Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Side 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 21. júli 1979 23. tbl. TIMANS Bjarnveig Guðjónsdótttir Fædd 5. nóv. 1896 Dáin 14. júnl 1979 Hún syngur sömu lögin og sefar huga minn. — Við barm hennar bleikan verö ég aö barni i annaö sinn." Svo kvaö skáldið Daviö Stefánsson frá Fagraskógi i kvæöi sínu Fóstra min. Þau oröhans vil ég gera aö minum, þegar ég nú minnist fáeinum fátæklegum oröum þeirrar konu, sem ég hef þekkt besta um ævina, hennar Veigu á Seljabrekku. Hjá henni áttu allir heima, er áttu bágt. Hjá henni fann enginn til þeirrar smæöar, er sumir, af fávisku sinni, láta bitna.á þeim, er þeir þykjast hafa I fullu tré viö. Hjá henni voru allir jafningjar og sátu viö sama borö. Þeir voru margir smæl- -ingjarnir er hún tók aö sér aö annast og ganga í móöurstaö. Þar heföi Ólafi Kára- syni Ljósviking liöiö vel oghjá henni leið mér vel. Eftir sex ára legu á s júkrahúsi var mér komið fyrirhjá þeim hjónum, Bjarnveigu og Guðmundi Þorlákssyni, og varö vist min hjá þeim sennilega lengri en í upphafi vartilætlast. Þaövar míngæfa. útlistun á tilgangi meö striti manns og skepnu fyrir tilveru sinni geröi fyrirhafnarlaust lif á spftala fyrst i stað aö drungalegri staö- reynd, ensiöar aö björtum veruleik. Mér var kennt, aö letin væri upphaf allrar ógæfu, þó ég hafi aldrei tekiö fullnaöar-^ próf i þeirri fræöigrein. Viröing fyrir' landinu góöa meö öllum þess gæöum og gjöfum, sól og sumri, rigningu og sUld, fegurö og ljótleik, var vakin hjá þessum álfi Ut úr hól sem eins og var að fæöast þrettán ára gamall. Mest áherzla i upp- eldinu var þó lögö á hina umkomu- lausu. Sá, sem hændi aö sér dýrin og var þeirra vinur, öölaöist örugglega Himnarikisvist, hvernig svo sem allt annaö velktist. HUn var sannur málsvari allra þeirra, er einhvers þurftu meö. Aldreisá ég Veigubregðast verr viö en þá, er á þá var hallaö i oröi eöa verki. Hroki og yfirlæti voru eitur i hennar beinum. Aldrei hef ég kynnst hjónum, erhöföumeiritrúá kærleikanum i manninum, þó mér sjálfum hafi oft gleymst aö meta þann boöskap aö verö- leikum. Svo vinmörg voruhjónin á Seljabrekku, aö fáir gengu þar hjá garði án þess aö staldra viö. Tilefniö var oft smátt utan sú ánægja og gleöi aö hitta fyrir góösemi og gestrisni húsráöenda, enda var i sam- ræðum viö þau af miklu aö taka. Þau voru bæöi viölesin og fróö um menn og málefni, enda má i þvi efni minna á orö Hávamála, að Veistu, ef þú vin átt, þann er þú vel trúir, og vill þú af hánum gótt geta, geöi skaltu viö þann blanda, ok gjöfum skipta, fara at frnna oft. Með trega i huga en ljúfar minningar kveðég þig nú, Veigamin, ogbiö þér Guös blessunar. Þúsyngur sömu lögin og sefar hugaminn. Ég biöþann, sem er öllu ofar, aö veita þér, Guömundur minn og fóstri, og öllum ykkar ástvinum, styrk, þrótt og trú til aö sigrast á mótlætinu og þerra tár af hvörmum. Hugsunin um mikilhæfa, góöa konu og frábæra móður er smyrsl á ógróin sár, sem timinn einn fær læknað. Blessuö sé minning Bjarnveigar Guöjónsdóttur. Guömundur Gfslason Skammt er stórra högga milli I sveitinni okkar. Nú hefir maöurinn meö ljáinn komið við i Seljabrekku en frú Bjarnveig lést á Landspitalanum i siöustu viku. Bjarnveig Guöjónsdóttir er sunn- lenskrar ættar en fæddist á Patreksfirði þann 5. nóvember 1896,þar sem foreldrar hennar fluttu búferlum vestur um þetta leyti. Lengst af voru þau búsett að Geita- gildi i örlygshöfn og þar ólst Bjarnveig upp. Um tvítugsaldurinn lá leiöin til Reykja- vikur og þar var atvinnu aö fá svo sem i Viöey, en þarna hitti hún mannsefni sitt Guömund Þorláksson frá KorpUlfs- stöðum. Hann lifir konu sina nú i hárri elli og situr að búi sinu aö Seljabrekku I Mosfellssveit. Þeim hjónum varö sex barna auðið en þar aö auki ólst dóttur- sonur upp á heimilinu og er nú stoö og stytta gamla mannsins. Lifsferill Bjarnveigar er sá a ö þau hefja sinn búskap i Reykjavik en flytjast að Minna-Mosfelli 1927 ogþaöan aö nýbýlinu Seljabrekku 1934, en þar hófst búseta þeirra i tjaldi meöan húsiö var byggt. Þau Bjarnveig og Guðmundur eignuö- ust 6 börn og önnur sex voru fermd frá þessu heimili.en þau voru bæöi skyld og óvandabundin og segir þetta sina sögu sem engu þarf viö aö bæta. Bjarnveig stóö fyrir sinu heimili oft viö erfiöar aöstæöur eins og titt er um fólk sem sst aö á eyði- jörð. Viö samferöamenn Bjarnveigar viljum senda henni og hennar fólki þökk fyrir samveruna. Sjálf var hún ákaflega félagslynd og starfaöi i félögum sveitar- innart.d. ungmennafélagi, kvenfélagi og i kirkjukór Lágafellskirkju um langt árabil meö sinn bjarta sópran. Við kveöjum Bjarnveigu i dag og þökkum samfylgdina en eftir eru störfin hennar sem minnisvaröi um konu sem ekkert má aumt sjá. Hjarta hennar var þannig úr garöi gert aö mildi ogmiskunn- semi sat þar ávallt i fyrirrúmi, ég og fleiri hafa notiö þess á undanförum árum. Jón M. Guömundsson.

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.