Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Qupperneq 2

Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Qupperneq 2
Sigurður Þórarinsson jafnvel þegar hann stóð upp og hélt litla ræðu, sem algengt var, og virtist gersamlega í tilefni augnabliksins en ævinlega sérlega hnyttna og með eftirminnilegum punkti, þá hafði hann undirbúið raöuna áður, skrifað hana og kunni hana síðan. Því ekkert vex af engu, jafnvel hjá snillingum. En aldrei las hann af blöðum, enda þurfti svo minnugur maður ekki á því að halda. Sigurður kunni fullkomlega forgangsrétt sinna mörgu starfa: rannsóknir og skriftir komu þar fremst. Og þar var hann alltaf að, hvenær sem tími gafst, milli fyrirlestrp, í áætlunarflugi milli landa, um helgar þegar ekki kallaði annað að. Hin mörgu hlutverk Sigurðar minntu mig á annað vísinda-stórmenni, Línus Pauling, sem var tvö- faldur og næstum þrefaldur Nóbelsverðlaunahafi. Línus sást einu sinni taka þátt í mótmælastöðu gegn Víet-Nam stríðinu utan við Hvíta húsið fyrir hádegi en vera þar í veizlu innan dyra síðdegis, þótt aðalstarfið ynni hann að sjálfsögðu á efnarannsóknastofu sinni. Sigurður var sömuleiðis jafnheima í veizlusölum með stórmenni og á Heklutindi með myndavél og skrifbók í hönd eða í mógröf með reku að pæla í öskulögum. Sigurður sótti ekki einasta menntun sína til Svíþjóðar, heldur líka eiginkonu sína Ingu. Þau giftust 1939 og eignuðust tvö börn, Snjólaugu og Sven. Inga var dóttir Sven Backlund, stærðfræð- ings sem síðar snéri sér að blaðamennsku og var einn af hugsuðum og baráttumönnum sænsku jafnaðarmannanna. Inga var þá eftirsóttur upples- ari, og vafalaust hafa það verið henni mikil viðbrigði að flytjast hingað til lands í stríðslok. En hún er mikilhæf kona sem reyndist manni sínum traustur og þolinmóður lífsförunautur. Eg votta ástvinum Sigurðar innilega hluttekningu í harmi þeirra. Sigurður Þórarinsson var ekki einasta afkasta- mikill vísindamaður, heldur var hann óþreytandi að kynna þjóð sinni fræðin, með alþýðlegum greinum og fyrirlestrum, enda á hann sjálfsagt mestan þátt allra náttúrufræðinga í þeim áhuga sem almenningur hér á landi sýnir þessum fræðum. En náttúrufræði verða ekki numin af bókinni einni, og mikilvægur vettvangur náttúru- fræðikennslu og almenns skilnings á náttúrunni eru hvarvetna náttúrugripasöfn, sem nú orðið eru með nýju sniði víðast hvar og æði ólík því sem Náttúrugripasafnið við Hverfisgötu var, sem þó vantaði ekki vinsældir meðal barna og unglinga. Áður en Sigurður Þórarinsson gerðist prófessor í jarð- og landafræði við Háskóla íslands var hann einmitt starfsmaður Náttúrugripasafnsins í 20 ár. Á þeim tíma var safnið flutt úr Safnahúsinu við Hverfisgötu og var á hrakhólum milli húsa unz því var fundinn staður í húsnæði á 3. hæð sem Háskólinn keypti við Hlemmtorg. Þar er allvel búið að rannsóknastarfsemi safnmanna, en afleit- lega að þeirri hlið er að almenningi snýr, sýningarsalnum, Sigurður Þórarinsson helgaði alla ævi sína rannsóknum í jarðfræði, en einnig uppfræðslu í náttúrufræði, náttúruvernd og al- mennum skilningi á samspili mannsins og náttúr- unnar. Minningu hans væri mestur sómi sýndur ef nú væri tekin um það ákvörðun að byggja yfir Náttúrugripasafnið og tengja þá uppeldis- og rannsóknastofnun nafni hans. Sigurður Steinþórsson formaður Jarðfræðafélags íslands. t „Mórall í borginni aflaga er og ástin á landinu þverrandi fer. En engan á jöklunum hafa menn hitt, sem hefur ei dásamað „föðurland" sitt. “ (S.Þ.) Það brá skugga yfir Jarðfræðihús Háskóla íslands miðvikudaginnn 9. febrúar, síðast liðinn, þegar fréttist um lát Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. Yfirleitt er þar glatt á hjalla, en þennan morgun var sem öllum yrði orða vant. Menn gengu að störfum sínum, sem áður, þó meir af gömlum vana en áhuga. Við fundum til sárs söknuðar. Um hugann liðu minningar, myndir liðinna samverustunda er við áttum með Sigurði. Stórt skarð hafi myndast í þann hóp sem þetta hús hýsti. Þar er skarð fyrir skildi. í huga þjóðarinnar var Sigurður Þórarinsson hin sanna ímynd hins lifandi og starfandi jarðvísindamanns. Hver kannast ekki við mynd- ina af Sigurði, þar sem hann hleypur upp um fjöll og firnindi, kvikur og léttur, með rauðu skotthúf- una sína, sem var hans aðalsmerki. Alltaf kominn fyrstur manna á staðinn, þar sem náttúruöflin höfðu látið til skara skríða. Þannig var Sigurður, náttúran og öll hin landmótandi öfl, eitt og hið sama, ein órjúfanleg heild. Sigurður kenndi land- og jarðfræðinemum almenna jarðfræði á fyrsta ári. Það fylgdi því mikil tilhlökkun og eftirvænting að fá að fylgjast með fyrirlestrum hjá Sigurði Þórarinssyni sjálfum. Fyrir flestum okkar var hann hin lifandi ímynd jarðvísindanna. Sigurður var maður víðförull og með honum „ferðuðumst“ við ekki einungis um allt ísland, heldur allar heimsins álfur, frá; Reykjavík og Rawalpindi, Rangoon, Súdan, Bonn, Kashmir." (S.