Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Síða 12

Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Síða 12
Theodór mótasmiður Fæddur 2.06. 1910 Dáinn 19.101982 í dag kveðjum við í hinsta sinn, Theodór Bergstein Theodórsson mótasmíð. Pað var síðla dags, miðvikudaginn 19. október, að sorgin kvaddi dyra að Kaplaskjólsvegi 56. Theodór liafði verið með hressasta móti þá um morguninn, en kallið kom skyndilega síðdegis. Alltaf er það svo, að kall dauðans kemur óþægilega við okkur og okkur fannst það koma óvænt, þrátt fyrir það að Theodór hafði lengi átt við erfiðan sjúkdóma að stríða. Með Theodóri er genginn einn af þeim mönnum, sem hægt var að segja um að væri sérstakt prúðmenni. Hann var sannur, traustur og einstaklega hjálpfús maður. Einnig var honum hæglát kímnigáfa meðfædd. Theodór fæddist á Blávöllum á Stokkseyri 2. júní 1910. Foreldrar hans voru hjónin Steinunn Þórðardóttir og Theodór Jónsson. Þau voru Árnesingar að ætt. Faðir hans var sjómaður og stundaði sjóinn á bátum frá Stokkseyri og síðar á togurum frá Reykjavík. Theodór var næstelstur fimm systkina og var hann eini sonur þeirra hjóna. Þrjár systur hans lifa bróður sinn en ein systir dó hjónin í bíltúr með Fanneyju út í Örfirisey og víða um vesturhluta borgarinnar. Okkur var oft tíðrætt um þær miklu breytingar, sem á hafa orðið gegnum árin. En Fanney var í sælum draumi; „hérna var það... þarna oghérna...". Það va_reins og henni fyndist ströndin og landið, já, jafnvel steinarnir segja: „Manstu - manstu...?“ Svona geta æskustöðvarnar átt mikið í manni. þótt komið sé fram á elliár og ævidögunum hafi verið eytt langt, langt ái burtu. Sjálfsagt er þaðrétt, sem skáldið segir: „hjartað er hundið á slöðvunum þeim". Við hjónin erum nú þakklát fyrir þennan hlýja og bjarta sólskinsdag, sem okkur grunaði ekki þá, að yrði sá síðasti, sem við ættum með henni. Tveim dögum áður en Fanney andaðist, fengum við hjónin að líta inn til hennar á gjörgæsluna. Hún var þá hress og kát að vanda, og við vonuðum öll, að það versta væri yfirstaðið. Við kvöddum, og hlýja brosið hennar fylgdi okkur út úr dyrunum og þannig munum við geyma það í minningunni. Að endingu þökkum við hjónin Fanneyju Iátinni vináttu og tryggð, sem aldrei bar skugga á í meira en hálfrar aldar samfylgd. Ástvinum hennar öllum vottum við innilega samúð, fyrst og frcmst Sölva, sem nú háaldraður og sjóndapur sér á bak tryggum og ástríkum ævifélaga og ástvini eftir langan og farsælan dag í gleði og sorg. Megi harmurinn verða honum sem léttbærastur í aftanskini Ijúfra endurminninga frá liðnum ham- ingjudögum. Gróa Ásmundsdóttir. 12 B. Theodórs son ung. Eiri systranna býr í Svíþjóð. Fjölskyldan bjó á Stokkseyri þar til Theodór var 8 ára, en þá flutti hún búferlum að Nesi- og síðar að Bollagörðum á Seltjarnarnesi. Að síðustu lá leiðin til Reykjavíkur. Efnahagur fjölskyldunnar var ekki góður og varð Theodór að leita sér vinnu ungur að árum, t.d. vann hann sem sendill hjá prentsmiðjunni Akta. Tvítugur missti hann föður sinn og varð hann þá fyrirvinna heimilisins og það sem námsmaður. Árið 1928 hóf hann nám í mótasmíði hjá vélsmiðjunni Hamri. Var hann með þeim fyrstu er lærðu þá iðn hér á landi. Við þessa iðn vann hann síðan hátt í 50 ár, fyrst hjá Hamri og síðan hjá Járnsteypunni h.f., eða þar til hann varð að hætta sökum veikinda. Það eru því ófáir steyptir málmhlutir, sem Theodór hefur smíðað mót af í tré. Víða blasa þessir hlutir við okkur s.s. vegskilti, grafreitarplötur og brunahanar svo eitthvað sé nefnt. Mestrar nákvæmni í mótasmíði var krafist, þegar steypa þurfti ýmsa vélahluti. Hann þótti með afbrigðum vandvirkur smiður og kom það ekki einvörðungu fram við smíði á mótum af hlutum til málmsteypu, heldur einnig við alla smíði sem hann fékkst við. Iðulega smíðaði Theodór leikföng fyrir börnin meðan þau voru lítil og eins ef smíða þurfti hlut til heimilisins. Það kom sér einnig einstaklega vel fyrir elstu börnin, er þau stofnuðu sfn heimili, að geta leitað til „pabba“ um smíði og fá góð ráð með eitt og annað. 