Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Page 1

Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Page 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Miðvikudagur 8. desember 1982 — 47. tbl. TÍMANS Finnur í Eskiholti Fæddur 1. októbcr 1887 Dáinn 12. nóvember 1982 Á laugardaginn var til moldar borinn Finnur , Ve'nsson, fyrrum bóndi í Eskiholti í Borgar- rePPÍ. Með honum er fallinn einn af þeim góðu m°nnum, sem íslenzk bændastétt hefur alið; sJalfmenntaður, listrænn hagleiksmaður, ötull til a lra verka og góður bóndi. Pmnur Sveinsson var Dalamaður, fæddur á vennabrekku í Miðdö|um, og voru foreldrar ®ns Sveinn Finnsson, bóndi á Kolsstöðum og f1 ar 1 Eskiholti, Sveinssonar frá Háafelli og kona ans Helga Eysteinsdóttir frá Fremri-Hundadal, alldórssonar. Eignuðust þau hjón Sveinn og elga 11 börn, sem þau ólu upp á Kolsstöðum. ^ystkinin á Kolsstöðum voru listræn og fær til rar handavinnu. í þeim bjó sá neisti, sem getur KaPað listaverk, enda urðu listaverkin til bæði í nnöagripum bræðranna og saumaskap systranna. unnust þessara verka eru listaverk myndhöggv- fans Ásmundar Sveinssonar, sem glatt hefur 8u listunnenda og aukið hróður íslenzks nandverks. F'nnur Sveinsson var ekki eftirbátur systkina nna í handverki. Hann smíðaði ýmsa góða gripi m hann lét öðrum í té. Kunnustu gripir hans nt rokkar, sem hann smíðaði og seldi svo ... ndruðum skipti og annaði ekki eftirspurn. E'nnur var eftirsóttur húsasmiður og lagði hann 1 .. Cllliauuui llUhdMlllUUI ug nd að mörgum byggingum bænda. g ^r'ð 1925 fluttu foreldrar Finns að Eskiholti í , 0r8arfitði, ásamt börnum sínum. Þeir, sem ekkja hvort tveggja, landið á Kolsstöðum og ugnað og framsýni foreldra og systkinanna á ° sstöðum, geta vel skilið þá ráðstöfun, þótt jj1. '* eftirsjón hafi verið að þeim úr bændastétt í 0 "m. Á Kolsstöðum er þröngt, þó landið sé ^°ft, en Eskiholtið er landmikil jörð og góð. Þar ar því rýmra til allra búskaparlegra athafna. Arið 1930 kvæntist Finnur Jóhönnu Maríu p,ristjánsdóttur frá Þorbergsstöðum í Dölum. re, rar Jóhönnu voru hjónin Kristján Tómas- fr.n a ft°rbergsstöðum og Jóhanna Stefánsdóttir "mh n'^U' ^ar Kristlán einn mesti búhöldur Paii á sinni tíð og hlaut m.a. Dannebrogsorðu 'stjáns níunda Danakonungs fyrir ræktunar- , ■ Jóhanna var tilfinningarík, næm og greind na’ sem ávallt tók málstað þess, er hallað var .,,u08 reyndi að laða fram hið góða í orði og athofnum. f0^ur °g Jóhanna tóku við búi í Eskiholti af Um Finns ásamt Bjarna, bróður Finns, og Sveinsson konu hans Kristínu Guðmundsdóttur. Bjuggu þau Finnur myndarlegum búskap í Eskiholti allt fram á síðustu ár, er sonur þeirra Sveinn tók við búinu. Börn þeirra Finns og Jóhönnu urðu sjö talsins, og eru sex þeirra á lífi. Árið 1976 lézt Jóhanna. Var hún Finni mikill harmdauði, enda hafði hjónaband þeirra verið afar gott og þau hjónin samrýmd í bezta lagi. Sannaðist á þeim, hversu mikil gæfa það er fólki að fá lífsförunaut sem skilur skoðanir þeirra