Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Side 7

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Side 7
Gauti Hannesson kennari og ritstjóri Fæddur 7. ágúst 1909 Dáinn 4. aprfl 1982 Manstu, lesandi góður, eftir miðaldra •nanni, ljóshærðum, grönnum og hávöxnum, er brunaði á reiðhjóli um götur Reykjavíkur rneðan fæstir sáust á þeim fararskjóta? Ég geri ráð fyrir því, að þig renni grun i það. Maðurinn vakti athygli margra. Ég tók til dæmis eftir honum löngu áður en ég kynntist honum persónulega fyrir um það bil áratug. Það var eitthvað hressandi við hann, eitthvað heilbrigt og eðlilegt. Það var sýnilegt á útliti hans, að hann hefði tamið sér hollar lífsvenj- ur. Innisetumaður var hann a.m.k. ekki. Út- litið gott. Það var auðséð, að hann var reglu- niaður. Gauti Hannesson kennari er genginn á vit feðra sinna eftir langt og farsælt ævistarf. Hann var kennari að lifsstarfi, þó að hann sinnti öðru, raunar því skyldu, um árabil. Gauti var fæddur hinn 7. ágúst árið 1909 i Hleiðargarði i Eyjafirði. Voru foreldrar hans hjónin Hannes Jónsson, bóndi og kenn- ari, er ritaði mikið í þjóðsagnaritið Grímu, °g Jónina Jóhannsdóttir. Gauti fór fremur seint í skóla, eins og títt var um sveitaungl- lnga. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskóla Akureyrar 1930-32. Almennu kennaraprófi Huk hann árið 1936 og handavinnukennara- Prófi 1942. Varð hann handavinnukennari við Miðbæjarskólann sama ár, en hafði áður einkennandi fyrir Bjarna og lýsir honum Hijög vel. Bjarni Þórðarson var tvikvæntur. Fyrri jc°na hans var Anna J. Eiriksdóttir, en hún jest 1975 Þau áttu tvo syni, Eirík sem var kvæntur og bjó á Eskifirði og átti tvö börn, fn fórst með bát sínum ásamt fleiri mönnum 1 uiynni Reyðarfjarðar, og Bergsvein, sem er °kvæntur. Seinni kona Bjarna var Hlif “Jarnadóttir, og lifir hún mann sinn. Reynd- *st hún honum sérstaklega vel á erfiðum öptum og umfram allt síðustu vikur, er hún Vek ekki frá sjúkrabeði hans, en hjúkraði °num af nærfærni og hlýju. Með Bjarna Þórðarsyni er genginn einn skeleggasti forustumaður sósíalista í Nes- uupstað og á Austurlandi öllu. Hann var ^ei*l i stefnu sinni og störfum, harður Máttumaður fyrir sinni skoðun og óvæginn , undstæðinga, en ætið sanngjarn og fús til ja(ta, þó eftir harða sennu væri, og hann vildi aja alla njóta sannmælis. Hann var virtur af lum, sem honum kynntust, þvi að hann Vann ætíð að því að rétta hlut þeirra, sem stóðu höllum fæti, og hann kom ætið til ytanna, eins og hann var klæddur. í viðmóti ís|endingaþættir stundað kennslu á þremur stöðum: Barða- strönd, Grimsey og á Seyðisfirði. Mörg sið- ustu árin var Gauti handmenntakennari við Melaskólann. Einnig kenndi hann samtímis handmennt við Fóstruskólann, Námsflokka Reykjavikur og einhverja enn fleiri skóla. Atorka hans i starfi var alveg einstök. Og kennari var hann af lífi og sál. Honum nægði ekki að kenna til sjötugs, heldur tók hann að sér stundakennslu i handmennt við Mela- skólann eftir það. Þetta kallar maður starfs- vilja, þegar flestir hætta störfum nú, eftir að hinni svonefndu 95-ára reglu er náð. Kannski ekki meira en sextugir, sumir tæplega það. Er hér átt við opinbera starfsmenn. Hér hefur verið