Íslendingaþættir Tímans - 07.07.1979, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 07.07.1979, Síða 5
Magnús Gíslason dr. phil. F. 25.6. 1917. D. 16.4. 1979. sina og settust ungu hjónin aö i Skógum Undir Eyjafjöllum, þar sem Magnús gerö- ist skólastjóri viö hinn nýstofnaöa héraös- skóla Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga. Þaö var mikiö vandaverk aö móta hina ungu menntastofnun i Skógum, en óhætt uuin aö fullyröa aö þaö hafi Magnúsi tek- ist svo vel, aö skólinn hafi þegar á fyrstu érum hlotiö almannalof fyrir viturlega stjórn, einstakan menningarbrag og égætan námsárangur. Skólanum 1 Skóg- um stjórnaöi Magnús fyrstu fimm árin, en ðriö 1954 hvarf hann þaöan og geröist 4 uúmsstjóri gagnfræöaskólanna i Reykja- vik. Skömmu siöar réöst hann jafnframt framkvæmdastjóri Norræna félagsins, enda haföi hann alla tiö mikinn og lifandi ^huga ánorrænni menningu og samstarfi þessara frændþjóöa. Ariö 1966 uröu enn þúttaskil i' lifi hans, þvi aö þá fluttist hann nieö fjölskyldu sinni til Sviþjóöar, þar sem hann geröist kennari og siöar skóla- stjóriviönorræna lýöháskólann i Kungelv viö Gautaborg. Bjó hann þar sem fræöari °g stjórnandi viö sæmd og rausn til dúnardægurs. Munu margir islenskir uámsmenn og feröalangar minnast meö sérstakri ánægju samfunda viö hann og fjölskyldu hans, eftir aö þau settust aö i Konungahellu. Magnús Gislason var einstakur hæfi- leikamaöur og hiö mesta göfugmenni. Munu það ailir votta, sem eitthvaö til hans þekktu. Leiöir okkar lágu ekki svo mjög saman, en meö þvi aö ég geröist eft- irmaður hans I Skógum, finnst mér að ég hafi kynnst honum nokkuð, þótt á óbeinan hátt sé, og standi viö hann i ómældri þakkarskuld fyrir þann arf heiörikju og úienningar, sem hann lét eftir sig á menntasetrinu viö rætur Eyjafjallajök- uls. Fyrir góö störf hans að mótun skóla- halds i' Skógum og dyrmætt framlag hans til mennta og menningar þar eystra leyfi ég mér að færa honum að leiöarlokum innilegustu þakkir. Þykist ég lika fullviss að undir þau orö taki samkennarar hans, óemendur, ráðamenn skólans og fjöl- margir vinir frá þeim árum, er hann dvaldist I Skógum. Eftirlifandieiginkonuogbörnum þeirra sendi ég einlægar samúöarkveðjur og biö guöaö blessa minningu Magnúsar Gisla- sonar. Jón R. Hjálmarsson. Einn af sægörpum Húsavikur hefur lát- iö úr höfn f þá siglingu, sem okkur er öll- um fyrirbúin fyrr eöa siöar. Þórhallur Karlsson skipstjóri frá Túnsbergi er lát- inn. Hann andaöist i sjúkrahúsi Húsavik- ur 13. mai siöast liðinn. Þórhallur var fæddur I Túnsbergi I Húsavik 5. september 1908. Foreldrar hans voru Karl Einarsson útvegsbóndi og heiðursborgari Húsavikurbæjar, og Anna Marla Arnadóttir kona hans. Þór- hallur ólst upp ásamt tveimur systrum eldri, Hansinu og Arnfriöi, á heimili for- eldra sinna,sem rómað var fyrir reglu- semi og myndarskap. Karl var aflasæll og sá búi sínu vel borgið, börn þeirra hjóna skorti þvi aldrei neitt i uppvextinum, en snemma var þeim haldiö til vinnu. Þegar á fermingaraldri hóf