Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Síða 1

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Síða 1
ISLENDINGAÞJETTIR Miðvikudagur 9. júní 1982 — 22. tbl. TÍMANS Ingibjörg Jósepsdóttir Fædd 17. maí 1889 Dáin 9. nóvember 1979 Ingibjörg var fædd að Bjarnastöðum í Skagafirði og voru foreldrar hennar hjónin Hólmfriður Björnsdóttir og Jósef J. Björns- s°n, skólastjóri bændaskólans að Hólum í Hjaltadal, og lika kennari við þann skóla um *angt skeið. Ingibjörg ólst upp í stórum systkinahópi Þar til hún er 5 ára, en þá missir hún móður s'na, og flyst hún þá að bænum Brimnesi og dvelst þar þangað til hún er 13 ára, en fer þá að Kolkuósi. Jósep faðir ingibjargar mun hafa fundið að þessi dóttir hans var óvenju m'klum gáfum gædd og reyndi því að stuðla að fræðslu hennar til handa meira en almennt gerist fyrir stúlkubörn á þeim tíma. ^etta stuðlar svo að þvi, að Ingibjörg lósefsdóttir fer til skólanáms í Danmörku Þegar hún er 18 ára og er þar við nám í 2 ár. Pað var ekki algengt í byrjun þ essarar aldar aö stúlkur nytu slíkrar fræðslu, heldur heyrði Pað til algjörrar undantekningar. Þeir sem a*astn upp i fræðslu þjóðfélagi okkar tima, Þeir geta tæplega áttað sig á, hve mikilsverð sk’k fræðsla var, eins og Ingibjörg Jósefs- óóttir fékkí byrjun aldarinnar. Fyrir stúlkur með skapfestu og gáfur Ingibjargar var þetta önietanlegt, og opnaði henni veg til áfram- naldandi sjálfsmenntunar um langa ævi. . “'r 2 ár i Danmörku heldur hún aftur heim ll* Islands og fer norður í Skagafjörð á ®skuslóðir, þá tvítug að aldri. Hún sest að á £°lkuósi, sem þá var smá verslunarstaður. Parna hittir hún ungan mann og þau fella hu8i saman. Þetta var Halldór Gunnlaugs- ^0ri. sem þarna vann við verslunina. Ingi- iq rg °8 Hahdór gengu í hjónaband 7. maí 14, þetta örlagarika ár mannkynsins þegar yrri heimsstyrjöldin var að hefjast. Næstu 2 r'n eiga ungu hjónin heima á Kolkuósi og Par fæðist þeirra fyrsta barn. Vorið 1916 ytja þau að Garðakoti í Hjaltadal og hefja .q^aP þar. í Garðakoti búa þau til ársins •11 eða í 15 ár. Þar eignuðust þau fimm °rn og voru börnin því orðin 6 þegar hér ar komið. Þetta örlagaríka ár verða þau að ^tta búskap. Halldór var orðinn veikur af erklum og varð að fara á Kristneshæli. Ogibjörg fylgdi honum þangað og hafði með á u ^ltur þeirra Hildi og gerðist starfskona ®*inu. Halldór er sjúklingur á Kristneshæli næstu árin, en fer á suður á Reykjahæli í Ölfusi, sem þá var einskonar visir að vinnuhæli berklasjúklinga. Ingibjörg og Hall- dór slitu svo samvistum árið 1937. Hjúskap- arslitin voru Ingibjörgu, þessari trygglyndu konu, áreiðanlega mikið áfall. Ingibjörg æðraðist þó ekki heldur tók þessu mótlæti með sinni miklu skapfestu og jafnaðargeði. Þetta voru örlög $em ekki urðu umflúin. Lífið hafði þrátt fyrir mótlæti og erfiðleika gefið henni hamingju sem hún var þakklát fyrir. Ljúfar minningar frá hamingjudögum hennar komu fram í hugann og hún blessaði þær. Erfiðlkeikar voru i huga Ingibjargar ætlaðir til að glima við og sigrast á þeim, en ekki til að gefast upp fyrir. Þannig held ég að hún hafi litið á líf sitt allt. Þegar þessi kona byrjar störf á Kristnes- hæli árið 1931 er hún á miðjum aldri, 42ja ára gömul, fríð yfirlitum með bjartan hreinan svip og gáfuleg auguf. Hún er í meðallagi há og þreklega vaxin. Hjúkrunar- konur og læknir hælisins Jónas Rafnar veita því fljótt athygli að hér er sérstæður einstaklingur á ferð, sem leggur fyllstu alúð við öll verk sem henni eru falin og leysir þau afburðavel af hendi. Þetta er kona sem vekur traust allra þeirra sem umgangast hana. Ingibjörg Jósefsdóttir verður lika trúnaðar- vinur margra sjúklinga. Það er eitthvað í fari hennar sem dregur þá að henni. Á þessum árum voru oft ekki nema tvær lærðar hjúkrunarkonur auk tveggja hjúkrunarnema á Kristneshæli, þá voru sjúkraliðar ekki ennþá komnir til sögunnar á sjúkrahúsum og hælum landsins. Hjúkrunarlið var af þessum sökum oftast yfirhlaðið störfum. Úr þessari vöntun var þó reynt að bæta á þann hátt að starfsstúlkur sem sköruðu fram úr i störfum, voru þjálfaðar til þess að sinna ýmsum störfum við hjúkrun. Eins og að framan sagði, þá tóku stjórnendur Kristneshælis fljótt eftir því að Ingibjörg var ein þeirra starfskvenna, sem treysta mátti til allra verka. Hún var því fljótt þjálfuð á hælinu til þess að sinna hjúkrunarstörfum og þegar stundir liðu fram, þá litu allir á hana sem fullgilda I þvi starfi. Liklega hefur hún lika lesið hjúkrunarfræðibækur á þessum árum því hún yar mjög bókhneigð kona, og sú undirstöðu menntun sem hún hafði hlotið áður en hún gekk í hjónaband, við hana var hún að auka alla ævi. Ég sem þessar línur rita kom unglingur á Kristneshæli og dvaldi þar í mörg ár. Ég naut umhyggju og ástúðar þessarar sérstæðu mikilhæfu konu eins og allir þeir sjúklingar sem hún umgekkst og hjúkraði. Ég hef saknað þess að hafa ekki séð Ingibjargar minnst við andlát hennar og því eru þessi orð skrifuð þó seint sé, sem þökk til hennar frá mér. Ingibjörg Jósefsdóttir vann á Kristneshæli við hjúkrun til ársins 1947 og þaðan fylgdu henni þakklæti og blessunaróskir allra sjúk- linga, lækna, hjúkrunarliðs og annars starfs- fólks. Ingibjörg fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima siðan. í Reykjavík vann hún fyrst hjá Hjúkrunar- félaginu Líkn, siðan á Elliheimilinu Grund í mörg ár, en síðustu starfsár sín var hún vökukona á sjúkrahúsinu Sólheimum. Allir sem kynntust Ingibjörgu elskuðu hana og virtu fyrir frábær störf. Þó Ingibjörg væri yfirhlaðin störfum langa ævi, fylgdist hún alltaf vel með öllum velferðarmálum og skipaði sér jafnan þar i fylkingu sem að sliku var unnið. Sjónarsvið hennar var vitt og greind viðfeðm. Síðustu ævi ár sín dvaldist Ingibjörg, næstu si&u.

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.