Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 29.09.1979, Qupperneq 6

Íslendingaþættir Tímans - 29.09.1979, Qupperneq 6
Olafur B. Olafsson Fæddur 27. mars 1911 Dáinn 9. ágúst 1979 Þann 9. ágiist anda&ist i Reykjavlk Ólafur Bjarni ólafsson eftir alllanga bar- áttu við banvænan sjúkdóm. ólafur var Vestfirðingur aö uppruna og áttu byggðir Arnarfjarðar mestrúm I æskuminningum hans, þótt ekki væri hann fæddur þar. Hann hefur eflaust kynnst öllum al- gengustu störfum sinnar kynslóðar, en sjómennska og útgerð áttu þó hug hans allan. Hann byrjaöi ungur sem háseti og siðar kyndari. Þá tók hann vélstjórapróf og var þá um tima ýmist vélstjóri eða kyndari, stundum á islenskum skipum og oft á norskum. En ólafur lét ekki þar við sitja. Hann sótti námskeið fyrir skipstjórnarmenn og lauk þar prófi. Eftir þaö var hann skipstjóri i nokkur ár og þá oftast á bátum frá Isafiröi. Eitt þessara skipa var m.b. Hjördis. A þvi skipi háði hann sina hörðustu baráttu við hafiö. Dauöaslysi varð ekki afstýrt, en karl- mennska hans, frábært þrek og kjarkur bjargaöi þeim sem eftir lifðu. Langt er nú umliöiö frá fyrstu kynnum okkar ólafs, þá er hann dvaldi I fyrsta sinn á æsku- heimilimínu. Ólafurflutti heim i fámenn- ið ferskan blæ með ævintýralegum frá- sögnum úr höfuðborginni og af erlendri grund. Hann var ungur þegar hann leitaði fyrst til Reykjavikur. Þar fékk hann að reyna lingur er hrifinn burt úr þessum heimi. Hvers vegna hún? aðeins tólf ára og átti allt lifið framundan, hvers vegna hún sem var sólargeisli heimilisins, dugleg, greind og áhugasöm um búskapinn. Hvers vegna? Viðmunumekkihér á jörö fá svar við þessum spurnum. Á sunnudagsmorgni lýkur hún við að snúa töðunni og á heimleið til bæjar er hún hrifin burt úr þessu lifi, barnið sem var svo glattog áhugasamt að morgni er horfið á vit eilifðarinnar, og þar hefur á- reiðanlega veriö tekiö vel á móti heni. Þessi sólargeisli er floginn til meiri starfa guðs um geim. Hún sem ætlaði að verða bóndi I Vallholti, yrkir áreiðanlega annað vallholt á guðs vegum. Nú þegar við kveðjum hana minnumst við sérstaklega þeirra stunda sem við átt- um með henni, þegar hún aðeins þriggja ára dvaldi hjá okkur um tima og hélt hér upp áfjögurra ára afmælið sitt, og siöan allra góðu ogglöðu stundanna i sveitinni á kröpp kjör, sem voru hlutskipti margra á kreppuárunum. A þeim árum voru skoðanir I stjórnmálum dregnar skörpum afmörkuðum linum og ungir menn skipuðu sér i fylkingar undir erlendum vigorðum. ólafur komst i' kynni við þessa ungu,reiöu og herskáu menn sem hugðust bæta heiminn fljótt ogvel. Leiðirnar voru umdeilanlegar.endraumsýn þeirra lofaöi sumrin i faömi Skagafjarðar við leik og störf. Hún var alltaf atorkusöm, verklag- in, samdi ljóð og lög og lék þau af fingrum fram. Við erum sérstaklega þakklát fyrir þann stutta tima sem hún dvaldi hjá okk- ur s.l. haust þegar hún var hér I heimsókn með móður sinni. Léttar samræður um margvisleg efni og áhugamál ungu stúlk- unnar færöu ferskan andblæ inn á heimili okkar. Aðalheiöur Erla var dóttir hjónanna Stefaniu Sæmundsdóttur og Gunnars Gunnarssonar, Syðra Vallholti, Skaga- firði. Hún átti eldri hálfsystur, Jóninu og voru þær mjög samrýmdar. í djúpum harmi eru orð magnlaus, en viö vitum að minningin um þann bjarta sólargeisla, sem lýsti upp Vallholtið þennan stutta tima, verður smyrsl á sárin. Við Vallhyltingar sunnan heiða biðjum aigóðan guð að styrkja ykkur á sorgar- stund. Ingibjörg og Móses. góöu. Ólafur var mjög frábitinn öllu of- beldi en draumi sinum um breytt þjóö- félag og betra mannlif gleymdi hann aldrei. Ólafurvar sérstaklega hrifnæmur. Hann átti sér glæsta drauma um framtið þjóðarinnar og hvatti til stórra verkefna. En þótt djarfar vonir hans næðu ekki fram að ganga slæf&i það ekki glaöværð hans.þvi alltaf tóku við nýjar hugmyndir og ný verkefni sem áttu hug hans allan. Ólafur var fyrsti vandalausi maðurinn sem ég tengdist vináttuböndum, þá ungur drengur og ráövilltur eftir föðurmissi. Vinsemd hans og traust, þaö er hann bar til svo ungs manns hefur siðan verið mér sólskinsblettur I röð minninganna. Olafur var mikill bjartsýnismaður og æðruorð heyrði ég aldrá af vörum hans. Það getur ver» lærdómsrikt fyrir venjulegt fólk að kynnast slikum manni. ólafur lifði ham- ingjusömu lifi enda þótt ytri aðstæður virtust stundum ekki gefa tilefni til þess. Mörgum varö þaö á að gleyma tlmanum, þegar hann hitti ólaf a& máli. Frásögn hans var lifandi og skýr. Hann haföi frá mörgu að segja, enda var lif hans samofið fjiflmörgum ævintýrum sem ýmist gerðust hér eða erlenis. Þegar Ólafur gekk á vit feðra sinna var hann orðinn nokkuð við aldur, heilsuveill og trúlega búinn að missa sjónir á mörgum vinum sinum. Þaö vill verða hlutskipti margra. En þegar ég hitti hann siðast, lýsti gamli ákafinn og gleðin upp svip hans þegar minnst var á gamla og gó&a daga. Nú er siðustu sjóferðinni lokið og skip hans hefur verið dregiö i naust. En eftir lifir minningin um góöan dreng, nægju- saman og glaðværan sem átti þann dýr- mæta hæfileika aö sjá ætlð bjarta hlið á hverjum hlut. Sigfús Kristjánsson Keflavik 6 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.