Þórhallur sjómennsku, fyrst viö útgerö fööur sins, en siðar á öörum Húsavi'kurbátum. Þórhallur lauk fiskimannaprófi á Akur- eyri 1936. Árið 1931 stofnaði Þórhallur eigin út- gerö i félagi viö Sigtrygg Jónasson og fleiri. Það ár keyptu þeir félagar mótor- bátinn Visi, sem þeir geröu út til ársins 1937. Ariö 1938 keyptu þeir stærri bát, sem einnig hlaut nafnið Visir. Bátum þessum var haldiö út frá Sandgeröi á vetrarver- tiöum, en frá heimahöfn á sumrum meöal annars til sildveiöa. Hlutafélagiö Visir, sem stofnaö var um útgerö fyrsta bátsins, Vísifélagiö, starfar enn og gerir nú út stærsta vélbát Húsavikurflotans. Sá bátur var sklrður Sigþór i höfuöiö á þeim félög- um Þórhalli skipstjóra og Sigtryggi vél- stjóra. Þórhallur var skipstjóri á bátum útgerðarinnar til ársins 1959, er hann veiktist á sumarvertiö og varö aö fara i land. Lauk þá farsælli skipstjórnartfö hans. Þórhallur var traustur og aflasæll skip- stjóri. Honum varö vel til háseta sakir þess trausts sem til hans var borið. Skip- stjórnhansvar farsæl og hann varö aldrei fyrir slysum eöa óhöppum á sjó. Honum og skipshöfn hanstókst eitt sinn aö bjarga manni úr bráðum sjávarháska. Þó aö Þórhallur fengi nokkurn bata á sjúkleika sinum, eftir aö hann fór i land, var heilsan alltaf tæp og oft lá hann þung- ar legur.ýmistheimaeöa á sjúkrahúsum. En hvert sinn er veikindaélunum létti var hann fljótur aö taka hendi til verka I þágu útgerðarinnar.Iöjulaus gat hann ekki set- iö heföi hann einhverja starfsorku. Þau eru vist orðin æöi mörg önglaþúsundin, Þórhallur Karlsson skipstjóri frá Túnsbergi sem hann hnýtti á og netin, sem hann lag- færöi fyrir Vísisútgeröina. Það mun tæp- ast of mælt aö sjórinn hafi átt hug hans allan þó heilsa hans siöast liöin tuttugu ár leyföi honum ekki aö sækja sjóinn. Veiöi- skap lagöi hann þó ekki alveg á hilluna, þvi mörg undanfarin sumur hefur hann átt góöar stundir á bökkum Laxár i Aðal- dal meö sonum sinum og öörum vinum meö veiöistöng i höndum. 1 niu sumur eftir aö Þórhallur varö aö fara i land starfaöi hann fyrir sildarleit- ina, fyrsta áriö á Seyöisfiröi, en siöan á Raufarhöfn. Hinn 21. október 1939 kvæntist Þórhall- ur ágætri konu Hrefnu Bjarnadóttur frá Stapadal i Arnarfiröi. Þeim hjónum varö tveggja sona auöiö, sem báöir fetuöu I spor fööur sins og eru velþekktir skip- stjórar á fiskveiöiflotanum. Þeir eru: Óskar Karl, búsettur i Keflavik, kvæntur Elísabetu Mariu Jóhannsdóttur frá Akur- eyri og Hörður búsettur á Húsavlk, kvæntur Ólöfu Hallbjörgu Árnadóttur frá Akureyri. Dóttur Hrefnu, Hjördisi Sævar loftskeytakonu, sem starfar á norska kaupskipaflotanum, reyndist Þórhallur sem besti faöir i' þess orös fyllstu merk- ingu. Ariö 1945 byggöu þau Þórhallur og Hrefna sér Ibúöarhús aö Asgarösvegi 5, þar varsíöan heimili þeirra,hlýtt og bjart. Þar var gott aö koma, gestum vel fagnaö og veitt af rausn og vinsemd. Þórhallur var glæsilegur maöur, þéttur á velli og þéttur i lund. Honum fylgdi allt- islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.