Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1980, Qupperneq 4

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1980, Qupperneq 4
Ástvaldur Helgi Ásgeirsson Fæddur 13. júnl 1908 Dáinn 8. mal 1980. 16. mal s.l. var til moldar borinn bróöir okkar Astvaldur Helgi Asgeirsson og var hann sá sjötti af systkinunum sem kveður þennanheim. Hann heföi oröiö 72 ára 13. jilnl n.k. ef honum heföi enst aldur til. Foreldrar hans, hjónin Þórunn Þor- steinsdóttir og Asgeir Asmundsson, eign- uöust fimm syni og fimm dætur og var Helgi næstelstur. Starfsdagurinn var oröinn langur þar sem hann byrjaöi ungur drengur aö vinna fyrir sér. Eins og annars staöar hefur komiö fram þá vann hann um árabil viö heildverzlun Jóhanns ólafssonar eöa þar til hann stofnaöi sitt eigiö fyrirtæki ásamt Astu konu sinni. Helgi var góöum gáfum gæddur, hjálp- fiis og drengur hinn besti, enda öllum hjartfólginn erhonum kynntust. Hann var ljóðelskur, haföi yndi af góöri tónlist sem og annarri list. Viö systkini hans minnumst margra ánægjustunda sem viö áttum saman og þá einkum feröalaga um Borgarfjörö, Þjórs- árdal, Þingvelli og fleiri staöi, en Helgi var náttilruunnandi mikill. ógleymanleg- ar eru berjaferöirnar meö börnum okkar, sem litlu frændsystkinin glöddust svo mikið yfir. En þvl miöur lögöust þessar feröir smátt og smátt niöur vegna veik- inda Helga, sem stóöu yfirmörg hin sföari ár. Bróöir okkar átti þvl láni aö fagna aö eignast elskulega og hugprUöa eiginkonu, Astu AgUstsdóttur, sem bjó honum og dætrum þeirra fagurt heimili i orös fvllstu merkingu. Viö erum þakklát fyrir aö hafa fengiö aö kynnast þeirri manndóms- og viröingarveröu konu. Viö biöjum algóöan guö aö styrkja hana og styðja. Guö blessi minningu vors látna bróöur, styöji og styrki börn, tengdabörn, barnabörn aöra ættingja og vini. Systurnar 8. þessa mánaöar lést á Borgarspltalan- um, Astvaldur Helgi Asgeirsson eftir langvarandi veikindi. Helgi eins og hann var alltaf kallaður var fæddur i Reykjavlk 13,júni 1908. For- eldrar hans voru hjónin Þórunn Þor- steinsdóttir og Asgeir Asmundsson. Þór- unn var dóttir Margrétar Nlelsdóttur og Þorsteins Þorsteinssonar frá Kletti • Hafnarfiröi viö Reykjavlkurveg, og As geir varsonur Kristlnar .Magnúsdóttur og Asmundar Einarssonar hins kunna sjó- sóknara, sem lengi bjuggu á Stóra Seli I Reykjavik. Helgi var næst elstur 11 systkina, af þeim systkinum eru nú fimm á lifi,þau eru Asmundur, Gunnar, Laufey, Borghildur og Guörún sem búsett er I Noregi. Helgi ólst upp I foreldrahúsum. Ungur aö árum byrjaöi hann aö vinna hjá F.C- Muller, slöar hjá Heildverslun Jóhanns Ólafssonar & c/oog vann þar I mörg ár. Helgi vann viö verzlunarviöskipti alla ævi. Hann var talinn mjög hagsýnn og áreiöanlegur I viöskiptum. Áriö 1929 gift' istHelgi Þorsteinu Helgadóttur,en Steina eins og hún var kölluö var dóttir Kristínar sem var systir Þórunnar móöur Helga- Þau hjónin eignuöust fjögur börn, Krist- þór, Birgi, Valdimar og Kristlnu Sigríöi- Þau Helgi og Steina slitu slöar samvist- um. Slöar giftist hann Astu Agústsdóttur og eignuöust þau tvær dætur, Ásthildi og Bryndlsi. Vil ég þakka Astu fyrir þá um- hyggju sem hún hefur veitt fööur mlnum • veikindum hans. Kristþór Borg Helgason- Eiríkur Guðmundsson þarígarð, og oft másjá bilum skákað út á tún. Fagrahvammshjón eru mikið ágætis- fólk I orösins fyllstu merkingu. Hjálpsöm, greiövikin, vinmörg og virt af öllum sem til þekkja. Þar liöur öllum vel, sem þar dvelja, og koma. Þar fer margur bitinn og sopinn I gest og gangandi og ekki taliö eftir. Þau eru glööust allra á góöri stund — líka vinir þegar syrtir i álinn. Þangaö munu margir hugir leita nú, þegar hús- bóndinn stendur viö þennan áfanga æfi sinnar. Margur viljaö rétta honum hönd. Þakka fyrir ágæt kynni og góöa fyrir- greiöslu á marga lund. Disir þær, sem vöktu viö vöggu Hjartar á ungum vordögum noröur í Bitru hafa ekki skiliö við hann. Hamingjusól hans er enn I hádegisstað. Kristján Guömundsson, Brekku. Framhald af 16 siðu. holts, búsett I KCpavogi, Jóhanna Sigriöur húsfreyja, gift Páli Helgasyni kennara, búsettá Siglufiröi, Bergur múrari, kvænt- ur Onnu Hjálmarsdóttur, búsett á Norö- firöi, Guöný húsfreyja, gift Svafari Jóns- syni trésmiö, búsett I Reykjavlk, Asa, hefur veriö sjúklingur og er öryrki, býr I heimahúsum, Kristín sjúkraliöi, gift Gunnari Geir Bjarnasyni, sjómanni, bú- sett I Reykjavlk. Starfsdagurinn hjá Eirlki Guömunds- syni varö stundum nokkuö langur. Hann þurfti aö leggja hart aö sér til þess aö sjá þessari stóru fjölskyldu farboröa. Hann var eftirsóttur smiöur, og haföi sjaldan friö á matmálstlmum, þvi vinir og vandalausirþurftuaöláta lagfæra hjá sér þetta og hitt. Frændaliö Eirlks sem naut góös af verkhyggni hans og hjálpfýs|’ hugsar nú til hans meö þakklæti og hlýJ' um hug. „Hvílir nú sú hönd, er hvlldar unni sjald- an sér um slna daga. Skörungmenni! Skóla né arfs þurftir Þú né þáöir: ÞU varst sjálfum nógur’.’ (Matth. Jochumsson) Kveöja frá frændkonu- 4 islendingaþætti1'

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.