Þ.) Til að sýna okkur sem fjölbreyttast landslag, var hann einatt með litskyggnur úr ferðum sínum og iðulega skaut hann inn á milli hnyttnum frásögnum, þjóðsögum og athugasemdum sem gæddu fyrirlestrana lífi. Fyrirlestrar Sigurðar fjölluðu ekki einungis um jarðfræði, heldur fléttaði hann þar inn í frásagnir af siðum og menningu hinna ýmsu þjóða sem jarðkúluna byggja, s.s. Eskimóum, Indíánum, Sjerpum, Japönum og svona mætti lengi telja. Stutt var í glettnina og var hún ekki síður á eigin kostnað, en annarra. AuðgiT'myndunaraflsins var alveg ótrúleg. Einu sinni sem oftar vorum við „stödd“ með Sigurði uppi við Grímsvötn, þar sem hann lýsti á listilegan hátt, hvernig sigketillinn yfir Grímsvötnum myndast við Skeiðarárhlaup. „Og hugsið ykkur svo, þegar sigið hefst“, sagði hann, „hvernig jökulhellan dettur allt í einu niður um nokkra tugi metra í senn. Mig hefur alltaf langað til að sitja á jökulhellunni, meðan hún sígur. Það hlýtur að vera stórkostlegt. Hún tekur allt í einu að síga, „púms“, og svo aftur, „púms“ og maður fær flugferð enn á ný.“ í anda fylgdust við hugfangin með þessari flugferð, þar sem Sigurður sat á miðri hellunni og hélt báðum höndum um rauðu skotthúfuna sína. Jarðfræðinám byggist ekki síður á ferðalögum en bóknámi, því sjón er sögu ríkari. Á vorin fóru fyrsta árs jarð- og landfræðinemar ávallt í einnar viku námsferð með Sigurði um Suðurland. Þar hlutu menn sínaeldskírn. Þessi ferð erógleyman- leg, því Sigurður bjó yfir ótrúlegri þekkingu á landi og landsháttum, hvort sem um var að ræða hæð á fjalli, nafn á bæ eða ábúanda, að ekki sé minnst á þjóðlegan fróðleik. Hversu oft hafði Hekla gosið? Var þetta „Landnámslagið"? Hvers vegna verða Skeiðarárhlaup eða hvernig er umhorfs á Mýrdalssandi í Kötlugosi? Það var sama um hvað var spurt, Sigurður hafði ávallt svar á reiðum höndum, en þótt fræðin sætu í fyrirrúmi, var oft slegið á léttari strengi. Mikið var sungið og voru kvæði eftir Sigurð jafnan vinsælust. Sigurður söng gjarnan með, sérstaklega ef sungin voru kvæði eins og „Ennþá geymist það mér í minni, María, María...“, eða „Land veit ég langt og mjótt...“ Þegar textarnir sem við kunnum höfðu verið marg endurteknir og ekkert sérstakt barfyrir í landslaginu, tók Sigurður til sinna ráða. Hann kenndi okkur viðlag, en gerðist sjálfur forsöngvari og þá heilu kvæðin, sem jafnvel urðu til á staðnum. Sigurður skildi eftir sig mikið safn greina. Einn mikilvægasti þátturinn í skrifum hans er hvernig hann tengdi saman sögu lands oglýðs. Greinarnar eru flestar skrifaðar á alþýðumáli, þar munu því leikir jafnt sem lærðir eiga Mímisbrunn að bergja á. Síðasta árið var mönnum Ijóst að mjög hafði dregið af Sigurði. Ljósið Ijómaði ekki eins skært og áður, en vinnugleðin virtist samt óþrjótandi og stöðugt brá fyrir þeim neista glettni og gaman- semi, sem einkenndi Sigurð jafnan. Leiðina frá vöggu til grafar göngum við öll, þó með misjöfnum hætti. Hvert okkar skilur eftir sig spor, sumir þó dýpri en aðrir. Við sem vorum nemar og svo lánsöm að kynnast Sigurði og njóta handleiðslu hans, þökkum innilega liðnar samverustundir, bæði í leik og starfi. Fjölskyldu Sigurðar sendum við heilshugar samúðarkveðjur. Minningarnar lifa. „En orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getur. “ Jarð- og landfræðinemar við Háskóla íslands. t KVEÐJA FRÁ NORRÆNA FÉLAGINU Að liðnu misseri hafa mörg valmenni horfið okkur. Meðal peirra eru Kristjan tiujaui, Ásmundur Sveinsson, Sigurjón Ólafsson og nú Sigurður Þórarinsson. Allir menn sem mikill sjónarsviptir er að, menn sem brugðið hafa birtu í líf okkar. Menn sem getið hafa sér þann orðstír Framhald á bls. 6 2 Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.