29. febrúar 1936gekk Theodór að eiga eftirlifandi konu sína, Aðalheiði Unu Sigurbjörnsdóttur, en hún á ættir að rekja vestur í Barðastrandarsýs'u í móðurætt og Árnessýslu í föðurætt. Oft er búið að skemmta sér við það, þegar þau áttuðu sig á því að giftingardagurinn var hlaupársdagur. Árið 1946 höfðu þau hjónin reist séreinbýlishús við Kaplaskjólsveg, eitt af „sænsku húsunum“ svo kölluðu. Byggingafélagvarstofnaðum innflutning og smíði þessara einingahúsa og var Theodór valinn til verkstjórnar við þær framkvæmdir. Þau hjónin eignuðust sex börn, sem öll eru uppkomin, en þau eru: Gyða húsmóðir, Gýtf' rennismiður, Hulda skrifstofustúlka, Sigurbjörn rennismiður, Theodór landfræðingur og Steinaf Engilbert nemi í Tækniskóla íslands. ÖIl erU börnin gift eða í sambúð nema yngsti sonurinn- Barnabörnin eru orðin tíu. Theodór og Una litu jafnan á börnin senj sérstaka blessunargjöf og hafði það mótandi áhrif á allt heimilistíf þeirra. Þar ríkti jafnan góðnr andi, enda voru þau hjónin samhent við ajh heimilishald. Það ríkti ávallt mikil gleðí a Kaplaskjólsveginum þegar barnabörnin kornu > heimsókn og alltaf var afi brosandi og tilbúinn »ð létta þeim stundirnar, enda var hann einstakleg3 barngóður. Eftir að sjúkdómurinn hafði náð þeim tökum a Theodór, að hann varð að leggja niður vinnu, vaf hann af og til rúmliggjandi og mikið til síðaSta árið. Öll árin eða þar til í sumar annaðist Una hann siálf heima af einstakri natni og dugnaði og erum við mörg sem undrumst þrek hennar. Þetta finnst mér lýsa betur en allt annað hvern hug ÞaU báru hvort til annars. Þegar ég kem inn í fjölskylduna sem tengdasonur þeirra hjóna, fékk ég að kynnast þeim mannkost' um sem bjuggu með Thoodóri, að hann var alltm boðinn og búinn að rétta hjálparhönd og gefa g°u ráð. Þeir eru reyndar orðnir margir sem nutu þesS að geta hringt í hann, ef eitthvað þurfti að lagfera- Mér finnst það lýsa manninum í hnotskurn þegar ég hugsa til sumarbústaðarins sem han» byggði í Selásnum og hvernig þau hjónin breýttu óræktarmel í mikinn gróðurreit. Allt var unnið a slíkri vandvirkni og hagsýni. Mikla jarðvegsflutn' inga þurfti til að geta komið tii gróðri og var a> unnið á höndum. Nú er þar risin mynóar íbúðarbyggð. Theodór var mjög söngelskur maður og góður tenór. Hann söng með Karlak°r Iðnaðarmanna alla tíð og einnig í Söngsveitinn> Fílharmoníu. Lengst af söng hann í kirkjukj°r Nessóknar eða yfir 20 ár. í kirkjukórnum rík*1 ávallt góður félagsandi og var það eins sérstakur klúbbur. f Neskirkju og víðar messur söng Theodór þeim drottni lof sem ge^uf líf og tekur það aftur og við trúum því að nú nj° Theodór blessunar hans. Meðan Theodór gat’ naut hann þess að hlusta á útvarpsmessur og t0 hann þá jafnan undir sönginn. , Nú, þegar við hofumst í augu við þá staðreyn að Theodór er ekki lengur á meðal okkar, er e s í huga okkar þakklæti. Þakklæti til lians sem ga okkur svo mikið af sér og var okkur slíkur að vl finnum að í skarð hans kemur enginn annar. Það er gott að geta beðið Guð um blessun °t styrk, þegar við sjáum á eftir góðum vini. Ég bið Guð að blessa Unu sem svo mikið he misst og blessa okkur allar góðar minningat o h"" lslendingaÞ®Ú>r Og við

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.