Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Blaðsíða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 9. júni 1979 — 17. tbl. TÍMANS Hjónin Ólafía Björg Jónsdóttir fædd 2. des. 1892 og Guðjón Bjarnason frá Gestsstöðum, Búðum, Fáskrúðsfirði f. 15. mars 1892 d. 25. april 1979 Aöfaranótt 25. april 1979 andaðist á sjúkrahUsinu i Neskaupstað Guðjón Bjarnason frá FáskrUðsfirði, 87 ára að aldri. Guðjón var fæddur 15. mars 1892, að Anastöðum í Breiðdal. Foreldrar hans voru hjónin Sigurveig Dani'elsdóttir hálf- systir Þórhalls Danielssonar kaupmanns á Hornafirði, hins landsþekkta athafna- manns og Bjarni Bjarnason Nikulásar Sverrissonar frá KeldunUpi i Vestur-Skaftafellssýslu. Móðir Nikulásar hét 01 öf Sverrisdóttir, en kona Nikulásar Halldóra Pálsdóttir, Snjólfssonar, Finnssonar sterka. Börn Nikulásar og Halldóru voru 13 að tölu. Dóumörgþeirra ung að aldri. Ein systir- in, ólöf kemurmest við sögu sunnan jökla fyrir hetjudáð er hún drýgði með þvi að bjargast af sjálfsdáðum til byggða, ásamt dóttur sinni eftir að snjóflóð hafði tekið af bæ hennar Viðidal i Lóni og orðið bónda hennaraðbana ásamttveim börnum. En þær mæðgur komu fram i Alf tafirði löngu eftir slysið. Bjarni afi Guðjóns hélt einnig i austurveg eins og Ólöf systir hans^settist aö i Breiðdal og eignaðist þar afkom- endur. Þau Sigurveig og Bjarni voru foreldrar 9 myndarlegra barna sem öll áttu það sameiginlegt siðar meir að koma meira og minna við sögu FáskrUðsfjarðar. Þar settu þau svipmót sitt á samtíö sina og unnuaf sæmd og dugnaði að uppbyggingu staöarins. Guðjón var einn af þeim en samt tengdist hann ekki FáskrUðsfiröi strax. Kornungur fer hann I fóstur til vandalausra er foreldrar hans þurftu að bregða bUi vegna jarönæðisskorts. Guðjón ólst. upp við alla algenga sveita- vinnu I Breiðdal og þar á meðal smala- mennsku oghjásetueins og titt var á þeim tima. Ha nn þótti trúr hj arðsveinn og hlaut að launum kalsár á fæti eitt sinn er hann var við slik gæslustörf og var talið að hundurinn hans hafi bjargað þvi að ekki fór verr. Ast hans á sauðkindinni hefur hann tek- ið með sér i veganesti yfir fjöllin, þvi allt- af átti Guðjón margt fé sem var mikil uppistaða f búskap hans og siðustu árin hafði hann fé sér til augnayndis þegar flest annað var horfið á braut. Guðjón var 2 ár vinnumaður aö Hafra- nesi eftir að hann flyst Ur Breiðdal. Siðan stundar hann sjómennsku um stundar- sakir bæði frá Skálavik og siöan Ur Vest- mannaeyjum. Voriö 1917 flyst hann al- kominn að BUðum og fæst þá við eigin Ut- gerö um tíma með öðrum manni en ekki mun Utgerðin hafa staðið lengi og tekur þá við almenn daglaunavinna. Guðjón giftist 25. nóvember 1917 Ólafiu Björgu J^ónsdóttur sem þá var ráðskona við Utgerð hans. Ólafia var Arnesingur aö ætt og uppruna fædd 2. des 1892. HUn var fóstursystir Bjarna Bjarnasonar fyrr- um skólastjóra aö Laugarvatni og ólust þau upp i Auðsholti á þvi myndarheimili. Þaðan lágusporin til höfuðborgarinnar og viðar i vist og vinnumennsku þar sem hUn kynntist mönnum og málefnum og nam I þvi sambandi margt til munns og handa sem átti eftir að komasér vel siðar meir á llfsleiöinni. Ólafia hafði þvi talsverða lifs- reynsluer húnsteigá land á Austfjöröum. A öðrum tug aldarinnar var algengt aö fólk af Suöurlandi bæði menn og konur leituöu eftir sumarvinnu á Austfjörðum og sýnir það vel uppgang þess landshluta á þeim árum. Þannig voruörlög þessarar sunnlensku konu ráöin. FáskrUðsfjörður varð hennar fyrirheitna land. Börn Guö- jóns og ólafiu eiga þvi rætur I blandaöri

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.