Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Page 13

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Page 13
Guðrún Sigurðardóttir F. 10/10 1882 D. 9.5 1979 Og Karl Jónsson frá Gunnfriðarstöðum F. 1884 D. 1950 / Guörún mun hafa verið fædd aö Hamri i Svinavatnshreppi. Foreldrar hennar Siguröur Guðmundsson og Guöný Guö- mundsdóttir ógift vinnuhjú, aö mig minn- ir, hafa heyrt hjá Arna A. Þorkelssyni Geitaskaröi, siöar hreppstjóra, sem þar hafði fyrir nokkrum árum tekiö viö bús- forráöum meö ekkju Bjarna sýslumanns Magnússonar, Hildi Bjarnadóttur Thorarensen skálds og amtmanns. Munu vinnuhjúin hafa veriö ung aö árum, félítil og reynslusnauö en vinnuharka ekki meiri en svo, aö þau gátu gripiö til þessara framkvæmda svona í fritímum sínum. Varö framvinda málanna sú, aö litlu dótturinni var komiö i fóstur aö Vatna- hverfitil hjónanna Halldóru Runólfsdótt- ur og Eggerts Eggertssonar hreppstjóra og framhaldiö af börnum þeirra er þar tóku viö búi: Þorsteini, Ingibjörgu og Guðbjörgu. Voru þau ógift og barnlaus. Varö kært meö þeim og fósturdótturinni, sem m.a. sannast á þvi, aö þegar árin liöu og Guörúnu ogmanni hennar fæddist sjö- unda barniö, Ingibjörg , þá tóku Vatna- hverfissystkini hana einnig til fósturs. Þegar Guörún haföi þroska til vann hún fyrst heimilinu og svo eitthvað hjá vanda- lausum, sem ekki varö þó lengi, þvl rúm- lega tvltug fastnaöi hún sér eiginmann, er varö llfsfórunautur hennar meöan bæöi liföu. Sá var Karl elsti sonur hjónanna aö Gunnfríöarstööum I Svlnavatnshreppi, Jóns Hróbjartssonar smiðs og bónda og önnu dóttur Einars Andréssonar, skálds og gáfumanns er kenndur var viö Bólu I Blönduhlið. Höföu þau búiö aö Gunn- frlöarstööum frá 1889. Ungu hjónin, Guörúnog Karl, hófu fljót- lega búskap þar, aö nokkru I sambýli viö eldri hjónin, foreldra Karls, en fluttu þaöan 1921 aö Mosfelli í Svlnavatnshreppi og bjuggu þar I fimm ár. Vorið 1926 flytja þau austur yfir Blöndu inn I Engihltöar- hrepp aö Kirkjuskaröi á Laxárdal, búa þar I fimm ár,síöanaö Refstööum á sama dal.sem þau dvelja þrjú ár. A Refstööum hendir aö sumri til þaö mikla tjón, aö Ibúöarhúsiö brennur til kaldra kola. Skeöi þaö aö nóttu. Var hrein mildi aö vart varö viö eldinn, svo fólkiö Islendingaþættir bjargaöist. Má nærri geta hver umsvif og röskun hefir hlotist af slíku gagnvart bú- skapnum og heimilishaldinu. Er ekki óliklegt aö þetta hafi aö nokkru valdið þvi aö dvöl þeirra varö ekki lengri aö Refstöðum, sem áður getur. Nú færa þau sig ofan i góösveitina Langadalinn, aö Holtastaöakoti. Trúlega fundiö þar sem bæöi voru komin yfir fimmtugt og þrek og kjarkur farinn aö dvlna, aö sllkt hentaöi þeim betur. 1 Holtastaöakoti dvelja þau viö búskap I tólf ár eöa til 1946 aö þau bregöa búi og flytja I húsmennsku aö Björnólfsstööum. Var Karl þá mjög farinn að heilsu og lítt eöa ekki fær til vinnu. Enda skammt til enda- dægurs.hann andaöist 1950 sextíu og sex ára aö aldri. Eftirlifandi kona hans þá sextiu og átta ára. Skyldi nokkur heföi viljað veöja á þaö þá aö hún ætti eftir ólifaða nærri þrjá tugi ára? Ég efa þaö stórlega þó slik veömál heföuveriö í tlsku. Heföi þar um komið til álita hversu miklu dagsverki þessi aldna kona þá var búin að skila. Af þessum óvenjulanga eftirmála lífs- sögunnar dvaldi Guörúnnokkuö hjá dótt- ur sinni Onnu á Blönduósi og svo aftur I húsmennsku á Björnólfsstööum. En tæp sextán slöustu árin á Héraöshælinu á Blönduósi. Lengstaf á ellideildinni, þar sem gjarnan var „heitt á könnunni” er vandamenn og vinir litu inn til hennar I einbýliö. Þau hjónin Guörún og Karl, eignuöust tlu börn.eru þau öll á llfi nema ein dætr- anna. Er þessi stóri hópur myndar- og manndómsfólk, sem ber foreldrunum fagurt vitni um erfðir, hamingju og uppeldi. Börnin eru eftir aldursröö: Halldóra, ekkja búsett I R.vlk. Anna ekkja búsett á Blönduósi. Katrin dáin. Jón skrifst.m. bú- settur á Blönduósi. Herdls ekkja, búsett I R.vik. Björn, verkstjóri vegag. Eyjarkoti. Ingibjörgbúsett á BI.ósi. Guöni giftur bfl- stjóri, Þorlákshöfn.Pálmi, giftur bilstjóri Akureyri, Július giftur bflstjóri Blöndu- ósi. Þegar þaö varö hljóöbært 1 sveitinni minni Engihliðarhreppnum á afllöandi vetri 1926, aö þessi óvenjulega stóra fjöl- skylda myndi flytja aö Kirkjuskarði,þóttu þaö allmikil og umtalsverö tiöindi. Ekki þó sllk sem oft áöur fyrr, aö amast væri viö fátæku barnafólki, af ótta viö aukin sveitarþyngsli. Sveitungarnir hugöu gott til aö kynnast nánar væntanlegum inn- flytjendum er gott orö fór af og sem sannaöisl viö náriari kynni aö var meö réttu. Hér var ekki á ferö neitt tvlrætt flóttafólk, heldur gott og mannvænlegt al- þýöufólk sem ánægjulegt var aö eiga kynni og samstarf viö. Nokkra sérstööu höföum viö Hvammsfjölskyldan hér um, vissum fyrir hvers myndi aö vænta um þetta fólk. Þar kom til nágrenniö milli Hvamms og Gunnfriöarstaöa, þar sem heita mátti örstutt milli bæjanna, Gunn- frlöarstaöa vestan Blöndu, gengt Hvammi austan hennar. Blanda aö vlsu meira torleiöi en venjuleg landamerki, þó kallfæri mætti heita milli bæja. Aö vetrin- um þegar Blanda var Isilögö, sem oft var, lengri eöa skemmri tima, þá naut ná- grenniö sin og var líka notaö einkum þó af yngra fólkinu til skautaiökana og fleira 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.