Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1981, Side 8

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1981, Side 8
70 ára Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi Baldvin Þorkell Kristjánsson f. 9. april 1910 að Stað i Aðalvik N-ls. For.: Kristján Egilsson sjómaður og kona hans Halldóra Fi nnbjörnsdóttir. Nám i Núpssk. 1927-29. Brautskr. úr Samvinnu- sk. 1931. Framh.nám Jakobsbergs- lýðhsk. i Sviþjóð 1937-38. Námskeið i'sam- vinnufræðum við sænska samvinnsk. að Vár gárd 1948. Námsferð til Folksam, sænsku samvinnutrygginganna, 1960 og kynnti sér einkum útbreiðslumál. Stundaði sjómennsku frá bernsku fram yfir tvitugt. Skrifstofumaöur hjá Sam- vinnufél. tsfirðinga 1932-35. Aðalbókari og gjaldkeri Sildarútvegsnefndar, Sigluf. frá stofnun 1935-44 þar af2sumur trúnaðarm. Siglufjarðarkaupstaðar viö virkjun Skeið- foss iFljótum. Erindreki Landssamb. Isl. útvegsm. 1945 i mars til sept. 1946. — Erindreki Samb. tsl. samvinnufélaga 1. okt. 1946 til ársloka 1953. Ferðaðist um land allt, fluttiótal erindi og ræður á veg- um sambandsfélaga og fl. Framkvæmda- stj. hraðfrystihúss StS á Kirkjusandi, Rvk. 1954 til 1. júli 1960. Fyrsti útbreiðslu- stjóri Samvinnutrygginga frá ársbyrjun 1961. Framkvæmdastjóri landssöfnunar Barnahjálpar SÞ hér á landi 1948. Ritari Verkalýðs fél. Baldurs á Isafirði 1931-35. Formaður Siglufjarðardeildar Norræna- félagsins frá stofnun, meðan hann dvaldi þar. t stjórn Vestfirðingafélagsins þar. Varaformaður K.f. Siglfiröinga 1940-44 og fulltrúi á aðalfundum StS. Ritstjóri blaðs- ins Sildarinnar, er út kom á Siglufirði um tima. Endurskoðandi Vélbátaábyrgðafél. Gróttu, Reykjavilc frá 1958. Kvæntur 25. april 1931 Gróa Asmundsdóttur, sjó- manns á Akranesi Magnússonar.—”. Sú frásögn sem skráð er hér að framan (Tekin hér traustataki) er i bók einni sem kom út árið 1965 og ber nafniö íslenskir samtiðarmenn. Mér virðist að afmælis- barnið sem fyllir 7. áratuginn nú, þann 9. april eigi öllu fjölskrúðugri „Afrekaskrá” i bók þessari en flestir aðrir er þar koma viö sögu. Eins og alkunna er, hefur athafnali'f af- mælisbarnsins ekki staðið i stað frá þvi bókin kom út. Jafnvel sjaldan verið um- svifameira en hin siðari árin. Þaö erfrá þessum árumsem ég minnist ótal margra ánægjulegra samverustunda með hinum athafnasama afreksmanni. Ég ætla að það hafi verið laust fyrir miðjan 7. áratuginn sem fundum okkar Baldvins fyrst bar saman. Þá var hann útbreiðslustjóri Samvinnutrygginga, staddur á fjölmennum fundi á Selfossi. Athyglisvert fannst mér að sjá og heyra þennnan orðhvata mann I ræðustólnum. Orðkynngi hans og sannfæringarkraftur sýndi okkur, sem á hlýddu að þarna var maður ofan við meðalmennskuna,— Mað- ur sem sagði tæpitungulaust sina skoðun svo eftir var tekið. A stofnfundi Klúbbsins öruggur akstur i Arnessýslu sem haldinn var á Selfossi 18. nóvember 1965, leiddum við Baldvin fyrst „saman hesta okkar”. Frá þeirri stundu höfum við átt samleið og samstarf sem gotteraðminnast. Leiðir okkarhafa legið saman viða um land á liðnum árum. Avallt hefur þessi ferðagarpur verið au- fúsugestur, hvar sem hann hefur komið. Fróður er hann með afbrigðum og kann undra góð skil