Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Síða 2

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Síða 2
mold sömu fósturjaröar. Ólafxu voru gefnir margir góóir kostir I vöggugjöf bæði likamleg hreysti og and- legt atgervi. Hiin var vir&uleg kona i allri framgöngu svo engum duldist a& þar fór meira en meöal manneskja. HUn vakti á sinum yngri árum veröskuldaöa athygli og kom mér þá i hug ummæli gamallar konu frá Tannastööum undir Ingólfsfjalli. Er hiin rifjaöi upp sinar æskuminningar þá minntist hxin Ólafiu ungrar stiilku I Kotstrandarkirkju fyrir það hvaö hún bauö af sér ferskan æskuþokka og hinn smekklegi klæöaburöur kom henni enn fyrir sjónir eftir öll þessi umliðnu ár. Þannig var Ólafia allt sitt lif, smekkleg kona, þóttefnin væru ekki alltaf mikil á veraldar vlsu. Hún var i eöli sinu lista saumakona og saumaði mikiö á sínu heimili. Var orð á þvi haft hvaö börn hennar voru jafnan snyrtilega til fara I skólanum. Alltfór vel úr höndum ólafiu, þótt oft væri saumað tvisvar lir sömu flik- inni. Þessi snyrtimennska og dugnaöur hefur gengiö i arf til margra hennar niöja en hún var kona sem geröi mestar kröfur til sjálfrar sinog var heimilinustjórnað af fastmótaöri reglusemi af hennar hendi. Ólafi'a lést 25. jiini 1964 eftir nær 47 ára farsælt hjónaband. Lengst af bjuggu þau hjón i litlu húsi sem Gestsstaðir heita, en áöur i Byggöarholti, en þaö hús byggöi Guöjón. Gestsstaðir standa um þaö bil I miðjum kaupsta&num og teygir túniö sig niöur aö götunni gegnt barnaskólanum. Til beggja handa streyma lækir ofan úr fjallinu meö ljúfan kliö syngjandi inn i hugljúfa morgna og róandi kvöldljóð hins deyjandi dags. Guöjón lagði mikla vinnu i aö rækta upp túniö sitt, sem var hin mesta staöarprýöi og einn af gróskublettum bæjarins. Visa vinnuátti Guöjón i mörg ár vio ai- greiöslu skipaútgeröarinnar hjá Jóni Daviðssyni verslunarstjóra á Tanganum og siöar Þorvaldi syni hans. Oft kom vinnulúinn maöur heim aö kvöldi eftir dagsstritið ogbeiö skipakomu næturinnar og áframhaldandi vinnu. 1 átta ár var hann utanbúðarmaður hjá kaupfélaginu og kjötmatsmaöur á Fá- skrúösfirði um áraraöir enda átti enginn betra saltkjöt en Guöjón á Gestsstööum. Sem fyrr getur drýgöi Guöjón ætiö tekj- ur sinar meö myndarlegu fjárbúi. Oft fékk hannfallegar kindur af fjaili á haust- in. Enhannvildilika vera heybirgur, þeg- ar harðnaði á dalnum og ekki minnkaði stabbinn eftir aö ungu mennirnir komu til sögunnar meö véltæknina. Eftir þaö var Guöjón bara heiðursfélagi viö hey- skapinn. Þar unnu þessar tvær kynslóöir hliö viö hliö og var þaö Guöjóni mikill ánægjuauki ersúþriöjafylgdi fast á eftir þvi Guöjón var afar barngóöur maöur. Þrálátur sjúkdómur ásótti hann oft svo hann var tilneyddur að leggjast inn á sjúkrahús. Þetta gekk yfir i týlgjum og alltaf vildi Guöjón heim i bæinn sinn á ný. En nú var allt breytt. HUsiö bergmála&i ekki lengur af glööum barnaröddum og konan löngu dáin. En heima vildi Guöjón vera, þar sem hver hlutur var á sinum staö, rétt eins og i tíö ólafíu. Þannig vildi Guöjón hafa það. Hann bar ætiö mikla virðingu fyrir konu sinni og stóö helgan vöröum minningu hennar meö varðveislu hússins f föstu formi. Guöjón var svo lán- samur aö fá aö eyöa ævikvöldinu viö sólarlagiö heima á Búöum meöan stætt var. ÞrjU yngstu börnin öll búsett á staön- um, geröuhonum þaö kleift. Baldvin var hans stoö og stytta öll elliárin og vakti viö hvert hans fótmál. Arnfriöur, Reynir, makar þeirra og börn voru öll reiðubúin aö veita honum alla þá aðstoö og þjónustu er hann þarfnaðist. 