minn- ingu hjá vinum sinum og sjálf sá hún þvi borgið að nafn hennar gleymist ekki hjá komandi kynslóðum. Þóröur Tómasson. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.