Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Page 5

Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Page 5
Hvernig á hann lika aö skilja þetta! Hér heftir þó varla búiö fólk eöa hvaö? Ó jú, hér bjó reyndar fólk á öldinni sem leiö. BærinnhétTjaldbrekkaogvar ibyggö frá 1840 til 1891. Ef einhver hefur áhuga á frekari vitneskju skal bent á kaflann Tjaldbrekkubændur i bókinni Bóndinn á heiöinni eftir Guölaug Jónsson. Þar fæst vitneskja um aö þessi hálfgrónu tóttar- brot gætu ef þau fengju mælt sagt sögu af fólki, sem þarna baröist fyrir lifinu, gladdist, hryggöist, ól si'n börn og dó. Rétt eitt hundraö ár, Þann 25. okt. 1978 voru rétt eitt hundraö ár siöan kona ein tók léttasótt á þessum afskekkta bæ. Hún hét Jóhanna Steindórsdóttir og var gift Ólafi Eyleifssyni. Þau bjuggu að Tjaldbrekku i 13 ár. 25.oktober áriö 1878 var hriðarkóf þar efra og Ólafur bóndi batt huröina aö bæ slnum fast aftur, svo eldri börnin færu sér ekki að voöa á meöan hannhljóp léttstiguraðhætti ættar sinnar niöur aö Hltardal (4 tima lestarganga) þeirra erinda aö sækja ljósmóöur til aö taka á móti sjöunda barni þeirrá hjóna. Varla hefur Ólafur veriö jafn léttstigur fjórum árum sfðar þegar hann áð undangegngnum fjárkláöa og öörum T haröindum teymdi undir börnum sfnum og búslóö niður i sveit, vitandi þaö sem auðvitað varö — tvistrun fjölskyldunnar skammt undan. Þetta er litiö brot af sögunni sem rústirnar við Hitarvatn gætu sagt frá ef þær mættu mæla, en sagan af litlu stúik- unni sem fæddist þarna fyrir 100 árum er enn ekki öll. Hún heitir Jóhanna ólafs- dóttir siðast húsfreyja að Breiöholti I Reykjavik. Jóhanna var gift Þorleifi Jónssyni frá Hitardal i Mýrasýslu. Þau hjón bjuggu lengst I Selárdal.i Hörðudal, en áriö 1916 fluttu þau suður yfir fjall aö Höföa i Eyjahreppi og þar i sveit höföu þau búsetu allt að árinu 1934 aö þau yfir- gáfu Snæfellsnes og tóku sér far til Reykjavikur. Þa höfðu þau eignast niu börnmissttvöentekiö tvö fósturbörn sem þau önnuðust af skilningsrikum mann- kærleika svo ekki sé meira sagt. Þessi mætu hjón lifðu það aö halda hátiðlegt gullbrúðkaupsitt en þá var Þor- leifur farinn aö heilsu. Hann lest um haustuö 1954. Frá þvi hefur Jóhanna búiö I skjóli barna sinna og fósturbarna, þar til að seint á árinu 1977 að hún siasaðist og hefur legiö rúmföst aö mestu á öldrunar- deild Landspitalans i Hátúni 10B. Vil ég nota þetta tækifæri til að þakka öllu starfsfólki þeirrar stofnunar frábær störf og alúð i framkomu. Jóhanna ólafsdóttir er kona sem ekki gleymist þeim er henni hafa kynnst. Siung ianda, frjálslyndog fordómalaus, en fast- heldin á þaðsem henni þótti skynsamlegt isinum barnalærdómi. Þó fristundir væru fáar á hennar starfsömu ævi, var undur hve vel henni tókst að komast yfir mennt- andi lesefni og festa þaö i huga áér. Var henni á þvi sviöi mikill styrkur að þvi slálminni sem næstum er einkenni á henni og hennar ættfólki. Þó hún fylgist vel meö sveitarmálum, landsmálum og heims- málum var hennar eigin heimur innan banda fjöls kyldunnar. Enn I dag fylgist hún daglega með sinu fólki og gleðst sérstak- lega yfir framgangi þeirra sem nú eru óðast aö vaxa úr grasi i þeim hópi. Eðli- lega er hún ákaflega vinsæl og hefur verið þaö alla ævi. Þessihlýja, glaöa framkoma laðar fólk að henni og hefur alltaf gert. Henni er ekkert óviökomandi og hún legg- ur gott til I hverju máli. Hjá henni og hennar likum finnur maður aö sem betur fer á mannkynið þó enn von um bjartari daga. Hanna Haraldsdóttir. Jóhanna Hallvarðsdóttir Fædd, 19. júli 1894 Dáin, 17. mai 1977 Kveöja frá börnunum hennar Við kveðjum þig móðir meö Hornbjarg i hug og hafnyrðings brimgný á ströndum, sigmenn á bergstöllum djörfung og dug, og drottinn vors lands þér á höndum. Þar var heimiliö þitt, þar var starf þitt og striö, hið stórbrotna llfskall, þin ævitlð. Að heiman þú gekkst eftir missi þins manns, þá mæddi þig kviðinn og sorgin, en máttugri og stærri var minningin hans en myrkasta klettaborgin, þvi gekkst þú aö heiman á hamarsins brún með hinum aö lesa þar standbergsins rún. frá Horni i Sléttuhreppi Þinn kotbær var Horn I Hornavik, þaö hljómar sem örlagadómur, um stritiö og kuldann og stagbætta flik, þaö starfssviö varö ákailsins hljómur, aö bjargast þar af, vera börnunum hlif, varö brauöstritsins gleöi, þinn hugur, þitt lif. A Horni var fagurt þó kröpp væru kjör, þar krjúpa aö himinsins ljóma jafnt grunnvik sem Hornbjarg, hver vakin vör meö vorboöans helgidóma. Allt lifrikiö fagnar, hver maður fær mátt hins mikla sem skapar og vogar sér hátt. Þaö land var þin ættjörö, þess eilifö þin sól, sem aldrei má fölna né kólna. Þar eiga vor hjörtu og hugurinn skjól sem helgar oss skin allra sólna. Svo björt var þin fegursta framtiöarsýn um fólk þitt og land, þaö var hugsjónin þin. Þin ævi er hnigin aö hjarta þins lands og heimvon að björtustu ljósum, þvi fléttum viö börnin þér kvebjukrans af kærleikans fegurstu rósum. Þin trú var svo heit fram á hinstu stund á hreinleik alls mannlifs og barnsgiaöa lund. Tryggvi Emiisson Islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.