011 búa þau á myndar- heimilum í grennd viö Gestsstaöi svo gamli maöurinn sat jafnan daglega til borös hjá þeim þegarekki hamlaði veöur, þvi fótavist haföi hann oftast fram undir andlátiö. Guöjón dvaldist síöasta misserið á sjúkrahúsinu i Neskaupstaö þar sem hann þurfti aö vera undir læknishendi og fylgdist þá Baldvin jafnan náiö meö liöan hans. A sumardaginn fyrsta fór hann ásamt Arnfriöi i hinstu heimsóknina og var þá sýnt aö hverju stefndi. Ráö og rænu hafði hann aö visu og gladdist viö komu þeirra. En svo kom sumariö einnig til hans þaö breiddi Ut sinn likandi faöm. Gott fyrir þreyttan mann aö fá hægan blundogsofna inn i dýrö vorsins, þannig endaöi lif þessa gamla manns. „Þar biöa vinir i varpa sem von er á gesti”. Viö samgleöjumst Guöjóni meö endur- fundi viö látna ástvini og sendum þakkir aö leiöarlokum. Guö blessi minningu þessara mætu hjóna, sem lokið hafa lifs- göngu sinni á vorri jörö. Útför Guöjóns var gerð frá Bú&akirkju hinn 3. mai sl. Aö lokinni jaröarför komu saman á heimili Arnfriðar, börn hins látna og aðrir vanda- menn til sameiginlegrar kaffidrykkju. Voru mörg þeirra komin um langan veg til aö fylgja gamla manninum siöasta spölinn og lita aftur æskustöövarnar þennan kalda vordag. Þeim hjónum Guðjóni og Ólafíu varö 12 barna auðiö en tvö börn átti Ólafia fyrir meö Stefáni unnusta slnum áður en leiöir þeirra skildu. Kristin er elst barna Ólafiu hún er gift Tómasi Einarssyni kennara I Reykjavik. Kristin á eina dóttur barna. Siguröur albróðir Kristinar. Hans kona var Ragna Vilhjálmsdóttir og áttu þau eina dóttur barna. Siguröur lést á feröa- lagi erlendis 1967. Hann var þekktur sem verkalýösleiötogi i Vestmannaeyjum á sinum tima og átti sitt heimili þar. Sem fyrr segir voru börn þeirra Guöjóns og Ólafiu tólf, átta synir og fjórar dætur. Tveir sonanna eru látnir. Baldur Marinó, sem dó 6 ára 1932, og elsti sonurinn Sig- björn sem lést af slysförum 1947. Hann var bóndi aö Vattarnesi við Reyöarfjörö. Hann var giftur Kristinu Jónsdóttur ætta&ri Ur Berufjaröarhreppi nú búsett á Seltjarnarnesi og eignuðust þau þrjár dætur og einn son.Jón Arsæll fyrrum Ut- geröarmaöur, giftur Jóninu Guöbjörgu Brunnan. Þau búa á Höfn I Hornafiröi og eiga fjóra syni. Lilja, húsmóöir, gift Siguröi Þóröarsyni Utgeröarmanni og at- vinnurekenda i Vestmannaeyjum og eiga þau fjórar dætur og einn son. Þorleifur Bragi teppalagningamaöur Reykjavik. Hanner giftur Ursulu von Balszun frá Lu- beck i Þýskalandi. Þorleifur á einn upp- kominn son frá fyrra hjónabandi. Heið- veig húsmóöir i Hafnarfiröi. HUn er gift Brynjólfi Þóröarsyni bifreiöarstjóra, þekktum dugna&armanni þar um slóöir og eiga þau sex dætur og einn son. Unnur húsmóöir einnig búsett i Hafnarfirði hún er gift Steini Tryggvasyni bilamálara og eiga þau þrjá syni og þrjár dætur. Friö- finnur, verkstjóri hjá Hafskip h/f. Hans kona er Lára Hannesdóttir, ættuö Ur Keflavik og er þeirra heimili 1 Brei&holt- inu. Friöfinnur á átta börn frá fyrra hjónabandi, tvær dætur og sex syni. Axel er giftur Jóhönnu Daviösdóttur og eiga þau þrjá syni. Þau eru búsett á Hellis- sandi, Arnfrlður yngsta systirin er búsett á FáskrUösfirði. Hún er þekkt fyrir félagsmálastörf þar á staönum. Hennar ma&ur er Geir Helgason sem einnig er FáskrUösfiröingur. Börn Arnfriðar eru fimm dætur og einn sonur. Reynir bif- reiöarstjóri einnig bUSettur á FáskrUðs- firöi giftur Láru Hjartardóttur frá Arna- geröi og eiga þau fimm syni og eina dótt- ur. Siöast en ekki sist ver&ur nafn Bald- vins næst yngsta sonarins samofiö lifi gamla mannsins allt fram 1 andlátiö. Þetta er engan veginn tæmandi skrá yfirafkomendur Guöjóns Bjarnasonar og Ólafiu konuhans.Barnabörnunum fjölgar ár frá ári. Þaö er lögmál llfsins aö ein kynslóð taki viö af annarri þvi þótt ein kveöji I dag, heilsar önnur á morgun. Reykjavik 6. mai 1979 Tengdadóttir islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.