dvalist við ævistarf Gauta, kennsluna. Þar vann hann gott starf. En honum nægði ekki kennslan ein. Hann var mikill dýravinur. Þess vegna lét hann að sér kveða i dýraverndarmálum. Var í stjórn Dýraverndunarsambands íslands. Ritstjóri málgagns þessara samtaka, Dýraverndarans, var Gauti i um það bil áratug. Að hluta um skeið með öðrum. Hann gerði ritið að sterku málgagni þessa göfuga málefnis. Lagði hann á sig mikið starf þess vegna, vist ekki fyrir mikið endurgj ald. Hann var hugsj ónamaður. Vafalaust muna margir lesendur þessa blaðs eftir þáttum Gauta í Heimilis-Tíman- um, er fjölluðu um handmennt. Var þarna um margvísleg munstur og uppdrætti að gat hann oft verið snöggur upp á lagið og hrjúfur á ytra borði við fyrstu kynni, en engum duldist, sem kynntist honum nánar, að hann var tilfinninganæmur og inni fyrir sló heitt og stórt hjarta. Ég sem þessar fátæklegu linur rita, starfaði i átta ár sem bæjargjaldkeri undir stjórn Bjarna Þórðarsonar sem bæjarstjóra og vann með honum í fimmtán ár í ritstjórn Austur- lands. Þetta samstarf var gott og náið og mér lærdómsrikt. Fyrir það vil ég þakka nú svo og persónuleg kynni, sem urðu náin og traust. Lífsgöngunni, sem hófst á Kálfafelli 24. apríl 1914 lauk á Borgarspítalanum í Reykja- vik 21. maí sl. Minningarathöfn fór fram við mikið fjölmenni í Fossvogskapellu 26. maí og laugardaginn 29. maí fór útför hans fram i Neskaupstað. Megi roðinn í austri áfram skina þér, vinur, og bænum, sem þú unnir. Ég og fjölskyldan mín vottum ykkur, Hlíf og Bergsveinn, okkar dýpstu samúð og einnig systkinum og fjölskyldum þeirra og barnabörnum Bjarna Þórðarsonar. Birgir Stefánsson. ræða, er kennarar og fleiri hagnýttu sér með góðum árangri. Er enginn vafi á þvi, að þetta hefur kostað Gauta mikla vinnu, er bættist við skyldustarf hans. En þannig var Gauti: Hann hlífði sér ekki. Hann mun heldur ekki hafa krafist fullrar greiðslu fyrir hvert viðvik sem hann vann. Slík var þjónslund hans og hjálpsemi. Gauti var frábærlega vinsæll af nemendum sínum. Mun þar mestu hafa vald- ið lundarfarið, sem var milt og glatt, þó að alvara byggi á bak við. Slikir kennarar lifa lengi í þakklátum hugum nemenda sinna, og einn þeirra er Gauti Hannesson. Hér er ekki timi til að rekja persónulega hagi Gauta að neinu ráði, enda má sjá um þá í uppsláttarritinu Kennaratal á íslandi. Fyrir nokkrum árum kvæntist Gauti danskri konu, Anne Kristinsson að nafni. Lifir hún mann sinn. Bjuggu þau sér fagurt heimili í Reykjavik. Smekkvísi beggja setti mark sitt á allt hið innra þar. Við hjónin litum oft inn til Gauta og Anne. Var jafnan gott til þeirra að koma. Gauti var heilsugóður lengstaf. Fyrir nokkrum árum kenndi hann meins, sem tókst að fjarlægja. Gafst heilsa enn um stund. En i fyrrahaust tók þessi meinsemd sig upp og lokaáfanginn var framundan. Heiil og dyggur þegn hefur kvatt jarðlifið.Ég sakna hans, og slíkt munu allir þeir gera, sem nutu vináttu hans og tryggðar. Hún var fölskva- laus. Við sendum eftirlifandi ástvinum Gauta innilegar samúðarkveðjur í tilefni af andláti hans og útför. Megi minning hans geymast i þakklátum hugum samferðamanna hans. Auðunn Bragi Sveinsson. 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.