á mönnum og málefnum. Fá munu þau félagsheimili og fundahús hér á landi sem hann hefur ekki komið i og stigiði stólinn, —Jafnvel oft komið i mörg þeirra. Umferðamálin hefur Baldvin mjög látið til sin taka. Er oft tii þess vitnað hvað afdráttar- lausa afstööu hann tók með umferðar- breytingunni árið 1968. Var þó við ramm- an reip aðdraga i þeim efnum. Fljótt kom á daginn að þar valdi Baldvin rétta veg- inn. Réttur maður á réttum stað. Ekki fer „minni maður” alltaf troðnar slóðir. Aréttar stundum orð sin með ivafi ljóða og visdóms af spjöldum sögunnar i ræðustólnum. Fær ávallt gott hljóð og fjörugar umræður að lokinni framsögu. Óskabörnin hans Baldvins, Klúbbarnir öruggur akstur, 33 að tölu, i öllum byggðarlögum landsins eiga vissulega honum li'f aðlauna flestum öðrum fremur. A ,,ljósfaðirinn”enda mestan þátt i þvi að þeir urðu til og hafa vaxið til nokkurs þroska og verið „vakandi auga i byggð- inni” víða um land. Æviferill Baldvins Þ. Kristjánssonar hefur verið óvenju fjölþættur miðað við flesta aðra hans samtlðarmenn. Fæddur er hann i fámennu byggðarlagi. Fór ungur að árum til náms, miðað við mann- lif þess tima. Hefur tekiö þátt i atvinnullfi landsmanna til sjós og lands. Forgöngu- maður i' margþættum félagsmála- hreyfingum, fyrr og siðar. Einkum hefur Samvinnuhreyfingin og umferðanálin átt hug hans allan að undanförnu, auk margs annars sem of langt er upp að telja og al þjóðerkunnugt.Má þartil nefna útvarps- erindi, greinar i blööum og tímaritum, þýðingar hansá hinum frægu bókum Nor- man Vincent Peale og siðast en ekki sist: ritstjórn Gjallarhornsins málgagns fyrir Samvinnutryggingamenn sem Samvinnu- tryggingar gefa út og Baldvin hefur rit- stýrt frá upphafi sl. 20 ár. Framlag Baldvins að umferðar- og öryggismálum, mun að margra dómi sem best til þekkja vera sá þáttur i æfistarfi hans sem hvað mestun sköpum hefur skipt og undirstrikar manngildi hans og umhyggjufyrirannarra hag. Þessi þáttur verðurþó, einsog svo mörg önnur mann- anna verk hvorki veginn á vog né mældur með mælistiku. Handhafar orðuveitingarvaldsins i landinuhafa til þessa, ekki taliðástæðu að „Krossa” Baldin Þ. Kristjánson þrátt fyrir óvenju fjölþætt ævistarf — °8 árangursrikt. Margháttuð opinber viður- kenning hefur honum þó hlotnast Hann var sæmdur gullmerki Samvinnutrygg' inga 1969 og 1971 hlaut Baldvin SILFUR' BIL SAMVINNUTRYGGINGA „fyrir framlag til aukins umferðaröryggis”. Þá hlaut hann 1972 fyrsta og hingað til eina heiðursskjöld Félags Starfsmanna Sam- vinnutrygginga og Andvöku „fyrir frábær störf að félagsmálum samvinnumanna ■ Loks má geta þess að Baldvin var sæmdur kennaramerki sænska sarn- vinnuskólans, Vár gárd, þegar hann var þar nemandi á framhaldsnámskeiði árið 1948. Af 70 ára sjónarhóli má Baldvin Þ- Kristjánsson vel una sinu hlutskipti. Sam- starfsmenn hans viða um land minnast hinna „gömlu góðu daga” og senda at- mælisbaminu kærar kveðjur á afmæiis' daginn suður til sólarlanda þar sem hann dvelurásamt konu sinni Gróu á afm*ilS' deginum fjarri ys og önn hins daglega lifs; Bæði eiga þau 70 ára afmæli á þessu án Framhald á bls. 5 8 lsiendingaþ®ttir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.