og tilfinningar og leitast við að þroska hvoru tveggja. Það fer ekki hjá því að slíkt fólk bætir umhverfi sitt og samferðarmenn. Blessuð veri minning þeirra hjóna Finns Sveinssonar og Jóhönnu Maríu Kristjánsdóttur í Eskiholti. Jón Hólm Stefánsson. t ■ Finnur Sveinsson, föðurbróðir minn í Eski holti í Borgarfirði, er látinn, 95 ára gamall. Hann var einn ellefu barna þeirra Sveins Finnssonar og Helgu Eysteinsdóttur, sem lengst bjuggu á Kolsstöðum í Miðdölum vestur. Árið 1925 fluttu þau að Eskiholti í Borgarhreppi og bjuggu þar síðan. Af sonum þeirra lést Eysteinn, sá elsti, ungur, en fjórir héldu að heiman: Ásmundur myndhöggvari, Benedikt, skrifstofumaður, síðast í Borgarnesi og látinn fyrir allmörgum árum, Hallsteinn smiður í Reykjavík og nú í Borgarnesi, og Sigurður fyrrum aðalbókari í Reykjavík. Af dætrunum ílentist Ingibjörg í Borgarfirðinum, en til Reykjavíkur fluttust Þórdís saumakona, nú látin, Anna fyrrum verkstjóri, og Þorgerður kennari og húsmóðir. Það kom hins vegar í hlut tveggja bræðranna, Finns og Bjarna, að taka við búi föður síns í Eskiholti. Þeir eignuðust báðir góðar konur, Finnur kvæntist Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Þorbergsstöðum í Laxárdal, en Bjarni fékk Kristínar Guðmundsdóttur ffá Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Þessi tvenn hjón gerðu garðinn frægan í Eskiholti um langt árabil, bjuggu þar myndarbúum, og er Finnur hinn síðasti þeirra fjögurra sem fellur frá. Þeir Kolsstaðafeðgar fengu snemma orð á sig fyrir að vera smiðir góðir. Steinhúsið, sem þeir reistu á Kolsstöðum, stendur enn og ber þeirri gáfu þeirra gott vitni. Finnur heitinn sór sig í flokkinn um hagleikinn, og framan af var hann annálaður fyrir rokkasmíði sína. í Eskiholti reistu þeir bændurnir sér síðan tvö myndarleg íbúðar- hús, sem standa þar uppi á hólnum með víðu útsýni og gera þar verulega staðarlegt heim að líta. Ég dvaldist fjögur sumur sem barn f sveit hjá þeim Finni og Jóhönnu, og af henni hafði ég margvísleg góð kynni allt þar til hún lést 1976. Ég má kannski nefna það hér að hún var í mínum augum ein af þessum stórbrotnu sveitakonum sem telja síður en svo eftir sér að fórna öllu sínu fyrir heimili og börn. Það var alltaf gott að hitta hana fyrir, og góð húsmóðir var hún í öllu sínu lífi og starfi. Þau Finnur eignuðust sjö börn, elst var Helga, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Jóni Má Þorvaldssyni prentara, en hún lést langt um aldur fram 1978. Hin eru Kristján bóndi í Laxholti, kvæntur Guðlaugu Kristjánsdóttur, Guðrún hús- móðir í Keflavík, gift Sigurgeiri Þorvaldssyni lögregluþjóni, Svava húsmóðir í Bóndhól, gift Jóni Guðmundssyni bónda, Sveinn bóndi í Eskiholti, kvæntur Guðrúnu Gestsdóttur, Rósa húsmóðir og handavinnukennari í Búðardal, gift Jóni Hólm Stefánssyni ráðunaut, og Ása húsmóðir og fóstra á Blönduósi, gift Kristjáni Helgasyni tæknifræðingi. Framhald á næstu síðu

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.